Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017 Bandaríska leikkonan Natalie Port- man segir leikarann Ashton Kutch- er hafa fengið þrisvar sinnum hærri laun en hún fékk fyrir leik sinn í kvikmyndinni No Strings Attached. Portman og Kutcher léku saman í myndinni, sem er frá árinu 2011 og flokkast sem róm- antísk gamanmynd. Leikkonan seg- ir þennan mikla launamun kynjanna í Hollywood, sem þó nokkuð hefur verið fjallað um í fjöl- miðlum á síðustu árum, á ábyrgð yfirmanna kvikmyndavera. Hún hafi sætt sig við þennan launamun á sínum tíma þar sem ástæðan hafi verið sögð að Kutcher talaði mun meira í myndinni. Portman greindi frá þessu í viðtali við enska útgáfu tískuritsins Marie Claire. Portman segist ekki hafa verið reið yfir þessu á sínum tíma þó að hún hafi haft ástæðu til að vera það. Auk þess sé erfitt fyrir Hollywood- leikara að kvarta, þar sem þeir séu á mjög háum launum almennt. Hún segir það hins vegar mikið óréttlæti að í Hollywood fái leikkonur um þriðjung þeirra launa sem karl- arnir fái. Á vinnumarkaði almennt fái konur svo um 80% þeirra launa sem karlar fái. Óréttlæti Natalie Portman fékk um þriðjung launa Ashtons Kutcher. Fékk þriðjung launa Kutcher Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við höfum oftast litið á landsbyggð- ina sem okkar vettvang og sýnt vítt og breitt um landið. Okkur fannst hins vegar nauðsynlegt að kíkja í kaupstaðinn og sendum Þjóðleik- húsinu fyrirspurn um hvort menn þar á bæ hefðu áhuga á að hýsa sýn- inguna í ljósi þess hversu margir í Reykjavík væru að spyrja um sýn- inguna. Svarið reyndist já og hingað erum við komnir,“ segir Elfar Logi Hannesson forsprakki Kómedíuleik- hússins á Ísafirði, um leiksýninguna Gísli á Uppsölum sem tekin verður til sýningar í Kúlunni í Þjóðleikhús- inu í kvöld kl. 19.30. Alls verða sýnd- ar sex sýningar á einleiknum til og með 25. janúar og eru miðar seldir á vefnum tix.is. Gísli á Uppsölum er 40. uppfærsla Kómedíuleikhússins, fyrsta atvinnu- leikhússins á Vestfjörðum, á tæp- lega 20 árum, en Kómedíuleikhúsið var stofnað 1997. Sýningin var frum- sýnd í lok september sl. í kirkjunni í Selárdal, þaðan sem horfa mátti heim að söguslóðum á Uppsölum og hefur þegar verið sýnd um tuttugu sinnum víðs vegar um landið. Elfar Logi leikur einbúann Gísla Oktavíus Gíslason, en hann skrifaði handritið í samvinnu við leikstjórann Þröst Leó Gunnarsson. Dramatúrg sýningarinnar er Símon Birgisson, tónlistina samdi Svavar Knútur og lýsingu hannaði Magnús Arnar Sig- urðsson en útlit sýningarinnar var í höndum Elfars Loga og Þrastar Leós. Langur meðgöngutími „Hugmyndin að þessari upp- færslu kemur frá Þresti Leó leik- stjóra. Hann var búinn að láta sig dreyma um það í mörg ár að gera sveitunga sínum úr Bíldudal einhver skil, helst á leiksviðinu. Þar sem ég er líka frá Bíldudal þótti upplagt að við legðum saman list okkar og byggjum til leikverk um þennan frægasta son Arnarfjarðar,“ segir Elfar Logi, en Gísli á Uppsölum er fyrsta samstarfsverkefni þeirra fé- laga. „Þó að við Þröstur Leó séum báðir frá Bíldudal höfum við aldrei unnið saman fyrr en nú. Við höfum hins vegar rætt um það á hverju kenderíi frá því ég útskrifaðist sem leikari 1997 að vinna saman,“ segir Elfar Logi og bendir á að góðir hlut- ir gerist hægt. „Við erum strax byrj- aðir að leggja drög að næstu sýn- ingu saman. Það er ekki seinna vænna að fara að skipuleggja það þegar meðgöngutíminn er þetta langur,“ segir Elfar Logi kíminn. Að sögn Elfars Loga tóku þeir Þröstur Leó sér góðan tíma til að þróa handritið að sýningunni. „Við vissum að þetta yrði viðkvæmt efni. Gísli er þjóðinni mjög hugleikinn. Fólki þykir verulega vænt um hann og er jafnframt forvitið um sögu hans. Þegar það fór að kvisast út að við værum að vinna sýningu um Gísla heyrðum við ýmsar áhyggju- raddir þar sem fólk óttaðist að við ætluðum að gera grín að honum – sem er alls ekki reyndin. Við gerum þetta af mikilli væntumþykju, enda berum við gífurlega mikla virðingu fyrir honum. Þetta er enginn farsi – frekar þriggja vasaklúta verk,“ seg- ir Elfar Logi og tekur fram að ætl- unin hafi samt verið að segja sögu Gísla án þess að draga neitt undan. Þrír staksteinar verksins „Um 94% leiktextans byggja á orðum Gísla sjálfs, því eftir að hann féll frá kom út lítið rit með ýmsum skrifum sem hann hafði verið að dútla við alla ævi. Þetta fannst hér og þar á ýmiss konar bréfasnifsum og inni í bókum, s.s. ljóð, æskuminn- ingar, móðurminning og bókadóm- ar,“ segir Elfar Logi og vísar þar til bókarinnar Eintal sem út kom 1987 ári eftir andlát Gísla. Að sögn Elfars Loga má segja að í einleiknum séu þrír staksteinar. „Fyrst ber að nefna hið heiftarlega einelti sem hann varð fyrir í æsku og mótaði ævi hans. Því næst er það höfnunin, en stúlkan sem hann elsk- aði hryggbraut hann. Loks er það loforðið sem hann gaf mömmu sinni. Þegar hann vildi fara suður að mennta sig bað mamma hans hann að skilja sig ekki eina eftir og hét hann því að fara hvergi, sem hann stóð alla tíð við og var í sinni sveit alla ævi,“ segir Elfar Logi og bendir á að Gísli hafi skrifað af miklu innsæi og á heimspekilegum nótum um stöðu sveitarinnar. „Þegar hann er að alast upp bjuggu hundrað manns í Selárdal, en þegar hann er kominn á efri ár voru aðeins þrír bæir í byggð og brátt fóru tveir þeirra í eyði. Hann skilur það vel að æskan vilji fara suður, enda vildi hann það sjálfur.“ Átakanlega mikil saga Inntur eftir því hvort það taki á að túlka Gísla á leiksviðinu svarar Elf- ar Logi því játandi. „Það er alveg óhætt að segja að þetta er það erf- iðasta sem ég hef nokkurn tímann gert. Yfirleitt, og eftir því sem mað- ur eldist, fer mörinn að leka af manni þegar maður leikur. Gísli hafði hins vegar allan sinn tíma og því er þetta engin fimleikasýning. Í þessari sýningu er það sálin sem er þreytt, því maður er andlega þreytt- ur eftir hverja sýningu. Þetta er mikil og átakanleg saga,“ segir Elf- ar Logi og bendir á að boðið sé upp á umræður að loknum öllum sýn- ingum, en leikurinn tekur um 50 mínútur í flutningi. „Umræðurnar hafa gefist vel. Sýningin veltir upp mörgum spurningum og getur verið býsna erfið. Ég er því alls ekkert móðgaður þó að áhorfendur klappi ekki. Þetta er bara þannig stund.“ „Það erfiðasta sem ég hef gert“  Kómedíuleikhúsið sýnir Gísla á Uppsölum í Kúlunni  Leiktextinn byggir að mestu á skrifum Gísla sjálfs Klapp „Sýningin veltir upp mörgum spurningum og getur verið býsna erfið. Ég er því alls ekkert móðgaður þó að áhorfendur klappi ekki,“ segir Elfar. Guðrún Antonsdóttir lögg. fasteignasali Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu. Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð. Núna er tækifærið ef þú vilt selja. Hringdu núna í 697 3629 og fáðu aðstoð við að selja þína eign, hratt og vel. Ánægjuleg viðskipti er mitt loforð til þín. Ertu í söluhugleiðingum? Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | anton@garun.is | garun.is Miðasala og nánari upplýsingar 2D ÍSL TAL - SÝND KL. 5 2D ENS TAL - SÝND KL. 8, 10.40 2D ENS TAL - SÝND KL. 5, 8 TILBOÐ KL 5 GLEÐILEGT NÝTT ÁR SÝND KL. 5 SÝND KL. 10.25 SÝND KL. 8, 10.15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.