Morgunblaðið - 13.01.2017, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017
Bandaríska leikkonan Natalie Port-
man segir leikarann Ashton Kutch-
er hafa fengið þrisvar sinnum
hærri laun en hún fékk fyrir leik
sinn í kvikmyndinni No Strings
Attached. Portman og Kutcher
léku saman í myndinni, sem er frá
árinu 2011 og flokkast sem róm-
antísk gamanmynd. Leikkonan seg-
ir þennan mikla launamun
kynjanna í Hollywood, sem þó
nokkuð hefur verið fjallað um í fjöl-
miðlum á síðustu árum, á ábyrgð
yfirmanna kvikmyndavera. Hún
hafi sætt sig við þennan launamun á
sínum tíma þar sem ástæðan hafi
verið sögð að Kutcher talaði mun
meira í myndinni. Portman greindi
frá þessu í viðtali við enska útgáfu
tískuritsins Marie Claire.
Portman segist ekki hafa verið
reið yfir þessu á sínum tíma þó að
hún hafi haft ástæðu til að vera það.
Auk þess sé erfitt fyrir Hollywood-
leikara að kvarta, þar sem þeir séu
á mjög háum launum almennt. Hún
segir það hins vegar mikið óréttlæti
að í Hollywood fái leikkonur um
þriðjung þeirra launa sem karl-
arnir fái. Á vinnumarkaði almennt
fái konur svo um 80% þeirra launa
sem karlar fái.
Óréttlæti Natalie Portman fékk um
þriðjung launa Ashtons Kutcher.
Fékk þriðjung launa Kutcher
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við höfum oftast litið á landsbyggð-
ina sem okkar vettvang og sýnt vítt
og breitt um landið. Okkur fannst
hins vegar nauðsynlegt að kíkja í
kaupstaðinn og sendum Þjóðleik-
húsinu fyrirspurn um hvort menn
þar á bæ hefðu áhuga á að hýsa sýn-
inguna í ljósi þess hversu margir í
Reykjavík væru að spyrja um sýn-
inguna. Svarið reyndist já og hingað
erum við komnir,“ segir Elfar Logi
Hannesson forsprakki Kómedíuleik-
hússins á Ísafirði, um leiksýninguna
Gísli á Uppsölum sem tekin verður
til sýningar í Kúlunni í Þjóðleikhús-
inu í kvöld kl. 19.30. Alls verða sýnd-
ar sex sýningar á einleiknum til og
með 25. janúar og eru miðar seldir á
vefnum tix.is.
Gísli á Uppsölum er 40. uppfærsla
Kómedíuleikhússins, fyrsta atvinnu-
leikhússins á Vestfjörðum, á tæp-
lega 20 árum, en Kómedíuleikhúsið
var stofnað 1997. Sýningin var frum-
sýnd í lok september sl. í kirkjunni í
Selárdal, þaðan sem horfa mátti
heim að söguslóðum á Uppsölum og
hefur þegar verið sýnd um tuttugu
sinnum víðs vegar um landið. Elfar
Logi leikur einbúann Gísla Oktavíus
Gíslason, en hann skrifaði handritið
í samvinnu við leikstjórann Þröst
Leó Gunnarsson. Dramatúrg
sýningarinnar er Símon Birgisson,
tónlistina samdi Svavar Knútur og
lýsingu hannaði Magnús Arnar Sig-
urðsson en útlit sýningarinnar var í
höndum Elfars Loga og Þrastar
Leós.
Langur meðgöngutími
„Hugmyndin að þessari upp-
færslu kemur frá Þresti Leó leik-
stjóra. Hann var búinn að láta sig
dreyma um það í mörg ár að gera
sveitunga sínum úr Bíldudal einhver
skil, helst á leiksviðinu. Þar sem ég
er líka frá Bíldudal þótti upplagt að
við legðum saman list okkar og
byggjum til leikverk um þennan
frægasta son Arnarfjarðar,“ segir
Elfar Logi, en Gísli á Uppsölum er
fyrsta samstarfsverkefni þeirra fé-
laga. „Þó að við Þröstur Leó séum
báðir frá Bíldudal höfum við aldrei
unnið saman fyrr en nú. Við höfum
hins vegar rætt um það á hverju
kenderíi frá því ég útskrifaðist sem
leikari 1997 að vinna saman,“ segir
Elfar Logi og bendir á að góðir hlut-
ir gerist hægt. „Við erum strax byrj-
aðir að leggja drög að næstu sýn-
ingu saman. Það er ekki seinna
vænna að fara að skipuleggja það
þegar meðgöngutíminn er þetta
langur,“ segir Elfar Logi kíminn.
Að sögn Elfars Loga tóku þeir
Þröstur Leó sér góðan tíma til að
þróa handritið að sýningunni. „Við
vissum að þetta yrði viðkvæmt efni.
Gísli er þjóðinni mjög hugleikinn.
Fólki þykir verulega vænt um hann
og er jafnframt forvitið um sögu
hans. Þegar það fór að kvisast út að
við værum að vinna sýningu um
Gísla heyrðum við ýmsar áhyggju-
raddir þar sem fólk óttaðist að við
ætluðum að gera grín að honum –
sem er alls ekki reyndin. Við gerum
þetta af mikilli væntumþykju, enda
berum við gífurlega mikla virðingu
fyrir honum. Þetta er enginn farsi –
frekar þriggja vasaklúta verk,“ seg-
ir Elfar Logi og tekur fram að ætl-
unin hafi samt verið að segja sögu
Gísla án þess að draga neitt undan.
Þrír staksteinar verksins
„Um 94% leiktextans byggja á
orðum Gísla sjálfs, því eftir að hann
féll frá kom út lítið rit með ýmsum
skrifum sem hann hafði verið að
dútla við alla ævi. Þetta fannst hér
og þar á ýmiss konar bréfasnifsum
og inni í bókum, s.s. ljóð, æskuminn-
ingar, móðurminning og bókadóm-
ar,“ segir Elfar Logi og vísar þar til
bókarinnar Eintal sem út kom 1987
ári eftir andlát Gísla.
Að sögn Elfars Loga má segja að í
einleiknum séu þrír staksteinar.
„Fyrst ber að nefna hið heiftarlega
einelti sem hann varð fyrir í æsku
og mótaði ævi hans. Því næst er það
höfnunin, en stúlkan sem hann elsk-
aði hryggbraut hann. Loks er það
loforðið sem hann gaf mömmu sinni.
Þegar hann vildi fara suður að
mennta sig bað mamma hans hann
að skilja sig ekki eina eftir og hét
hann því að fara hvergi, sem hann
stóð alla tíð við og var í sinni sveit
alla ævi,“ segir Elfar Logi og bendir
á að Gísli hafi skrifað af miklu
innsæi og á heimspekilegum nótum
um stöðu sveitarinnar. „Þegar hann
er að alast upp bjuggu hundrað
manns í Selárdal, en þegar hann er
kominn á efri ár voru aðeins þrír
bæir í byggð og brátt fóru tveir
þeirra í eyði. Hann skilur það vel að
æskan vilji fara suður, enda vildi
hann það sjálfur.“
Átakanlega mikil saga
Inntur eftir því hvort það taki á að
túlka Gísla á leiksviðinu svarar Elf-
ar Logi því játandi. „Það er alveg
óhætt að segja að þetta er það erf-
iðasta sem ég hef nokkurn tímann
gert. Yfirleitt, og eftir því sem mað-
ur eldist, fer mörinn að leka af
manni þegar maður leikur. Gísli
hafði hins vegar allan sinn tíma og
því er þetta engin fimleikasýning. Í
þessari sýningu er það sálin sem er
þreytt, því maður er andlega þreytt-
ur eftir hverja sýningu. Þetta er
mikil og átakanleg saga,“ segir Elf-
ar Logi og bendir á að boðið sé upp
á umræður að loknum öllum sýn-
ingum, en leikurinn tekur um 50
mínútur í flutningi. „Umræðurnar
hafa gefist vel. Sýningin veltir upp
mörgum spurningum og getur verið
býsna erfið. Ég er því alls ekkert
móðgaður þó að áhorfendur klappi
ekki. Þetta er bara þannig stund.“
„Það erfiðasta
sem ég hef gert“
Kómedíuleikhúsið sýnir Gísla á Uppsölum í Kúlunni
Leiktextinn byggir að mestu á skrifum Gísla sjálfs
Klapp „Sýningin veltir upp mörgum spurningum og getur verið býsna erfið.
Ég er því alls ekkert móðgaður þó að áhorfendur klappi ekki,“ segir Elfar.
Guðrún Antonsdóttir
lögg. fasteignasali
Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu.
Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð.
Núna er tækifærið ef þú vilt selja.
Hringdu núna í 697 3629
og fáðu aðstoð við að selja
þína eign, hratt og vel.
Ánægjuleg viðskipti er mitt loforð til þín.
Ertu í söluhugleiðingum?
Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | anton@garun.is | garun.is
Miðasala og nánari upplýsingar
2D ÍSL TAL - SÝND KL. 5
2D ENS TAL - SÝND KL. 8, 10.40 2D ENS TAL - SÝND KL. 5, 8
TILBOÐ KL 5
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
SÝND KL. 5 SÝND KL. 10.25 SÝND KL. 8, 10.15