Víkurfréttir - 16.09.2004, Page 4
I ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ NJARÐVlKUR
LAUSTSTARF
BAÐVÖRÐUR
íþróttamiðstöð Njarðvíkur óskar eftir að ráða
karlkyns baðvörð í 100% starf.
Starfið er unnið í vaktavinnu og þarf viðkomandi
að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 23. september n.k. og
skulu umsóknir berasttil Menningar-, íþrótta-
og tómstundasviðs Reykjanesbæjar, Hafnargötu
57, 230 Reykjanesbæ.
Einnig er hægt að sækja um rafrænt á vef
Reykjanesbæjar.
Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður,
Hafsteinn Ingibergsson ( síma 899 8010.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar
sveitarfélaga og STFS.
Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið
Starfsþróunarstjóri.
••• reykjanesbaer.is
SínÉtiir42i](!lTO
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför ástkærs bróður okkar
og mágs,
Ágústs H. Matthíassonar,
Heiðarhvammi 6,
Keflavík.
Einnig hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem
studdu hann og styrktu í hans löngu og erfiðu
veikindum í gegnum árin.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Matthíasdóttir, Kjartan Ólason,
Guðmundur Matthíasson, Inga Björk Hólmsteinsdóttir,
Hjörleifur Matthíasson.
= i^nr = iwfTnr
ilhip [LD[p) / í flmoDll
Nýtt öflugt œfingaform hannað af
Erni Steinari Marinóssyni.
Viltu komast í topp form ó 5 vikna nómskeiði?
Allar uppl. veitir Örn Steinar í síma 869 8353
s
• ‘ * * ‘ ' •
I
gjji m síö3&
Sundmiðstöð Keflavíkur
Sími 421 4455 • www.perlan.net
>* Hugmyndir um framleiðslu lífræns úrgangs við Njarðvíkurhöfn:
Tekist á um tanka við Njarðvíkurhöfn
Tankarnir við Njarðvíkurhöfn eru alls átta talsins og eru að stofninum til 80
ára gamlir. Á myndinni má einnig sjá Olsen húsin sem standa auð og þykja
ekki mikil prýði í hverfinu. Ljósmynd/Oddgeir Karlsson
Tankarnir sem verið hafa
við Njarðvíkurhöfn um
árabil verða þar áfram ef
hugmyndir um framleiðslu á
lífrænum áburði ná fram að
ganga. Eigandi tankanna,
Tankastöðin ehf. hefur síðustu
misseri unnið að þróun á fram-
lciðslu lífræns áburðar sem
gerður er úr meltu sjávarfangs.
Að sögn Guðjóns Ánnanns Jóns-
sonar lögmanns og forsvars-
manns Tankastöðvarinnar ehf.
hefur eftirspurn eftir slíkum líf-
rænum áburði aukist síðustu
misserin. Víkurfréttir sendu Guð-
jóni spumingar varðandi tankana
og í svari sem hann sendi kemur
fram að lagt hafi verið mikið
fjánnagn í endurbyggingu meltu-
verksmiðjunnar fyrir nokkrum
árum. Meðal annars hafi verið
komið upp tölvustýrðum búnaði
í samvinnu við stórt norskt fyrir-
tæki sem ætlaði að tryggja af-
urðasölu félagsins. Guðjón segir
að slæmar markaðsaðstæður hafi
orðið fyrirtækinu að falli á þeim
tíma.
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja
ákvað á fundi sínum í júní fyrir
rúmu ári síðan að tankarnir
skyldu rifnir á kostnað eigenda
þeirra. Nefndinni hafa borist
margar athugasemdir vegna
slysahættu og umhverfislýta sem
af tönkunum stafar.
Ibúasamtök Sjávargötu í Njarð-
vík hafa sent bæjarráði Reykja-
nesbæjar bréf þar sem m.a. er
spurt hvort tankarnir við Njarð-
víkurhöfn verði látnir standa þar
áfram. Samkvæmt þvi sem kem-
ur ffarn i svari Guðjóns Armanns
hefur verið gerður langtímaleigu-
samningur við Reykjanesbæ til
þessarar starfsemi. Að sögn Guð-
jóns hefur Reykjanesbær fengið
greiddar háar flárhæðir vegna
byggingaleyfa, auk lóða- og fast-
eignagjalda. Segir Guðjón að
verksmiðjunni verði komið í
gang um leið markaðsaðstæður
skapist. Aðspurður segir Guðjón
að mælingar á stærstu tönkunum
staðfesti að þykkt þeirra sé yfir
öllum viðmiðum og því ekkert
sem mæli gegn áframhaldandi
notkun þeirra en tankamir eru að
stofni til 80 ára gamlir.
Viðar Már Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri umhverfis- og
tæknisviðs Reykjanesbæjar sagði
í samtali við Vikurfféttir að reynt
hafi verið að fá eiganda tankanna
til að flytja þá. „Við höfum boð-
ist til að flytja tankana í Helguvík
en það hefur ekki verið áhugi
fýrir því meðal eigenda. í okkar
huga er það alveg ljóst að tank-
amir verða ekki nýttir.”
Að sögn Viðars Más hefur skipu-
lagsvinna á svæðinu við Njarð-
víkurhöfn og Sjávargötu ekki
gengið vel og segir hann svæðið
erfitt að eiga við. „Það em ekki
bara tankamir sem em að trnfla
skipulagsvinnuna á svæðinu. Ol-
sen húsin standa á svæðinu og
nýlega var olíutankur á svæðinu
seldur einstaklingi í Vogum sem
gerir okkur erfiðara fyrir að
skipuleggja svæðið.”
í starfsáætlun Reykjanesbæjar
fýrir árið 2004 var gert ráð fýrir 3
milljónum króna vegna skipu-
lagsvinnu og jarðvinnu við Sjáv-
argötu og segir Viðar Már að það
fjánnagn sé uppurið. Á næsta ári
verði m.a. ráðist í gerð gangstétta
á svæðinu og segir Viðar Már að
áfram verði unnið að því að
koma tönkunum burt og öðmm
eignum sem nýtast ekki á svæð-
inu.
>* Verslun og þjónusta í Reykjanesbæ:
Flísar & Gólf opnar verslun
EigendurverslunarinnareruhjóninÁrmannJóhannsson
og Linda Sigurgeirsdóttir.
Ný þjónustuverslun, Flísar
& Gólf, hefur opnað að
Iðavöllum 7 í Reykjanes-
bæ. Eigendur verslunarinnar
eru hjónin Ármann Jóhanns-
son og Linda Sigurgeirsdóttir,
en Ármann er Suðurnesja-
mönnum vcl kunnur eftir 15 ár
við sölu og ráðgjöf gólfefna.
„Ég legg áherslu á að vera með
persónulega þjónustu og ráð-
gjöf,” sagði Ánnann í samtali við
Vikurfréttir. „Það hefur enginn
verið að bjóða slikt hér á svæð-
inu, en nú munum við mæta
þeirri eftirspum og veita einstak-
lingum og fyrirtækjum gæða-
þjónustu.”
I versluninni má finna gæðavör-
ur ffá þekktum framleiðendum á
sviði gólfefna, t.d. Porcelanosa,
Venis, Imola og Marazzi flísar
frá Álfaborg, flisafylgiefni og
spörtl ffá Deitermann, parket ffá
Berry floor og Baltic floor, stiga-
húsateppi, sísalteppi, heimilis-
teppi, mottur, dregla o.fl. Einnig
munu Flísar & Gólf vera með
þekkta gólfdúka ffá Forbo, Mar-
moleum gólfdúka unna úr nátt-
úrulegum efnum, vínyldúka fýrir
heimili, stofhanir og verslanir og
mottur ffá Akta/Persíu.
Þá er verslunin í góðu sambandi
við fagmenn til þess að vinna úr
þeim efnum sem í boði eru sé
þess óskað.
Verslunin er opin alla virka daga
ffá kl. 8-12 og 13-18 og laugar-
daga ffá kl. 9-13. Frekari upplýs-
ingar má fá í síma 421-7090.
4
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!