Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017 Fangar telja að viðveruskylda um kvöldmat á Áfangaheimilinu Vernd samrýmist illa vinnu sem þeir eiga kost á og einnig stundum námi. Nám og vinna er síðan skilyrði fyrir því að þeir geti afplánað á heimilinu. Dómþoli, sem afplánar fangelsis- refsingu eða vararefsingu fésektar, getur sótt um að afplána hluta hennar á Áfangaheimili Verndar til að aðlag- ast lífinu utan fangelsis. Skilyrði er að hann stundi vinnu, nám, starfsþjálfun eða meðferð. Í reglum Fangelsis- málastofnunar frá 28. desember sl. er kveðið á um að fanga er óheimil úti- vist á nóttunni. Þá skulu allir mæta í hús á kvöldverðartíma virka daga, fyrir klukkan 18 og dvelja til kl. 19. Aldrei komið í veg fyrir nám Einstakir fangar og Afstaða sem er trúnaðarráð fanga gagnrýna regluna um viðveru á Vernd um kvöldmatar- leytið. Telja þeir ekki að slíkar höml- ur þjóni sérstökum tilgangi enda gangist einstaklingurinn undir það að ávallt sé hægt að ná í hann símleiðis. Í tillögu Afstöðu, sem birt er á vef fé- lagsins, kemur fram að algengt sé að einstaklingar sem eru að feta sig út í lífið taki að sér störf í þjónustugrein- um og iðnaði. Vinnu í verslun, bygg- ingariðnaði eða á skyndibitastað sé vart lokið um klukkan 17 þannig að viðkomandi geti komið sér í tíma á dvalarstað. Þá séu dæmi um að nám, til dæmis til matsveins og háskóla- nám í fjarnámi, hefjist klukkan 17 og standi fram eftir kvöldi. Í svari frá Fangelsismálastofnun kemur fram að Vernd telji mikilvægt að allir komi saman eftir daginn til að fara yfir stöðu þeirra. Með því móti sé hægt að hafa eftirlit með mönnum, til dæmis hvort þeir séu í neyslu. Fram kemur að Vernd telji þessa reglu grundvallaratriði fyrir starfsemina og því standi ekki til að endurskoða hana. Erla Kristín Árnadóttir, sviðsstjóri fullnustusviðs Fangelsismálastofnun- ar, segir að þessi regla hafi ekki valdið teljandi vandræðum. Vernd hafi veitt undanþágur, til dæmis vegna náms, og hafi viðveruskyldan aldrei komið í veg fyrir nám manna. Það hafi til dæmis gerst þegar próf hafi verið á kvöldmatartíma. Sama eigi við ef fangar hafa þurft að fara til læknis á þessum tíma. helgi@mbl.is Vilja sleppa síðdeg- isviðverunni á Vernd  Fangar telja að viðveran hamli námi og störfum Morgunblaðið/Eggert Áfangi Heimilislegt er á áfangaheimilinu hjá Vernd. Hópurinn kemur allur saman á kvöldmatartíma virka daga. Það er liður í eftirliti með föngum. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Skráaskiptanetsíðan deildu.net er nú orðin aðgengileg undir nýju léni sem hleypir notendum framhjá lög- banni, sem samtök rétthafa fengu sett á síðuna. Hingað til hafa not- endur ýmist notast við svonefndar DNS-hjáleiðir til þess að komast að síðunni en nú er slíkt óþarfi. Með nýja léninu er farið beint á inn- skráningarsíðu deildu.net. Miklar efasemdir hafa verið um hvort lög- bannið, sem sett var á síðuna í októ- ber 2014 myndi skila tilskildum ár- angri. Má t.d. nefna að sama dag og lögbannið tók gildi var sett upp lén- ið iceland.pm sem speglaði notendur á deildu.net. Þrátt fyrir þetta segir Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmda- stjóri STEF, Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar, að heim- sóknir á síðuna eftir lögbannið hafa minnkað, en STEF var hluti af þeim hópi samtaka sem fóru fram á lög- bannið. „Við sáum síðurnar hrapa niður á lista yfir mest sóttu síðurnar hér á landi stuttu eftir lögbannið.“ Vefsvæðið ólögmætt Guðrún segir einnig að þrátt fyrir að nýtt lén geri vefinn aðgengilegan án hjáleiða sé líklega hægt að loka á það án þess að fara í annað dóms- mál. „Við höfum gert samkomulag við stærstu fjarskiptafyrirtækin sem voru í fyrri lotu lögbannsmálanna, þar sem kveðið er á um að það sé búið að dæma viðkomandi vefsvæði ólögmætt burtséð frá því hvaða lén er notað til að komast þangað. Við ættum því að geta óskað eftir lokun, þrátt fyrir að það sé komið nýtt lén.“ Á vefsíðunni deildu.net kemur ekki fram hverjir eru eigendur hennar en vefsíðan er skráð erlend- is. Miklu af íslensku efni er deilt þar án leyfis. Sjónvarpsþátturinn Satt eða logið, sem frumsýndur var 8. janúar síðastliðinn hefur verið sótt- ur 1.517 sinnum svo dæmi sé tekið. Nýtt lén sem leið framhjá lögbanni  Deildu.net aðgengilegt með nýju léni  DNS-hjáleiðir ekki nauðsyn Getty Images Niðurhal Íslenskt efni er aðgengi- legt á deildu.net án leyfis. Vilhjálmur A. Kjartansson Viðar Guðjónsson Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega allan undirbúning og að- draganda að mótun nýrrar mennta- stefnu, sem samþykkt var á fundi borgarstjórnar á þriðjudag. „Ég lýsi undrun minni á því að borgarstjóri telji eðlilegt að ráða hóp innlendra og erlendra ráðgjafa undir forystu finnska fræðimanns- ins Pasi Sahlberg áður en málið er kynnt borgarstjórn. Það er sjálf- sagt að heyra hans sjónarmið en í stefnumótunarvinnu í menntamál- um er mikilvægt að leita fanga sem víðast og rétt að sá hópur, sem val- inn verður til að sinna verkefninu, hafi fullt frelsi til að velja sér ráð- gjafa,“ segir Kjartan en skipað hef- ur verið í þverpólitískan stýrihóp með það að markmiði að hægt verði að samþykkja nýja menntastefnu Reykjavíkurborgar til 2030 um miðjan nóvember á þessu ári. „Boð- að var til fundar með þessum manni áður en tillaga um að hefja um- rædda stefnumótun var lögð fram og áður en skipað hafði verið í stýrihóp verkefnisins, án nokkurs samráðs við fulltrúa minnihluta borgarstjórnar. Ég lýsi yfir furðu á þessum vinnubrögðum og óskað eft- ir því að betur verði staðið að fram- haldi verkefnisins.“ Viðurkennir ranga ákvörðun Kjartan segir rétt að fagna til- lögu um að halda skuli áfram lang- tímastefnumótun í menntamálum en slík stefnumótun hófst að frum- kvæði Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks í febrúar 2009 þegar sérstök tillaga um málið var sam- þykkt í borgarstjórn. „Þetta er við- urkenning á því að ákvörðun Sam- fylkingar og Besta flokks að hætta allri stefnumótunarvinnu árið 2010 hafi verið röng. Reynslan hefur sýnt að það var rangt að hætta um- ræddri stefnumótun á miðri leið. Slælega hefur verið staðið að yf- irstjórn menntamála hjá Reykjavík- urborg frá árinu 2010 og í fram- kominni gagnrýni frá fagfólki í skólamálum sem og foreldrum hef- ur oftar en ekki verið nefnt að skortur sé á stefnumótun í mála- flokknum,“ segir Kjartan. Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingar og formaður skóla- og frístundaráðs segist hafa skiln- ing þessum sjónarmiðum Kjartans sem fram komu á fundi borgar- tjórnar. Málið hafi atvikast þannig að tækifæri hafi verið notað til að ræða við Sahlberg á ráðstefnu í Kanada fyrir tæpum tveimur árum til að velta því upp hvort hann væri fáanlegur til að vinna með borginni að mótun menntastefnu. „Stóra verkefnið í þessu samhengi er að fá svona mann til þess að samþykkja að vinna með okkur. Það er eitt að taka umræðu um það hverja væri gaman að fá í svona vinnu en stærsta verkefnið er að fá slíkan feng til liðs við okkur,“ segir Skúli. Undrast vinnubrögð meirihlutans  Hópur innlendra og erlendra ráðgjafa við mótun menntastefnu Reykjavíkur áður en borgarstjórn var kynnt málið  Gagnrýnir að vinnu hafi verið hætt 2010  Skúli segir liðsinni Finnans mikilvægast Byggingafélag námsmanna mun byggja 250-300 íbúðir fyrir fé- lagsmenn sína á næstu árum. Dag- ur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Salome Guðmunds- dóttir, formaður stjórnar Bygg- ingafélags námsmanna, og Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri félags- ins, skrifuðu í gær undir vilja- yfirlýsingu þessa efnis. Í tilkynn- ingu frá Reykjavíkurborg segir að borgin veiti vilyrði fyrir 100 íbúð- um á KHÍ reit í Stakkahlið. Kann- aður verði möguleiki á að fjölga íbúðum Byggingafélags náms- manna í Grafarholti. Þá var lýst yfir vilja til við- ræðna við ríkissjóð um að fá afnot af hluta af lóð Sjómannaskólans við Háteigsveg 35-39 og að endur- skoða deiliskipulag á lóð á Há- teigsvegi 31-33 og reisa þar um 50 íbúðir. Ljósmynd/Reykjavíkurborg Reistar verði 250- 300 íbúðir Karl á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tekið fyrrver- andi kærustu sína hálstaki og ýtt henni upp að þaki bifreiðar sem hann ók meðan konan var til hálfs út úr henni. Þá hafi konan haldið í stýri bifreiðarinnar og dregist með henni, uns maðurinn stöðvaði bílinn við Haukatorg á Völlunum í Hafn- arfirði. „Með háttseminni stofnaði ákærði á ófyrirleitinn hátt lífi og heilsu … í augljósan háska,“ segir í ákærunni. Þar er tilgreindur ýmis miski og meiðsli sem konan varð fyrir. Þá tapaði hún í þessum atgangi heyrn- artæki auk þess sem maðurinn beygði með handafli og eyðilagði farsíma konunnar. Vegna alls þessa þjáðist hún af áfallastreituröskun, eins og mat sálfræðings sýndi en það var meðal málsskjala. Héraðsdómur taldi að sjö mánaða fangelsisvist, bundin skilorði til tveggja ára, væri hæfleg refsing mannsins sem jafn- framt skal greiða konunni um 900 þús. kr. í miskabætur. sbs@mbl.is Skilorðsdómur fyrir árás og glæfraakstur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.