Víkurfréttir - 16.09.2004, Blaðsíða 6
Beðið eftir löndun
Bátar voru í biðröð eftir að landa í Sandgerðishöfn á mánudag, en fjölmargir
bátar eru bundnir við bryggjuna þessa dagana. Starfsmaður Sandgerðishafn-
ar sagði í samtali við Víkurfréttir að septembermánuður væri rólegur og að
smábátarnir væru rétt að byrja að hreyfa sig úr höfn. „Kvótaárið er rétt að
byrja og það fer að lifna yfir þessu. Það er eitthvað að lifna yfir skötuselnum
hjá minni netabátunum.”
Ævíntýrale^ heilsulind
fyrir líkama o«i, sál
Þokkafullur dans fyrir
gyðjur á öllum aldri!
Mánudagakl.21-22.15
Námskeið hefst
20. sepfember.
Púl/inn
www.pulsiim.is
œvin
t^rahus^
Víkurbraut 11 Símar: 423 7500
Sandgerði 848 5366
>- Ný versluná Hafnargötunni:
Rollingar opna búð á Hafnargötu
Barnafataverslunin
Rollingar hcfur opnað
útibú að Hafnargötu 50
í Reykjanesbæ, en verslunin
hefur verið starfrækt í
Kringlunni í 15 ár.
Verslunin Rollingar þykir með
glæsilegri bamafataverslunum á
landinu og nú geta
Suðumesjamenn fengið að njóta
þess besta sem hún hefur uppá að
bjóða og er verslunin hér
suðurfrá ekki síður glæsileg en
verslunin í Kringlunni.
Eigendur verslananna em hjónin
Friðrik Ingi Rúnarsson og Anna
Þórunn Sigurjónsdóttir ásamt
þeim Haraldi Helgasyni og
Þórunni Jónsdóttur, en þau eru
búsett hér í Reykjanesbæ. „Það
var alltaf verið að spyrja okkur
hvenær við kæmum nú suður
eftir og áhuginn var greinilega
mikill. Það ýtti undir það að við
drifum okkur loksins í þessu,”
sögðu eigendurnir og vildu
þakka kærlega fyrir frábærar
viðtökur.
> Framkvæmdir við Reykjanesvirkjun í fullum gangi:
Steypuvinna hefst í lok mánaðarins
Steypuframkvæmdir við
stöðvarhús Reykjanes-
virkjunar hefjast í lok
mánaðarins. Nú cr unnið að
jarðvinnu á virkjunarstaðnum
og ganga þær framkvæmdir
vel að sögn Geirs Þórólfssonar
verkefnisstjóra hjá Hitaveitu
Suðurnesja.
„Þetta gengur allt ágætlega mið-
að við hve stutt er síðan ákvörð-
un var tekin um að ráðast í bygg-
ingu Reykjanesvirkjunar,” sagði
Geir í samtali við Víkurfréttir.
Næstu daga verður hafist handa
við að stilla upp timbri fyrir
ATVINNA
Starfsmaður á Tæknilager
Tækniþjónustan Keflavíkurflugvelli óskar að ráða starfsmann
til starfa á lager hjá félaginu.
Starfsvið:
Afgreiðsla á lager, pökkun varahluta og önnur almenn
lagerstörf.
Æskilegt er að viðkomandi hafi bæði góða ensku og
tölvukunnáttu. Kostur ef viðkomandi hefur lyftararéttindi.
Umsóknir óskast sendar starfsmannastjóra Tækniþjónustunnar
(unasig@its.is) eigi síðar en 24. september 2004.
Skriflegar umsóknir berist til Tækniþjónustunnar
Keflavíkurflugvelli, Bygging 8, 235 Keflavíkurflugvelli.
ITS
TECHNICAL SERVICES
steypuvinnu við stöðvarhúsið
sem verður um 3000 fermetrar
að stærð.
Raforkuframleiðsla Reykjanes-
virkjunar verður 100 MW sem
fæst með nýtingu jarðgufu.
Heildarkostnaður við byggingu
Reykjanesvirkjunar verður 9 til
10 milljarðar króna.
Séð yfir framkvæmdasvæðið á Rekjanesi um miðjan ágúst.
Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.
Konur í meirihluta
á bæjarstjórnarfundi
Konur voru í meirihluta á
síðasta bæjarstjórnar-
fundi Garðs sem hald-
inn var 1. september sl. Það
þykir b'ðindum sæta og kemur
fram á heimasíðu bæjarins að
það hafi einungis gerst einu
sinni áður í langri sögu bæjar-
ins, en það var á síðasta kjör-
tímabili.
Fjórar konur sátu fundinn, en það
voru þær Guðrún S. Alfreðsdótt-
ir, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Asta Agnes Woodhead og Flrönn
Edvinsdóttir, sem kom inn sem
varamaður I-lista.
Venjulega eru þrjár konur í sjö
manna bæjarstjórn þannig að
ekki munar miklu, en þetta sýnir
vonandi jákvæða þróun í átt til
jöfnunar kynjahlutfalls í bæjar-
stjómum víðar.
Bæjarstjóri Garðs, Sigurður
Jónsson, tók fram í viðtali við
Víkurfréttir að fundurinn hefði
verið óvenju friðsamlegur þó
ekki væri víst að kynjahlutfall
hefði nokkuð með það að gera.
Miölun frétta og mynda
Meö öflugrl fréttavakt Vfkurfrétta eru Uósmyndarar —rr
og blaóamenn tll taks allan sólarhrlnglnnl
FRÉTTASÍMINN
|898 2222 f
6
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!