Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017
www.gilbert.is
SJÓN ER SÖGU RÍKARI !
Dagur B. Eggertsson borgarstjóriog Hjálmar Sveinsson, formað-
ur umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar, tjáðu sig einum
rómi í gær um að svo virtist sem litlu
munaði á skoðunum
nýs samgönguráðherra
og þeirra sjálfra um
Reykjavíkurflugvöll.
Þetta er umhugs-unarvert og full
ástæða fyrir ráð-
herrann að velta þess-
um viðbrögðum meiri-
hlutans í Reykjavík
fyrir sér.
Jón Gunnarsson sam-gönguráðherra hefur talað með
allskýrum hætti um að Reykjavík-
urflugvöllur verði í Vatnsmýrinni í
næstu framtíð og að þar þurfi að hefja
uppbyggingu. En orð ráðherrans
hafa bersýnilega ekki verið nægilega
skýr fyrir meirihlutann í Reykjavík.
Hver skyldi skýringin vera á því?
Ekki þarf að efast um vilja Dagsog Hjálmars til að misskilja Jón
á þennan veg, en fleira kemur til.
Það þarf að tala enn skýrar.
Nauðsynlegt er að ríkisvaldið takiaf skarið um að í Vatnsmýrinni
verði flugvöllur og að ekki standi til
að breyta því.
Þá þarf að liggja fyrir að flugvöll-urinn eigi að vera í fullri starf-
semi og verði ekki lokað að hluta.
Þetta felur í sér að neyðarbrautin
verði opnuð á ný.
Ekki er ástæða til að efast um aðráðherrann sé þessarar skoð-
unar. Nú er tímabært að eyða óviss-
unni.
Nauðsynlegt að
eyða misskilningi
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Jón
Gunnarsson
Veður víða um heim 12.1., kl. 18.00
Reykjavík -6 skýjað
Bolungarvík -6 alskýjað
Akureyri -11 léttskýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn -1 snjóél
Ósló 1 léttskýjað
Kaupmannahöfn 2 léttskýjað
Stokkhólmur 1 snjókoma
Helsinki -3 snjókoma
Lúxemborg 3 alskýjað
Brussel 5 rigning
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 1 skúrir
London 5 rigning
París 6 rigning
Amsterdam 5 skúrir
Hamborg 3 léttskýjað
Berlín 3 skýjað
Vín 2 skýjað
Moskva -7 snjóél
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 14 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 6 rigning
Aþena 7 heiðskírt
Winnipeg -18 alskýjað
Montreal 3 rigning
New York 12 heiðskírt
Chicago -4 snjókoma
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:59 16:15
ÍSAFJÖRÐUR 11:32 15:52
SIGLUFJÖRÐUR 11:16 15:34
DJÚPIVOGUR 10:35 15:38
Sóknarprestur og formaður sóknar-
nefndar Hafnarfjarðarkirkju harma
að þjófnaður í kirkjunni hafi verið
tengdur við tiltekna aðila, eins og
AA-fólk sem sækir fundi í Góðtempl-
arahúsinu sem er skammt frá kirkj-
unni. Í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Ottó R. Jónssyni, staðarhaldara
í Hafnarfjarðarkirkju, að fólk af
ýmsu sauðahúsi sækti fundina og
tengdi hann þjófnaðina jafnvel við
„óprúttna aðila“ í þeim hópi. Í sömu
frétt var það haft eftir Helga Gunn-
arssyni, lögreglufulltrúa í Hafnar-
firði, að ekkert samband væri á milli
fólksins sem sækir fundina og þjófn-
aðanna.
Í yfirlýsingu frá Jóni Helga Þór-
arinssyni, sóknarpresti Hafnarfjarð-
arkirkju, og Magnúsi Gunnarssyni,
formanni sóknarnefndar kirkjunnar,
segir: „Vegna ummæla kirkjuvarðar
Hafnarfjarðarkirkju sem birtust í
Morgunblaðinu 12. janúar harma
undirritaðir að kirkjuvörðurinn
tengi þjófnað í Hafnarfjarðarkirkju
við ákveðna aðila, eins og AA fólk
sem sækir fundi í Góðtemplarahús-
inu, sem er í nágrenni kirkjunnar.
Slík ummæli eru særandi og óviðeig-
andi og biðjum við hlutaðeigandi af-
sökunar á þeim. Í samræmi við boð-
skap Jesú Krists styður Hafnar-
fjarðarkirkja uppbyggilegt starf AA
samtakanna enda starfa slíkir hópar
m.a. í Hafnarfjarðarkirkju.“
Segja AA-fólk ekki tengjast þjófnaði
Sóknarprestur og formaður sóknarnefndar biðjast afsökunar á ummælum
Morgunblaðið/Ómar
Hafnarfjarðarkirkja Þjófnaðir þar
eru sagðir ótengdir AA-fundum.
Verðið á fyrsta
minkaskinnaupp-
boði ársins hjá Ko-
penhagen Fur var
heldur lægra en var
í lok síðasta sölu-
tímabils en þó að-
eins yfir meðtaltali
ársins. Megnið af
framboðnum skinn-
um seldist. Íslensk-
ir minkabændur
selja skinn sín á danska uppboðinu.
Janúaruppboðið er ekki stórt og oft
hefur verið óvissa með árangurinn
þar. Forstjóri danska uppboðshúss-
ins telur verðið ásættanlegt í upphafi
sölutímabils. Minnir Jesper Ugger-
høj á að offramleiðsla hafi verið á
minkaskinnum síðustu ár og verðið
lágt. Ennþá sé offramboð á mark-
aðnum og þess vegna sé ekki mikil
samkeppni um skinnin. Hann leggur
áherslu á að byrjunin á söluárinu sé
samt sem áður talsvert betri en á síð-
asta ári.
Reiknað er með að 26 milljón
minkaskinn verði boðin upp hjá
Kopenhagen Fur í ár og að staðan
skýrist betur í næsta mánuði.
helgi@mbl.is
Slök byrjun
á sölutíma-
bili skinna
Minkur Skinnin
eru seld til Kína.
Verðlækkun
á minkaskinnum