Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 2

Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Kuldinn beit fast í kinnar fólks í gær og í höfuð- borginni fór frostið alveg niður í sjö stig. Ferða- menn sem voru á rölti í miðborginni í gær voru því vel búnir, rétt eins og þeir fylgdu hollráðum íslenskra foreldra til barna sinna um að vera með húfu og vettlinga. Í dag verður fimbulkuldi víða um land en þegar kemur fram á helgina lin- ast tökin og þá verður hiti um og yfir frostmarki og væta um vestanvert landið. Morgunblaðið/Ómar Allir voru með húfu og vettlinga Erlendir ferðamenn í kuldanum í Reykjavík í gær Kuldakast hefur gengið yfir land- ið. Í gær gerðist það að hámarks- hiti sólarhrings- ins náði hvergi upp fyrir frost- mark á landinu öllu. Slíkt gerðist síðast fyrir rúm- um þremur árum eða nánar tiltekið 6. desember 2013, samkvæmt upplýsingum Trausta Jónssonar veðurfræðings. En tæpt stóð það því á Steinum undir Eyjafjöllum mældist hitinn mínus 0,1 gráða. Á Önundarhorni mældist hitinn -0,2 gráður og -0,3 á Vattarnesi. Tveggja stafa frosttölur sáust víða landinu í gær samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar. Á Dyngjujökli mældust -24,4 gráður og -19,8 gráð- ur á Hveravöllum kl. 20 í gærkvöldi. Á láglendi mældist mest frost á Brúsastöðum í Húnaþingi eða -16,9 gráður. Á Austurárdalshálsi, sem er á svipuðum slóðum, mældist frostið -15,6 gráður. sisi@mbl.is Frost mældist á öllu landinu  Gerðist síðast í desember 2013 Kuldinn Bítur hressilega. 18 ára stúlka lést í bílslysi sem varð á Grindarvíkurvegi, norðan við af- leggjarann að Bláa lóninu, á níunda tímanum í gærmorgun. Einn maður er alvarlega slasaður og er á gjör- gæsludeild. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suð- urnesjum. Þetta kemur fram í til- kynningu frá lögreglunni. Kemur þar fram að klukkan 08:56 hafi lögreglunni borist til- kynning um harðan árekstur tveggja bifreiða. Veginum var lokað í um þrjár klukkustundir eftir slys- ið en allt tiltækt lið lögreglunnar á Suðurnesjum var sent á slysstað. Vegurinn var svo opnaður á ný á hádegi í gær. Stúlkan sem lést í slysinu var bú- sett í Grindavík. Körfuknattleiks- samband Íslands tilkynnti í gær að leikjum hjá Grindavík sem fram áttu að fara í gærkvöldi hefði verið frestað vegna banaslyssins. Átján ára stúlka lést í bílslysi  Einn maður er alvarlega slasaður Vogunarsjóðunum Autonomy Capi- tal LP, Autonomy Master Fund Limited, GAM Trading (Nr. 37) og Autonomy Iceland Two S.á.r.l., hef- ur verið heimilað að leggja fimm spurningar fyrir dómkvadda mats- menn, án þess þó að eiginlegt mál hafi verið höfðað gegn íslenska rík- inu. Þetta kemur fram í dómi Hæsta- réttar, sem kveðinn var upp í gær, en beiðni sjóðanna hljóðaði í fyrstu upp á ellefu spurningar. Óskuðu þeir eftir að þeim yrði beint til matsmanna, með það að markmiði að leggja grunn að kröfugerð sinni og málatilbúnaði í komandi dóms- máli. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var beiðnin tekin að hluta til greina, að undanskildum 2., 3. og 5. spurn- ingu, þar sem þær þóttu tilgangs- lausar til sönnunarfærslu í málinu. Íslenska ríkið kærði þá úrskurð- inn, sem nú hefur verið staðfestur, fyrir utan það að Hæstiréttur hafn- ar öðrum þremur spurningum af þeim ellefu sem bornar voru fyrir héraðsdóm. Matsspurningar nr. 9, 10 og 11 verða því ekki heldur lagðar fyrir dómkvadda matsmenn, til viðbótar við hinar þrjár, að því er segir í dómnum. Þannig fékkst heimild fyrir aðeins tæpum helmingi spurn- inganna. Leyft að spyrja fimm spurninga  Beiðnin var ellefu spurningar Hæstiréttur Spyrja má 5 spurninga. Viðar Guðjónsson Þorvaldur Birgir Arnarsson Konráð Alfreðsson sem situr í samningnefnd sjómanna í kjaravið- ræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segir að menn nálgist hvorir aðra í öllum málum viðræðn- anna. Fundað hefur verið alla daga vikunnar og boðað er til annars fundar í dag klukkan 11. „Menn eru að reikna sig fram og til baka og reyna að finna lausnir. Þegar menn eru komnir í botn hvað eitthvert at- riði varðar þá er það lagt til hliðar og farið yfir að nýju þegar búið er að fara yfir alla þætti,“ segir Kon- ráð. Vilhjálmur Birgisson sem einnig situr í samninganefndinni gaf í skyn í færslu á Facebook í vikunni að enginn árangur væri í viðræðunum. Konráð telur þó svo ekki vera. ,,Ég hef ekki þessa skoðun. Við (samn- inganefndir) nálgumst hvorir aðra í öllum þessum málum. Allt sem við gerum er til góðs fyrir sjómenn og útgerð til að skilja sjónarmið hvorir annarra. Á meðan við erum að tala saman þokast hlutirnir í rétta átt,“ segir Konráð. Hann á von á því að fundað verði um helgina og áfram svo lengi sem þurfa þykir. Skaði á hverjum degi Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir að skotið hafi verið á að fjár- hagslegur skaði þjóðarbúsins í heild af verkfallinu sé á bilinu 500-600 milljónir króna á dag. „Það segir sig sjálft að skaðinn er meiri þegar dögunum fjölgar,“ segir Jens. Hann segir að þegar litið er yfir lands- lagið á mörkuðum sé skaðinn mest- ur þegar horft er til þess hve Norð- menn eru að styrkja stöðu sína á mörkuðum. „Norðmenn eru að koma sterkir inn og það er vont að vera ekki með neinn íslenskan fisk þegar svona er. Maður heyrir það á söluaðilum að þeir eru orðnir stressaðir,“ segir Jens. Hann telur að báðir samningsaðilar geri sér grein fyrir því að verkfalli fylgi mikið tjón fyrir alla aðila. Hvort sem það er fyrir sjómenn, fisk- verkafólk eða sjávarútvegsfyrirtæk- in sjálf. Sjómenn á Austurvöll Boðað hefur verið til samstöðu- fundar sjómanna og fiskvinnslufólks á Austurvelli mánudaginn 16. jan- úar kl. 18 og eru fundargestir hvattir til að koma með sjógalla, trommur og skilti. Á Facebook-síðunni Sjómenn á Íslandi hefur skapast mikil umræða um kjaramál sjómanna og eru fé- lagar nú hartnær 2.000 manns. For- sprakkar hópsins efndu til sam- stöðufundar á dögunum við húsakynni ríkissáttasemjara á með- an samninganefndir sjómanna fund- uðu með fulltrúum útgerðanna um gerð nýs kjarasamnings. Ekki bjartsýnn Vélstjórar eru einnig í samninga- viðræðum. Guðmundur Þ. Ragnars- son, formaður VM, segir á vefsíðu Félags vélstjóra og málmiðnaðar- manna að hann sé ekki bjartsýnn á lausn. „Það er best að fullyrða sem minnst. Ég er ekki bjartsýnn, stað- an er viðkvæm. Sem ég segi, þá á eftir að reyna á hin eiginlegu deilu- mál. Fundirnir síðustu daga hafa farið í annað en stóru málin. Þetta tekur fyrst á sig eiginlega mynd þegar stóru málin koma á borðið,“ segir Guðmundur Deilendur eru að nálgast í öllum málum  „Maður heyrir það á söluaðilum að þeir eru orðnir stressaðir“ Morgunblaðið/Golli Fundað Boðað hefur verið til annars fundar í dag. Konráð Alfreðsson á von á því að fundað verði um helgina og fram í næstu viku ef þurfa þykir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.