Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017
Patriots Day
Patriots Day er þriðja myndin í röð
þar sem Peter Berg leikstýrir Mark
Wahlberg. Líkt og við á um fyrri
myndirnar tvær, Lone Survivor og
Deepwater Horizon, byggir
Patriots Day á sönnum atburðum.
15. apríl 2013 sprungu tvær
sprengjur með tólf sekúndna milli-
bili við mark maraþonhlaupsins í
Boston með þeim afleiðingum að
þrír áhorfendur létu lífið og 264
slösuðust, margir mjög alvarlega.
Myndin fjallar um það sem gerðist
næst og næstu daga á eftir þegar
árásarmannanna var ákaft leitað.
Aðrir leikarar í aðalhlutverkum
eru Michelle Monaghan, Kevin Ba-
con og John Goodman.
Rotten Tomatoes: 79%
Metacritic: 71/100
Live by Night
Bannárin í Bandaríkjunum sköp-
uðu grundvöll fyrir arðbært svarta-
markaðsbrask með áfengi sem um
leið var vatn á myllur skipulagðra
glæpasamtaka og margra einstak-
linga sem langaði að efnast fljótt
og mikið. Einn þeirra var Joe
Coughlin sem Ben Affleck leikur,
en hann leikstýrir jafnframt mynd-
inni. Hún er gerð eftir einni af
skáldsögum Dennis Lehane. Í öðr-
um aðalhlutverkum eru Scott
Eastwood, Zoe Saldana, Sienna
Miller, Chris Messina, Elle Fanning
og Chris Cooper.
Rotten Tomatoes: 34%
Metacritic: 49/100
Hjartasteinn
Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd
leikstjórans Guðmundar Arnars
Guðmundssonar í fullri lengd, en
meðal fyrri verka hans eru verð-
launastuttmyndirnar Ártún og
Hvalfjörður. Myndin fjallar um vin-
áttu drengjanna Þórs og Kristjáns,
sem alast upp í fámennu sjávar-
þorpi. Á kynþroskaskeiðinu breyt-
ist líf þeirra þegar annar þeirra
verður hrifinn af stúlku á sama
tíma og hinn uppgötvar að hann
ber ástarhug til vinar síns. Sagan í
myndinni mun að hluta til sótt í
reynslubanka Guðmundar Arnars.
Hjartasteinn hefur þegar verið
sýnd á fjölda hátíða erlendis við
góðar viðtökur og sópað að sér
verðlaunum. Hún var fyrsta ís-
lenska kvikmyndin til að keppa á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum,
þar sem hún vann Queer Lion-
verðlaunin. Þeir Baldur Einarsson
og Blær Hinriksson, sem fara með
hlutverk Þórs og Kristjáns í mynd-
inni, voru valdir bestu leikararnir á
kvikmyndahátíðinni í Marrakesh í
Marokkó. Í öðrum aðalhlutverkum
eru Diljá Valsdóttir, Katla Njáls-
dóttir, Jónína Þórdís Karlsdóttir,
Rán Ragnarsdóttir, Nína Dögg Fil-
ippusdóttir, Sveinn Ólafur Gunn-
arsson og Søren Malling.
Klám í Reykjavík
Kvikmyndinni Klám í Reykjavík
eða Reykjavík Porno er lýst sem
norrænni rökkurmynd. Forvitinn
nemandi lætur setja sig úr jafnvægi
við að horfa á klám á netinu. Í
framhaldinu leggur nemandinn,
sem heitir Ingvar og ættaður er ut-
an af landi, upp í hefndarför í
myrkasta skammdeginu í Reykja-
vík. Þá þrjá daga sem myndin ger-
ist býður höfuðborgin upp á ískald-
ar kringumstæður fyrir hefndina.
Ingvar vélar Laufeyju, drykk-
felldan leigusala sinn, til þátttöku í
þráhyggju sinni um nýja foreldra-
klámsíðu sem ungir táningar hafa
komið á fót. Leikstjóri og höfundur
er Graeme Maley. Í aðalhlut-
verkum eru Ylfa Edelstein, Albert
Halldórsson og Þuríður Blær Jó-
hannsdóttir. Myndin er leikin á ís-
lensku.
Bíófrumsýningar
Hryðjuverk, bannár,
æskuást og klám
Lögreglumaður Mark Wahlberg fer með aðalhlutverkið í Patriots Day.
18 ára dóttir Michaels Jackson
heitins, Paris, segist óskaplega
móðguð yfir því að hvítur leikari
hafi verið fenginn til að leika föð-
ur hennar í nýrri sjónvarpsmynd,
Urban Myths, sem framleidd er af
Sky Arts-sjónvarpsstöðinni og hef-
ur að geyma nokkrar stuttar sög-
ur sem allar eru sk. borgarmýtur
eða flökkusögur úr þéttbýli.
Leikarinn sem á í hlut er hinn
enski Joseph Fiennes, en hann
hefur m.a. leikið í kvikmyndunum
Shakespeare in Love og Eliza-
beth. Í myndinni fer Jackson í bíl-
ferð með leikkonunni Elizabeth
Taylor og leikaranum Marlon
Brando frá New York til Los
Angeles, í kjölfar hryðjuverka-
árásanna á Tvíburaturnana í New
York.
Fiennes hefur sjálfur sagst hafa
verið furðu lostinn þegar honum
var boðið hlutverkið enda er fátt
líkt með þeim Jackson.
Paris skrifaði á samskiptavefinn
Twitter að hana langaði mest að
kasta upp eftir að hafa séð mynd-
ir af Fiennes í hlutverki Jacksons.
Fiennes olli
Paris ógleði
Afkáralegur Fiennes í hlutverki
Jacksons í sjónvarpsmyndinni.
Myndin gerist á bannárunum í Bandaríkjunum,
nánar tiltekið í Boston árið 1926, og fjallar um
hóp einstaklinga sem lifir og hrærist í heimi
skipulagðrar glæpastarfsemi.
Metacritic 51/1010
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.50
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 17.00, 20.00, 22.20, 22.50
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.50
Sambíóin Keflavík 20.00
Live By Night
Rogue One:
A Star Wars Story 12
Uppreisnarmenn fara í leið-
angur til að stela teikning-
unum af Helstirninu.
Metacritic 66/100
IMDb 8,3/10
Laugarásbíó 22.25
Sambíóin Álfabakka 17.00,
20.00, 22.20, 22.50
Sambíóin Egilshöll 17.10,
20.00, 22.45
Sambíóin Kringlunni 17.00, 20.00, 22.50
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.50
Passengers 12
Aurora og Jim eru farþegar um borð í geimskipi sem er að flytja
þau til annarra plánetu þar
sem þau munu hefja nýtt líf.
Skyndilega vakna þau í
svefnhylkjunum, 90 árum á
undan áætlun.
Metacritic 41/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 17.10, 19.30,
22.30
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 17.50
The Great Wall 16
Hann er einn af mögnuðustu
afrekum mannkynsins. Það
tók 1.700 ár að byggja þenn-
an 8.800 km langa múr.
Metacritic 36/100
IMDb 6,0/10
Laugarásbíó 20.00, 22.15
Sambíóin Keflavík 22.45
Smárabíó 19.50, 22.45
Borgarbíó Akureyri 22.20
Assassin’s Creed 16
Callum Lynch grípur inn í
sögulega atburði á tímum
spænska rannsóknarrétt-
arins. Hann er afkomandi
hins vígfima Aguilar sem
ásamt félögum sínum barð-
ist gegn óréttlæti.
Metacritic 36/100
IMDb 6,7/10
Sambíóin Keflavík 22.45
Smárabíó 19.50, 22.10
Háskólabíó 21.10
Borgarbíó Akureyri 22.20
Monster Trucks 12
Tripp, miðskólanemi, dreym-
ir um að komast í burtu úr
bænum sem hann ólst upp í.
Hann byggir sér Ofur Jeppa
úr ýmsum dóti og gömlum
bílum.
Metacritic 37/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40
Sambíóin Egilshöll 17.40,
22.10
Sambíóin Akureyri 17.40
Sambíóin Keflavík 17.30
Fantastic Beasts and
Where to Find Them
Ævintýri Newt Scamander í
leynilegu samfélagi norna og
galdramanna í New York.
Bönnuð yngri en 9 ára.
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 20.00
Office Christmas
Party 12
Metacritic 42/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Kringlunni 20.00
Allied
Metacritic 60/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.50
Patriot’s Day 16
Metacritic 70/100
IMDb 7/10
Patriots Day segir frá Ed
Davis, yfirlögregluþjóni
Boston borgar, og atburð-
unum í kring um sprengju-
tilræðið í Boston Maraþon-
inu 2013.
Sambíóin Keflavík 20.00
Háskólabíó 18.00, 21.00
Hjartasteinn
Smárabíó 16.40, 17.00,
18.00, 20.00, 22.10
Háskólabíó 21.00
Why Him? 12
Metacritic 38/100
IMDb 6,5/10
Smárabíó 17.30, 20.00,
22.30
Collateral Beauty Sagan fjallar um mann, sem
eftir mikinn harmleik í lífi
hans, lendir í mikilli sálar- og
tilvistarkreppu.
Metacritic 24/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 22.50
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
Syngdu Kóalabjörninn Buster hefur
mikið verið að spreyta sig í
skemmtanageiranum.
Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 17.00, 17.00,
20.00
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.30
Sambíóin Keflavík 17.30
Smárabíó 15.15, 17.30
Borgarbíó Akureyri 17.50
Vaiana Metacritic 81/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.30
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 17.40
Sambíóin Akureyri 17.40
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 15.30
Sjöundi dvergurinn Sambíóin Álfabakka 15.40
Embrace of The
Serpent
Metacritic 82/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 20.00
Gimme Danger
Bíó Paradís 22.00
Lion Metacritic 68/100
IMDb 7,9/10
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 17.30
Eiðurinn 12
Morgunblaðið bbbbb
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 17.45
Captain Fantastic
Metacritic 72/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 22.30
Fjallkóngar
Háskólabíó 18.10
Graduation
Bíó Paradís 17.30, 22.00
Klám í Reykjavík
Bíó Paradís 20.00
Wayne’s World
Bíó Paradís 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna