Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
40 ára
Stýrðu birtunni heima hjá þér
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga
Jólatré hafa gegnt hlutverki sínuinnanhúss í bili og flest ef ekki öll
sveitarfélög, nema það fjölmennasta,
sjá sóma sinn í því að koma þeim á
endurvinnslustöðvar. Borgarstjóri
er samur við sig, þegar almenn þjón-
usta við íbúa er til umræðu, og aug-
lýsir að endurvinnslustöðvar Sorpu
taki við trjánum endurgjaldslaust.
x x x
Flest ef ekki öll sveitarfélög, fyrirutan það fjölmennasta, annast
sorphirðu samkvæmt sorphirðu-
dagatali. Íbúar í Reykjavík, sem
verða að vera með tunnur innan-
húss, verða að vera á varðbergi og
fylgjast með sorpbílum á hverjum
degi í hverfinu ætli þeir að losna við
sorpið.
x x x
Einhverjir hafa fylgt ráðleggingumborgarstjóra og haft tunnur úti í
veðri og vindum í þeirri von að þær
verði tæmdar áður en þær fjúka um
koll og sorpið fýkur út um allt. Oftar
en ekki verður þeim ekki að ósk
sinni eins og ruslið um víðan völl ber
með sér. Sumir hafa reyndar að-
stoðað borgarstjóra með því að slá
botninn úr ruslafötum við gangstíga,
sem sýnir að líkur sækir líkan heim.
x x x
Eins og allir vita er borgarstjóri ámóti bílum og öllu sem þeim til-
heyrir. Liður í útrýmingunni er að
halda ekki við götum, hvað þá að
hreinsa þær og næsta umhverfi.
Ætla má að í huga borgarstjóra þríf-
ist íbúarnir best í rusli og skít og því
sé það hagur allra að aðlagast drull-
unni.
x x x
Til þess að auðvelda aðlögunina ergötulýsing í höfuðborginni víða í
lágmarki. Í gamla daga voru menn
framsýnir og settu upp ljósastaura
við götur. Þeir eru þar enn en
borgarstjóri gætir þess að ekki sé
kveikt á öllum perum. Með því dreif-
ir hann flugum í einu feilhöggi, gest-
ir og gangandi, að ekki sé talað um
akandi, sjá illa út úr augum myrk-
ursins vegna, skíturinn þrífst sem
best hann getur og jólatrén fjúka
stefnulaust um borgina. Það eru allt-
af jólin hjá borgarstjóra.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús svaraði: „Já, því sælir eru þeir
sem heyra Guðs orð og varðveita það.“
(Lúk. 11:28)
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... taka frá fyrir hana
bílastæði á rigningar-
kvöldi.
AF HVERJU ELTA HUNDAR
HLUTI SEM ÞEIR VILJA EKKI
NÁ Í RAUN OG VERU?
HRÓLFUR, HALTU Í
HÖNDINA MÍNA
MEÐAN Á LEIKRITINU
STENDUR! JÁ,
ELSKAN…
HVERS VEGNA
SVONA ÞÉTT
TAK?
ÞVÍ AÐ SÍÐAST VARSTU
HLAUPINN ÚT ÁÐUR EN FYRSTI
ÞÁTTURINN ENDAÐI!
„BREYTUM ÞESSU Í „AÐ EILÍFU“.
„UM ALDUR OG ÆVI“ ER FULLÞUNGT
Í VÖFUM OG DRAMATÍSKT.“
„ÉG VEIT EKKI HVERNIG ÞÉR TEKST
AÐ BORÐA ALLT SEM ÉG ELDA OG
ÞYNGJAST SAMT EKKI UM GRAMM.“
ÁI!
RITSTJÓRI
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur reynst nauðsynlegt að
leggja hlustir við því sem fólk segir, þótt ekki
sé það fagurt. Sjálfstraust þitt mun verða
öðrum innblástur og gæfan fylgir þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki vera of yfirþyrmandi í samskiptum
þínum við smáfólkið í dag. Nýja tunglið í dag
er ákjósanlegt tækifæri til að íhuga hvað þú
getur gert til að gera heimilislífið dægilegra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Tengsl myrkursins og ljóssins eru
góð líking fyrir afturkippinn sem þú hefur
fundið fyrir. Hristu upp í rútínunni. Allir sem
eru í þínum innsta hring eru þar af tiltekinni
ástæðu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Fólk virðist þrasgjarnt í dag en sýnir í
raun bara ýtni. Sinntu þeim sem þú vilt halda
en vertu óhræddur við að skera á önnur sem
þér finnst lítið til koma.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sestu niður, búðu til óskalista og láttu
hann síðan verða að veruleika. Þú nærð ár-
angri en færð ekki endilega viðurkenningu,
enda er það ekki takmarkið núna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Farðu eftir hugboði þínu í fjármálum
en forðastu þó að taka óþarfa áhættu.
Stundum ganga hlutirnir vel og stundum
ekki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú ferðu að uppskera árangur erfiðis
þíns bæði í einkalífi og starfi. Láttu smámuni
ekki eyðileggja fyrir þér daginn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú og félagi þinn eruð ósam-
mála um hvernig eyða eigi peningunum skul-
ið þið ræða málin til hlítar. Vertu á höttunum
eftir betri aðstæðum, þannig kemstu að raun
um það.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hvað sem þú ert að reyna að
framkvæma skiptir samkvæmnin mestu
máli. Stuðningur ættingja getur reynst drjúg
hjálp. Reyndu að létta undir með félaga þín-
um.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fjölskyldusamkomur gætu orðið
fjörugar í dag. Ekki vera hræddur við að
skemmta þér við eitthvað sem virðist
ómerkilegt í upphafi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Að kjósa peninga eða hluti fram
yfir fólk veit aldrei á gott. Við þörfnumst öll
uppörvunar ástríkra lærimeistara.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú vilt endilega vera nálægur ein-
hverjum af yfirborðslegum ástæðum – að því
er virðist vera. Vertu þolinmóður.
Stjörnuspá
Ármann Þorgrímsson varð 85 árasl. þriðjudag 10. janúar og
sendir Vísnahorn honum bestu
kveðjur af því tilefni og þakkar hon-
um líflegan og góðan skáldskap. Ár-
mann „horfði til baka“ á Leir á af-
mælisdaginn:
Hugur mig til baka bar
bjartar lýsa minningar
áttatíu árin þar
eru og fimm til viðbótar.
Sigmundur Benediktsson sendi
Ármanni hamingjuóskir á Leir:
Hugarþel til heilla fer
heft í litla stöku.
Bið að gæfan beri þér
blóm á lífsins vöku.
Virkjar jafnan vísan þín
vandans mat og gaman,
hógvær kerskni, háð og grín
hrærð af snilli saman.
Oft þú getur létt mér lund
lipri stöku hlynur.
Lifðu heill um langa stund
Leirsins tryggi vinur.
Ingólfur Ómar tók undir heilla-
óskirnar:
Þinn fær hróður angri eytt
andansgróður seður.
Slyngum ljóðabrandi er beitt
bögur góðar kveður.
Hann bætti við í gær: „Fullt tungl
var í kvöld:“
Kylja næðir kraumar sær
kögur rís á öldu.
Mánaskini mildu slær
á marardjúpin köldu.
Og í gær sagði Ármann á Leirn-
um: „Komið að viðhaldi… :“
Vandamálin virðast smá
velt hef þyngri steinum
en gangtruflanir greina má
geng nú bara á einum.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir leik-
ur sér hér undir limrulagi:
Gunnar Benjamín átti ekki eina
einustu krónuna neina
Í happdrætti hann
þessi hálfviti vann
á miðann sem stal hann frá Steina
Sömuleiðis leikur Páll Imsland sér
þegar hann heilsar leirliði „svona
rétt áður en stjórnin skellur á.
Limra (ekki í tilefni þess), en vonum
samt að ræður stjórnarinnar verði
ekki brenndar marki Hermundar“:
Hermundur Ljótsson á Læk,
löngum hann hafði þann kæk,
að ljúka upp kjafti
og lúðra af krafti,
en röddin var skrykkjótt og skræk.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Afmæliskveðjur til hag-
yrðings og limruleikur