Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 37

Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 37
Þorbjörn Karlsson: Hvað er framundan í Erindi flutt á 7. þingi íslenska umdæmisins 22.-23. apríl 1977. Inngangur: Hvað er framundan? Það er ekki lítið verkefni, sem undirbúningsnefnd þingsins fær mér í hendur, og að öllum líkindum væri ég ekki hér, ef ég gæti svarað þessari spurningu, heldur sæti væntanlega í troð- fullri stofu einhvers staðar úti í bæ og rýndi þar í mína krystalskúlu fyrir forvitna og óþolinmóða íslendinga til að ráða þeirra lífsgátu. En sem betur fer er okkur ekki gefin sú gáfa að geta sagt fyrir um fram- tíðina — ég segi sem betur fer, því hrædd- ur er ég um, að heldur væri lífið dauft og tilbreytingalaust, ef við vissum alltaf, hvað framtíðin ber í skauti sínu. Hitt getum við svo alltaf gert og stundum þá iðju reyndar óspart að gera framtíðaráætlanir og setja okkur einhver ákveðin markmið fyrir kom- andi ár að keppa að. í þessu augnamiði horfum við gjarnan um öxl, reynum að læra af fenginni reynslu, hvað horfir til bóta og hvað við hefðum betur látið ógert, því að „til þess eru Vítin að varast þau” (þetta hefði Kröflunefnd átt að vita). Horft um öxl. Við skulum byrja á því að líta aðeins yfir farinn veg og athuga, hvaða lærdóm við getum af því haft. Á mynd 1 er sýnt, hvernig þróunin í stofnun nýrra klúbba hefur verið hér á landi allt frá því er Kiwanisklúbburinn Hekla var stofnaður snemma á árinu 1964. Við sjáum að hreyfingin fer hægt af stað. Næsti klúbbur, K-FRÉTTIR sem er Katla, var ekki fullgiltur fyrr en rúmum tveimur árum á eftir Heklu. Síðan kemur Helgafell í Vestmannaeyjum á síðari helmingi ársins 1967 og Askja á Vopna- firði rétt í ársbyrjun 1968. Þá er Kaldbak- ur, Akureyri, síðla árs 1968, þannig að á fyrstu fimm árunum eru stofnaðir jafn- margir eða 5 klúbbar. Eftir þetta tekur þróunin mikinn fjörkipp, þannig að í dag eru klúbbarnir orðnir 32 og hefur þeim því fjölgað um 27 á tæpum 9 árum eða um þrjá til jafnaðar á ári. Fjöldi meðlima í klúbbunum hefur að meðaltali verið rúm- lega 30, og sýnir því klúbbaaukningin nokkurn veginn fjölgun Kiwanisfélaga á landinu, sem nú mun vera nokkuð yfir 1000. Þessi þróun hreyfingarinnar hér á landi er nokkuð, sem við getum allir verið hreykn- ir af, enda má með sanni segja, að Island sé mesta Kiwanislandið í heiminum. Ég ætla ekki að þylja hér neina tölfræði þess- ari staðhæfingu minni til stuðnings, en vil þó aðeins nefna, að í heimalandi hreyf- ingarinnar, Bandaríkjunum, ætti að vera yfir 1 milljón Kiwanismanna, ef þeir væru hlutfallslega jafn fjölmennir og við á ís- landi. Staðreyndin er hins vegar sú, að þcir eru innan við þriðjungur af þeim fjölda. Ef litið er á Evrópu eina, er samanburður- inn okku enn hagstæðari, því að í ljós kemur, að íbúafjöldi á íslandi er innan við þúsundasta hluta af íbúum Kiwanislanda Evrópu, en meðlimafjöldinn hér er yfir 12% af heildarmeðlimafjölda í Evrópu. Hlutfallslegur fjöldi Kiwanisfélaga hér á 37

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.