Víkurfréttir - 16.09.2004, Blaðsíða 8
Fasteignafélag
ekki góður kostur
Baejarráð Garðs telur
ekki vænlegt að fara
þá leið að selja fast-
eignir sínar í fasteignafélag.
Allnokkur sveitarfélög á
svæðinu og víðar hafa farið
þessa leið og bera þessu
fýrirkomulagi góða sögu og
fólu Garðmenn því Davíð
Einarssyni, endurskoðanda
sveitarfélagsins að kynna sér
málið.
Davíð skilaði bæjarráði
greinargerð þar að lútandi og
taldi að miðað við vaxtakjör i
dag sé það „ekki álitlegur
kostur að selja eigur sveitar-
félagsins og leigja síðan.”
Bæjarráð samþykkti sam-
hljóða að fela endurskoðanda
að fara yfir lánamál sveitar-
félagsins og kanna möguleika
á lántöku til skuldbreytinga.
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra á Reykjanesi
ATVINNA
Forstöðuþroskaþjálfi óskast á Hæfingarstöðina í Keflavík
Svæðisskrifstofa máiefna fatlaðra á Reykjanesi óskar eftir að ráða til starfa
forstöðuþroskaþjálfa á Hæfingarstöðina í Keflavík.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi haldgóða þekkingu og reynslu í
málefnum fatlaðra og reynslu í stjórnun og starfsmannahaldi.
Einnig kemur til greina að ráða einstakling með aðra menntun
á sviði uppeldis- og félagsvísinda.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Þ.í. og S.F.R.
Reyklaus vinnustaður.
Umsóknarfrestur er til og með 26. september n.k.
Nánari upplýsingar um ofangreint starf er veitt í
síma 525 0900 á skrifstofutíma.
Umsóknareyðublöð eru á skrifstofunni að Fjarðargötu 13-15
í Hafnarfirði og á heimasíðu Svæðisskrifstofu; http://www.smfr.is
Berserkur í Sólbrekkuskógi
Á dögunum fannst stór berserkjasveppur í Sólbrekkuskógi þeg-
ar skógurinn var opnaður almenningi eftir umbætur sem gerðar
voru á vegum verkefnisins Opinn skógur. Sveppurinn er stór
eins og sjá má þegar tíu krónu peningurinn er borinn saman við
sveppinn. Sveppurinn er kenndur við berserki sem forðum daga
átu sveppinn til að koma sér í bardagaham. Sveppurinn er eitr-
aðurog stórhættulegur þegar hans er neytt.
Myndin: Tíu krónu peningurinn er lítill miðað við sveppinn.
Vegagerðin ætlar að
leggja Ósabotnaveg
Vegagerðin ætlar að legg-
ja níu kílómetra langan
veg, svokallaðan Ósa-
botnaveg, milli Garðskagaveg-
ar og Hafnarvegar. Garðskaga-
vegur endar nú við Stafnes um
átta kílómetrum sunnan við
Sandgerði.
Alls þarf Vegagerðin ekki að leg-
gja nema fimm og hálfan kíló-
metra vegaspotta því alls nýtast
3,8 kílómetrar af vegi Vamarliðs-
ins á Keflavikurflugvelli sem
liggur um svæðið. Kostnaður við
verkið er níutíu milljónir en
Skipulagsstofnun hefur kveðið á
um að verkið þurfí ekki að sæta
mati á umhverfisáhrifum. Til-
gangur framkvæmdarinnar er
einkum að skapa tengingu milli
Sandgerðis og Hafna og stytta
leiðir milli atvinnusvæða.
Síðasta smalamennskan
úsund ára sögu smaia-
mennsku á Reykjanes-
skaganum er iokið.
Næsta ár verður lausaganga
sauöfjár bönnuð á svæðinu.
Það viðraði ekki vel á smalanren-
nina á laugardaginn, þótt veður
hafi verið gott þegar lagt var af
stað. Fljótlega gerði hífandi rok
og rigningu. Aðstæður til smala-
mennsku voru því bæði erfiðar
fyrir menn og skepnur. Menn
létu veðrið þó ekkert á sig fá og
skipti engu þótt sumir væru
nýbúnir að gangast undir hjartaí-
græðslu. Helgi Einar Harðarson,
sem fór í hjarta- og nýmaígræðs-
lu fýrr í sumar, var mjög brattur
og sagði smalamennskuna hafa
gengið vel. Vegna veðurs
smalaðist illa en sexhundmð fjár
voru rekin á fjall. Hörður
Sigurðsson, bóndi á Hrauni,
sagði að heimtur hefðu líklega
ekki verið nema um 80 af hund-
raði. Smalamennskunni er því
ekki alveg lokið, en þvi sem
næst. Nýta á helgar þegar veður
er gott og reyna að ná afgang-
inum af fénu í hús. Áffam verður
réttað í Þórkötlustaðarrétt í
Grindavík.
Stöðvaður með fímm
börn í bflnum
Lögregian í Keflavík kærði í siöustu viku ökumann bif-
reiðar fyrir að vera með einu barni of mikið í bifreiðinni
eða samtals fimm börn. Var ökumaðurinn á leið með
börnin í skóla og var eitt barnanna ekki í bílbelti þar sem ekki
var sæti fyrir það í bifreiðinni.
í tilefni 20 ára afmælis stofunnar bjóðum við
20% afslátt af öllum dekurpökkum og gjafa-
bréfum út september.
Erum vakandi fyrir nýungum,
bjóðum meðal annars uppá:
Örslípun húðarinnar með microkristöllum
Comfort andlitsmeðferð
meiriháttar árangur!
Micro calvanic djúpnæring o.fl. o.fl.
Nýjast trompið!
Dinair make up og Air Tan brúnkumeðferð
Á stofunni vinna eingöngu
reyndir snyrtifræðingar
Snyrtistqfa
(Hcddtd)
Sjávargötu 14, Njarðvík
sími 421 1493
8
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!