Víkurfréttir - 16.09.2004, Page 2
Granít le
Luktir
og vasar
á leiði
lðavellir 9 • Keflavík • Sími 421 3598
Verðlækkun
SAMHÆFNIÍ
HP Compaq nx9105
A2800+
Örgjörvi: AMD Athlon XP-Mobile A2800+
Skjár: 15" XGA, (1024x740)
Minni: 256MB DDR
Harður diskur: 40GB
Drif: DVD/CD-RW skrifari
Fimm minniskortaraufar í einni
Innbyggt þráSlaust netkort: 802.1 Ib/g
Stýrikerfi: Microsoft Windows XP Pro
ÁbyrgS: 2ja ára neytendaábyrgö
Verfc kr. 139.900
■Verð áSui ki. 159.900
= allt er framkvæmanlegt
Hringbraut 96 • Sími 421 7755 • www.samhaefni.is • sala@samhaefni.is
INNRÖMMUN
SUÐURNESJA
-LEGSTEINASALA RAGNARS
> Atvinnuleysi á Suðurnesjum:
Atvinnulausum fækkað
um 130 síðan í febrúar
Atvinnulausum á Suður-
nesjum hefur fækkað
um 54 frá því í júlí og
mælist atvinnuleysi nú 2,5% en
var 3% í júlí. Frá þcssu er
greint í nýútkominni skýrslu
Vinnumálastofnunar. Meðal-
talsatvinnuleysi á landinu öllu
var 2,9% í ágúst.
Alls voru 221 einstaklingur at-
vinnulaus á Suðurnesjum i lok
ágúst. Atvinnuleysi karla mælist
nú 1,6% en var 2% í júli og at-
vinnuleysi kvenna mælist nú
3,8%, en var 4,5% í júlí. Rúm-
lega 350 manns voru atvinnu-
lausir á Suðumesjum í febrúar á
þessu ári og hefur atvinnulausum
þvi fækkað urn 130 manns síð-
ustu 6 mánuði.
Ef atvinnuleysistölur eru skoðað-
ar í hvetju sveitarfélagi fyrir sig á
Suðurnesjum kemur í ljós að í
lok ágústmánaðar voru 181 ein-
staklingur atvinnulaus í Reykja-
nesbæ. í Garðinum var 21 ein-
staklingur atvinnulaus og í
Grindavík og Vogum voru 13
einstaklingar atvinnulausir. I
Sandgerði vom 12 atvinnulausir.
Samkvæmt tölum frá Vinnu-
málastofiiun hafa 57 einstakling-
ar á Suðumesjum verið atvinnu-
lausir i hálft ár eða lengur. 7 ein-
staklingar hafa verið atvinnulaus-
ir lengur en í tvö ár og 27 hafa
verið atvinnulausir í eitt ár eða
lengur.
Samkaup styrkir
Skátafélagið
Samkaup hf. styrkti á dögunum
skátafélagið Heiðabúa í
Reykjanesbæ um 250 þúsund
krónur. ítilkynningu frá Samkaup
segir að ákveðið hafi verið að styrkja
skátafélagið þar sem félagið hafi
sett sér markmið um skátastarf fyrir
börn á aldrinum 7 til 18 ára aldurs.
Skátafélagið Heiðabúar á sér langan
og farsælan feril í æskulýðsstarfi og
er félagið einn af hornsteinum
svæðisins í barna og unglingastarfi.
> Heilbrigðisráðherra fellst á byggingu hjúkrunarheimilis:
Hjúkrunarheimili rís eftir þrjú ár
Heilbrigðisráðherra hef-
ur fallist á hugmyndir
urn byggingu 30 rúma
hjúkrunarheimilis í Reykja-
nesbæ. Gert er ráð fyrir að
hjúkrunarheimilið verði tekið í
notkun árið 2007. Frá þessu
skýrði ráðherra í bréfi sem
sent var til stjórnar Dvalar-
heimilis aldraðra á Suðurnesj-
um, Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja og Reykjanesbæjar.
Árni Sigfússon bæjarstjóri
Reykjanesbæjar fagnar staðfest-
ingu ráðherra. „Hér er að koma
lausn á máli sem hefur legið
þungt á okkur um langan tíma.
Málefni hjúkrunarsjúklinga í
Reykjanesbæ hafa verið í ólestri
vegna tafa á byggingu D-álmu og
síðan breyttra forsenda á rekstri
hennar. Við unnum saman að
íramtíðarlausn og nú hefur hún
verið staðfest af heilbrigðisráð-
herra. Á grundvelli þessarar stað-
festingar vinnum við nú áffam að
skipulagi þjónustusvæðisins og
hjúkrunarheimilisins sem á að
taka í notkun árið 2007,” sagði
Ámi í samtali við Víkurfréttir.
í júlí sendu stjóm Dvalarheimilis
aldraðra á Suðurnesjum, Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja,
Reykjanesbær, Garður og Sand-
gerði ífá sér sameiginlegt álit urn
uppbyggingu öldrunarmála á
svæðinu og fellst heilbrigðisráð-
herra á þær hugmyndir sem þar
koma ffam.
Þar er, eins og áður segir, gert ráð
íyrir byggingu 30 rúma hjúkrun-
arheimilis í Reykjanesbæ sem
tekið verði í notkun árið 2007.
Gert er ráð fyrir staðsetningu á
sérstöku þjónustusvæði í Njarð-
vík þar sem einnig verður nýr
þjónustu- og félagskjarni fyrir
eldri ibúa Reykjanesbæjar, auk
öryggisíbúða tengdum hjúkrun-
arheimili.
Þá er gert ráð fyrir endurbótum a
hjúkrunarheimilinu Garðvangi í
Garði sem þýðir betri aðstöðu
fyrir vistmenn en nokkra fækkun
rýma þar. Einnig er gert ráð fynr
auknum stuðningi við dvalar-
heimilið Hlévang sem mun tíma-
bundið sinna hópi hjúkmnarsjúk-
linga þar til hjúkrunarheimilið
verður tekið í notkun árið 2007.
2
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!