Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017 ✝ Hrafnkell Ósk-arsson fæddist í Reykjavík 8.sept- ember 1942. Hann lést 28. desember 2016. Foreldrar hans voru Sólveig Sig- urðardóttir, f. 7. apríl 1920, d. 28. apríl 2003, og Ósk- ar Þorgilsson, f. 5. mars 1919, d. 6. september 2006. Systur sam- mæðra eru Erna, Pálína, d. 23. maí 2015, og Sigrún Ágústs- dætur. Systkini samfeðra eru Guðný, Kolbrún, Óskar Gunnar og Pétur. Þann 30. júní 1963 kvæntist Hrafnkell eftirlifandi rúnar frá fyrra sambandi er Helgi Bernódus Helgason. Hrafnkell ólst upp hjá móðurfor- eldrum sínum, þeim Sigurði Guðnasyni og Kristínu Margréti Árnadóttur. Barnsskónum sleit Hrafnkell á Bergþórugötunni, hann fór til sjós um 13 ára aldur með móðurbróður sínum Guðna Sigurðssyni og var sjómaður lengst af sinni starfsævi. Eftir að Hrafnkell kom í land vann hann hjá Varnarliðinu, átti og rak Veiðiverk netagerð ásamt vini sínum Ólafi Þórðarsyni, vann hjá Olíusamlagi Keflavíkur og ná- grennis og lauk hann starfs- ævinni hjá N1 í Helguvík. Útför Hrafnkels hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. eiginkonu sinni, Báru Þórðardóttur, f. 26. október 1943. Börn þeirra eru: 1) Þórir Björn, f. 18. maí 1963, giftur Lilju Guðjóns- dóttur. Barn þeirra er Guðjón Snær, börn frá fyrra hjónabandi eru Hrafnkell Þór og Bára Kristín. 2) Sig- ríður Kristín, f. 15. maí 1967. Synir hennar eru Björn Leví og Hrafnkell Björnssynir. 3) Guð- rún, f. 20. júlí 1975, gift Eðvaldi Ragnarssyni. Dætur þeirra eru Thelma Rún, Ásdís Bára og Ragnheiður Steina, barn Guð- Þakklæti er mér efst í huga þegar ég kveð þig, elsku Keli minn. Ungan og fallegan sá ég þig fyrst og var ákveðin að kynnast þér. Mitt happ í lífinu var að fá þá ósk mína uppfyllta og vel það. Ég fékk að deila lífi mínu með þér, ala með þér þrjú yndisleg börn og vera þín alla tíð. Þú varst þínum góður, stoð og stytta allra í fjöl- skyldu minni og börnum okkar góður faðir á öllum sviðum. Þú varst einstakur félagi, sterkur, húmorískur, góður, verndandi og hlýr. Dagurinn kveður, mánans bjarta brá blikar í skýja sundi. Lokkar í blænum, leiftur augum frá, loforð um endurfundi. Góða nótt, góða nótt, gamanið líður fljótt, brosin þín bíða mín, er birtan úr austri skín. Dreymi þig sólskin og sumarfrið, syngjandi fugla og lækjarnið. Allt er hljótt, allt er hljótt ástin mín, góða nótt. (Ási í Bæ) Á þínum síðustu árum hvarfstu mér hægt og rólega og sjúkdómur þinn tók yfir. Ég hef saknað þín lengi og geri enn. Kveðjustundin er þó alltaf erfiðust. Minningarnar okkar geymi ég djúpt í hjarta mínu og vernda með kærleik. Ég hugga mig við að við munum hitt- ast aftur, ástin mín. Nú ertu frjáls og ég veit að vel var tekið á móti þér af okkar fólki. Góður guð blessi minningu þína sem verður mitt ljós. Þín, Bára. Við vissum að þessi stund kæmi fyrr en síðar, elsku pabbi. Senni- lega óskaðir þú þess að hún yrði fyrr við þessar aðstæður en ég vildi hafa þig lengur, því dagarnir urðu einfaldlega betri eftir heim- sókn til þín. Kveðjustundin er samt svo óskaplega tregakennd, en ég veit fyrir víst um nokkra sem biðu þín hinum megin með verkefni sem þurfti að leysa. Ég hugsa til þín oft á dag, hversu heppin ég var að eiga þig að. Eftir situr ákveðið tómarúm sem erfitt reynist að fylla. Þú varst klettur- inn minn. Einstaklega þolinmóð- ur, úrræðagóður, skilningsríkur, hógvær, greiðvikinn, sanngjarn, hnyttinn, handlaginn, traustur og ástríkur pabbi. Hlutverk okkar pabba snerust við síðustu árin, hann sem hafði tekið á móti mér varnarlausri inn í þennan heim þurfti nú sömu um- hugsun og ég þá. Nú var komið að mér. Ég þurfi að standa sem klett- ur, reyna að útskýra fyrir honum af hverju hann væri kominn á nýtt heimili, af hverju hann gat ekki bara fengið að fara heim. Hjartað mitt sundurtætt af sársauka og helst hefði ég ekki viljað víkja frá honum. Þetta er alzheimer- sjúkdómurinn – hann tekur fólkið okkar og skilur það eftir svo varn- arlaust. Pabbi var einstaklega falleg sál, það sem hann var ekki tilbúinn að leggja á sig svo okkur systkinun- um liði vel, skapa minningar sem lifa áfram í hjörtum okkar um ókomna tíð. Pabbi ólst upp á erf- iðum tímum, hann bjó hjá ömmu sinni og afa sem gáfu honum allt sem þau gátu en 13 ára gamall þurfti hann að fara til sjós. Mér finnst ótrúlegt hvernig þetta var á þessum tímum. Æskan er ein- hvern veginn tekin frá börnunum. Pabbi var alla tíð vinnusamur. Ef hann var ekki að smíða innrétt- ingar eða að vinna í garðinum þá var hann líklega að vaska upp eða ryksuga. Pabbi kenndi mér svo ótal margt og verð ég honum æv- inlega þakklát fyrir það. Pabbi sýndi barnabörnunum öllum mikla væntumþykju, hann gerði ekki upp á milli þeirra, allir áttu sinn hlut í afa. Það besta sem hann gaf var tími og þolinmæði sem hann átti endalaust af, hvort sem það var í bílskúrnum að smíða með börnunum, við eldhúsborðið að teikna eða að syngja og barna- vísan „Einn var að smíða“ kemur reglulega upp í huga mér og söng ég vísuna oft fyrir pabba nú undir það síðasta. Börnin mín minnast afa með þakklæti og einstakri væntumþykju. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum.) Þar til við hittumst aftur, hafðu þakkir fyrir allt og allt. Lífið hefði ekki verið eins gott án þín, elsku pabbi. Ég veit þú vakir yfir okkur, ég passa mömmu fyrir þig. Þín dóttir, Guðrún. Minn klettur. Mín stoð. Mín vetrarsól. Minn pabbi. Minning- arnar streyma fram um saklausa æsku í þínum faðmi. Þú sem varst alltaf til staðar. Þú með þína þægi- legu nærveru. Þú sem kenndir mér svo mikið. Að elska, virða, setja mörk, gefa eftir, sjálfsbjarg- arviðleitni, vinnusemi, að meta fegurð og rækta garðinn. Þú reyndir líka að kenna mér að teikna, taka myndir, tefla, leysa gátur og fleira sem þú varst góður í. Þú varst nákvæmur og natinn fagurkeri. Mikill listamaður og þúsundþjalasmiður sem gerði allt sjálfur. Allt. Þú skapaðir fallegt heimili með mömmu sem hafði mikla sál og hlýju og fullt af tón- list. Alls kyns tónlist. Jafnaðargeð þitt var einstakt. Ég klessti hvern bílinn á fætur öðrum og baðaði stofuna þína með bleiku kampa- víni. Þú sagðir að þetta væri allt í lagi, þetta væru bara bílar, og málaðir stofuna aftur án þess að segja orð. Þolinmóður og rauna- góður. Bestur. Æskuminningar um ferðalögin með Simon og Garfunkel í spilar- anum á leið í sveitina, við að veiða saman, við að byggja fleka saman sem við renndum niður ánna, við að plana að flytja til Reykjavíkur. Þú að gróðursetja blómin og hugsa um garðinn þinn af mikilli natni. Þú að framkalla myndir í framköllunarbúrinu. Við á leið í Lágafellskirkjugarð til afa Sig- urðar og ömmu Kristínar með kross sem þú varst búinn að skreyta með alúð og ást á Þorláks- messu. Þú að mála herbergið mitt fyrir hver einustu jól alla mína barn- æsku. Mamma að strauja ný sængurföt og þvo ný náttföt á Þor- láksmessu. Ég að fara að sofa á Þorláksmessukvöld með hreint á rúmum í nýjum og hreinum nátt- fötum. Reykelsislyktin þín á jól- unum. Þú með kaffibollann þinn. Þú að leggja parket. Þú að mála. Þetta eru minningarnar sem munu alltaf lifa með mér. Það var ástin og umhyggjan sem fyllti heimili ykkar mömmu sem við systkinin nutum í ómældu magni og skapaði öryggið sem ég áttaði mig seinna á að væri grunnurinn af öllu í lífinu. Þú kunnir að meta fjölskylduna þína og veittir henni alla þína athygli og ást. Samband ykkar mömmu var einstakt. Aldrei sá ég ykkur ósátt, aldrei fann ég fyrir öðru en hamingju, friðsæld og gagnkvæmri virðingu. Þegar ég flutti að heiman varst þú ráðgjafi minn í öllu, ég gerði aldrei nokkurn hlut án þinnar blessunar. Þegar synir mínir fæddust reyndi á sterkan ættar- höfðingjann. Hrafnkell minn, sem fékk ekki úr sömu spilum að spila og flestir, var augasteinn þinn að öðrum barnabörnum ólöstuðum. Hann þurfti mest á þér að halda og naut styrksins frá þér. Ósér- hlífni þín var einstök. Þú sast yfir honum á Barnaspítalanum dag eftir dag, ár eftir ár og keyrðir á milli Keflavíkur og Reykjavíkur eftir því sem við þurftum á þér að halda. Þið mamma tókuð alltaf við þegar ég brást. Samband ykkar Hrafnkels var ólýsanlega sterkt og hann horfði alltaf á afa sinn með lotningu sem sagði meira en þúsund orð. Þú varst og ert hans besti. Takk elsku pabbi, fyrir allt og allt. Það eru forréttindi að vera dóttir þín. Ég elska þig til tungls- ins og til baka. Milljón sinnum. Minning þín lifir með mér og lýsir leið mína. Þín dóttir, Sigríður (Sigga Stína). Bjarta brosið, styrkar hendur, hlý sálin þín. Við áttum ólýsanlegt samband, ég og þú. Ég bíð enn eft- ir að þú birtist í dyrunum með gleraugun og leikir við mig. Þú barst mig í gegnum margar þraut- irnar með gleði í hjarta, varst styrkur minn á erfiðum tímum og gleði mín á góðum stundum. Sálir okkar verður aldrei hægt að skilja að. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Hjartans þakkir fyrir allar góðu stundirnar í hlýjum faðmi þínum, elsku afi. Góður Guð styrki elsku ömmu mína. Þinn, Hrafnkell. Tíminn flýgur, ógnar hraði Blómstrar upp fjölskyldutré, enginn vafi Þú ert mitt lífvesti, í miðju hafi Frá styrk með ást til öryggis Hvíldu vel elsku afi Takk fyrir allar góðu stundirn- ar okkar, elsku afi minn. Hlýjan þín og minningin um þig verður okkar ljós um ókomna tíð. Þinn, Björn Leví. Í bernskuminningum er Hrafn- kell bróðir minn ljóslifandi. Hann var orðinn unglingur þegar ég man fyrst eftir mér og bjó hjá afa og ömmu. Fallegur drengur, líkur mömmu, hæglátur og ljúfur. Við yngri krakkarnir í fjölskyldunni fengum að skoða dótið hans, sem var bæði skrýtið og skemmtilegt, og leika okkur með það. Svartur haus sem gleypti peninga, skuggamyndavél og hreyfimynda- vél, Þetta voru undratæki í barns- minninu. Brósi, eins og hann var kallaður, var einstaklega góður við okkur yngri krakkana, þolin- móður og skemmtilegur. Í sumar- bústaðnum stóð hann fyrir veiði- ferðum í nærliggjandi vatn, síðan voru fiskarnir steiktir yfir eldi og borðaðir hálfhráir af bestu lyst. Hann stóð líka fyrir sundi í smá- hyl í ánni og mörgum skemmti- legum ævintýraferðum. Ég minn- ist þess að hann bauð mér nokkrum sinnum í bíó og var þá ekki endilega að velja barnamynd- ir, þessar ferðir enduðu líklega flestar með því að ég hallaði mér upp að honum og sofnaði vært. Brósi var mjög ungur þegar hann fór til sjós. Hann kom þá gjarnan færandi hendi heim eftir siglingar með sælgæti og smádót. Strax á unglingsárum varð hann góður dansari og heillaðist af rokkinu. Hann sýndi rokkdans á veitingahúsum og mér fannst hann sannkallaður rokkkóngur og var afar stolt af honum. Bára kær- astan hans kom svo inn í fjölskyld- una þegar þau eru bæði rétt um tvítugt. Hún var ljóshærð, blá- eygð og gullfalleg stúlka, og ekki síður dugleg og myndarleg. Þau hófu sambúð og fóru að eignast sín börn og samband þeirra var traust og fallegt. Þau eignuðust gott heimili og voru umhyggju- samir og góðir foreldrar barna sinna. Brósi var handlaginn og naut sín vel þegar hann var að dytta að heimilinu, breyta bæta og laga. Hann hélt áfram að fara í veiði- ferðir svo lengi sem hann hafði heilsu til. Hann hélt líka dans- kunnáttunni við og átti það til á góðum stundum að sveifla okkur systrum sínum og Báru í dansin- um. Hann lifði fyrst og fremst fyr- ir fjölskyldu sína og hugsaði af umhyggju um þau öll. Ég átti góðan bróður og kveð hann með þakklæti og virðingu. Báru, Þóri, Siggu Stínu, Guðrúnu og fjölskyldum þeirra votta ég samúð mína. Blessuð sé minning um góðan dreng. Sigrún Ágústsdóttir. Elsku mágur. Nú hefur þú kvatt þennan heim og ert kominn á leiðarenda. Síð- ustu árin hafa verið þér erfið sök- um sjúkdómsins sem lagðist á þinn fallega lífs farveg. Þú varst ávallt traustur fjölskyldumaður og vinur. Við þökkuðum Báru systur fyrir að hafa komið með þig í fjölskylduna okkar. Fjölskyldan var ríkari að hafa þig sem einn af okkur. Við reiddum okkur mikið á þig og ávallt varst þú til staðar. Ef eitt- hvað þurfti að laga, dytta að, kom- ast að hvernig ný tækni virkaði, þá var fjölskyldumantran „hringjum í Kela“ og eftir á „Keli reddaði þessu“. Aldrei kvartaðir þú og aldrei heyrðist þú hallmæla nokkrum manni. Það var alltaf stutt í stríðni og hlátur þegar þú varst viðstaddur. Kímnigáfan þín var frá hjartanu og ávallt leið manni vel í þinni návist. Hjartans Bára okkar, þú hefur misst sálufélaga þinn og sorgin er mikil fyrir þig. Þið Keli kynntust ung að árum og mynduðuð ynd- islegt líf fyrir ykkur, börnin þrjú og barnabörnin. Fjölskyldulífið var ykkur allt og það vissu allir. Við erum vissar að Keli veit hversu vel þú hugaðir að honum hans síðustu ár. Nú er hann kom- inn í frið og ró. Elsku Keli okkar, þér hefur verið mikið fagnað af þeim sem á undan okkur eru farin. Okkar er missirinn mikill en það er huggun að vita að nú færðu hvíld. Elsku Bára okkar, Þórir, Sigga Stína, Guðrún og fjölskyldur, okk- ar innilegu samúðarkveðjur og megi Guð styrkja ykkur. Þórdís og Jóhanna. Hrafnkell Óskarsson hafði sér- staka nærveru – hlýr, ljúfur, bros- mildur, notalegur – góður maður. Stærstur og bestur var hann í hlutverki fjölskylduföðurins. Sem ástin hennar Báru og eiginmaður – pabbinn skemmtilegi, afinn vilj- ugi. Svona sé ég Hrafnkel, sem nú hefur kvatt. Eftir sár veikindi sem tóku hann og tóku á ástvini hans. Söknuður fylgir kveðjustundum en einmitt þá er mjög mikilvægt að muna gleðina yfir öllum góðu minningunum. Minningum sem Hrafnkell skapaði með lífi sínu. Við Hrafn- kell vorum móðurafi og föður- amma fallegu, yndislegu bræðr- anna – Björns Levís og Hrafnkels, Siggu Stínu og Björnssona, þeir eru barnabörnin okkar kæru. Sá yngri, Hrafnkell nafni hans, er „einstakur drengur“. Drengur sem þarf sérstaka umönnun, drengur sem afi nafni tók undir sinn stóra verndarvæng – umvafði og hlúði að á sinn mjúka hátt. Með mildi og elsku, gleði og þolinmæði. Það var unun að sjá þá nafna sam- an – Hrafnkell yngri ljómaði þeg- ar Hrafnkell eldri birtist. Þeir töl- uðu saman á sínu máli, nutu samvista innilega – milli þeirra kærleiksstrengur sterkur. Hrafnkell var hagleiksmaður – allt lék í höndunum á honum. Oft- ar en ekki hitti ég hann hjá dóttur hans og dóttursonum að hjálpa við að fegra heimili og garð. Alltaf tilbúinn með Báru sína sér við hlið. Hrafnkell og Bára voru falleg hjón, bundust ung ástarinnar böndum, samstíga í lífi og leik, vin- irnir bestu. Ég kveð góða mann- inn og elskaða ættföðurinn Hrafn- kel Óskarsson, ég þakka honum af alhug fyrir allt sem hann var son- arsonum mínum. Spámaðurinn Kahlin Gibran sagði: Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns?“ Guð veri með Hrafnkeli Ósk- arssyni á nýjum leiðum í ljóssins landi – Guð veri með Báru hans og börnunum þeirra öllum. Helga Mattína Björnsdóttir. Hrafnkell Óskarsson Elskuleg systir okkar og mágkona, MARÍA GRÉTA SIGURÐARDÓTTIR ABBEY frá Sandgerði, lést á heimili sínu í Maryland, USA, 3. janúar. . Systkini, tengdafólk og fjölskyldur, Hafsteinn Guðnason. Ástkær móðir, tengdamamma, amma og langamma, GUÐLAUG Ó. JÓNSDÓTTIR, lést á Landspítalanum 11. janúar. Útför auglýst síðar. . Smári Hauksson, Sigurrós Einarsdóttir, Haukur Hauksson, Hilde Kjerstin Kaasa, Ingi Hauksson, Súsanna Andreudóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, ERLA BJARNADÓTTIR, Aflagranda 40, Reykjavík, lést á Landakoti laugardaginn 7. janúar. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. janúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Krabbameinsfélagið njóta þess. . Regína, Ragnheiður og Kári Harðarbörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STELLA BERGLIND HÁLFDÁNARDÓTTIR, lést á heimili sínu 24. desember 2016. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. . Viðar Guðmundsson, Sólrún Viðarsdóttir, Jón Wendel, Brynjar Viðarsson, Gyða Björnsdóttir, Agnes Viðarsdóttir, Þórir Magnússon, Hilmar Viðarsson, Erla Björgvinsdóttir, Heiða Viðarsdóttir, Kristján Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.