Víkurfréttir - 16.09.2004, Blaðsíða 10
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Crundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 4210000 Fax 4210020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 4210007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 4210002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 4210004,johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttafréttir),
sími 868 7712, sport@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 4210001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 4210008, jofridu r@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttirehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Auglýsingasímj
Víkurfrétta er
421 0000
MUNDI
Borgar Framsókn fyrir
Kallinn í þessari viku?
Hjálmar sem ráðherra
KALLINN ÆTLAR sér að nota
næstu línurtil að skrifa um Tíðind-
in. Kallinn lítur á þennan snepil
sem persónulega bloggsíðu rit-
stjórans og útgefandans. Sjón-
varpsdagskráin er helsta efni rits-
ins, auk nokkurra persónulegra
blogggreina ritstjórans og örfárra
innsendra fréttatilkynninga. Kall-
inn eyðir ekki meira púðri í þenn-
an snepil; hvorki nú né síðar!
NÚ ERJÓI Kristjáns borðtennis-
kappi af Suðurnesjum farinn á
Ólympíuleika fatlaðra í Aþenu og
verður spennandi að sjá hvernig
honum gengur. Um frábæran
íþróttamann er að ræða og hlakk-
ar Kallinn mikið til að heyra af af-
rekum hans ytra.
RÉn UM NÍUTÍU DAGAR eru til
jóla og nú fara jólasöngvarnir að
heyrast. Kallinn óskar eftir því að
þessi tími verði styttur.
KALLINN VILL NOTA tækifærið
og þakka Davíð Oddssyni fyrrver-
andi forsætisráðherra fyrir ágætis
tíma. Þó Kallinn hafi ekki alltaf ver-
ið sammála Davíð þá er ekki ann-
að hægt en að taka ofan af fyrir
honum og óska honum velfarn-
aðar í utanrikisráðuneytinu.
UM LEIÐ VILL KALLINN óska
Halldóri Ásgrimssyni til hamingju
með forsætisráðuneytið. Kallinn
treystir honum til góðra verka!
NÚ ÆTTl AÐ vera rétti tíminn fyrir
Hjálmar Árnason að verða ráð-
herra Suðurnesjamanna. Það er
ekki hægt að bíða endalaust eftir
- núna!!!
Kallinn
á kassanu
því að Suðurnesjamenn fái ráð-
herrastól. Kallinn hefur fylgst með
Valgerði Sverrisdóttur og séð
hvað hún hefur gert fyrir Norður-
land - sína heimabyggð. Hjálmar
sem ráðherra!
KALLINN ÓSKAR eftir pósti
hugmyndum að efni eða bara
vinalegum kveðjum!
Kveðja, kallinn@vf.is
Um sjálfstæði Víkurfrétta
Nokkuð hart hefur verið
sótt að trúverðugleika
Víkurfrétta upp á síð-
kastið. Reynt hefur verið að
tortryggja fréttaflutning
blaösins vegna samnings
Víkurfrétta við Reykjancsbæ
varðandi umfjöllun um skóla-
mál.
Samningurinn sem um ræðir á
milli Víkurfrétta og Reykjanes-
bæjar snýst um pláss í blaðinu.
Reykjanesbær kaupir pláss í
blaðinu undir skólamál og í stað
þess að nota plássið undir
auglýsingar er það notað undir
efni. Reykjanesbær kemur ekki
að ritstjómarlegum ákvörðunum
varðandi efnið sem fer á síðumar
og er það alfarið ritstjórnar
Víkurfrétta að ákveða efnið sem
þar kemur til með að vera.
Reyndar er það svo að talsverður
hluti af því plássi í blaðinu sem
Reykjanesbæ kaupir undir
skólamál er nýtt undir aðsendar
greinar undirritaðar af greinar-
höfimdum.
í Víkurfréttum hafa í gegnum
tíðina birst áreiðanlegar fréttir af
samfélaginu í heild sinni. Fréttir
hafa verið skrifaðar um bæði
jákvæða og neikvæða hluti á
hlutlausan hátt. Hlutverk fjöl-
miðla er að vera spegill sam-
félagsins á hlutlausan hátt og
vera vettvangur skoðanaskipta
fólksins í samfélaginu.
Á þeim tíma sem ég hef starfað
sem blaðamaður á Víkurfréttum
hef ég aldrei verið stöðvaður í
skrifum um mál sem mér þykja
fréttaefni; og þá er sama hvort
um er að ræða neikvæðar fféttir
um bæjarstjóra, bæjarstjórn,
atvinnu- eða skólamál. Ef ég yrði
stöðvaður myndi ég segja upp
störfum um leið, eins og flestir
blaðamenn myndu gera.
Á hveijum einasta degi „skúbba”
Víkurfréttir fréttum á vf.is, en
síðustu fjögur árin hefiir frétta-
vefurinn verið dagblað Suður-
nesjamanna. Landsijölmiðlarnir
hafa vitnað í fréttir Víkurffétta og
birt fféttir blaðsins.
I ffamhaldi af hörðum árásum á
trúverðugleika Víkurffétta hefur
verið ákveðið að efni um
skólamál sem birtist á keyptu
plássi Reykjanesbæjar í blaðinu
verði hér eftir merkt sérstaklega
og þannig aðgreint ffá öðru efni
blaðsins. Slík aðgreining á ethi er
með fullu eðlileg og viðhöfð á
fjölmörgum fjölmiðlum.
Fréttaflutningur Vikurfrétta er
heiðarlegur og á ritstjóm blaðsins
er viðhöfð blaðamennska í hæsta
gæðaflokki þar sem siðareglur
Blaðamannafélags Islands eru
hafðar að leiðarljósi.
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
blaðamaður
johannes@vf.is
> Páll Ketilsson, ritstjóri:
Um ótíðindi og lygi
Enn eina vikuna eru
helstu tíöindi í sam-
nefndu blaði um
undirritaöan og Víkurfréttir.
Það mátti svo sem segja sér
það, að fara að svara Sigurjóni
Vikarssyni, væri eins og að
skvetta vatni á gæs. Það er yfir-
leitt betra að vera ekki að eiga
við pirraðar grágæsir sem eru
með allt á hornum sér, út í allt
og alla.
I Tíðindum í gær er undirritaður
sakaður um róg, lygi og einelti.
Ja, héma. Þetta styður fýrrnefnt
að ekki er mælt með þvi að
skvetta vatni á gæs. Ég stend við
allt sem ég skrifaði í Ljósa-
næturpistli mínum en lokaorðin
mín í þessum skrifum verða um
það sem Siguijón kallar lygi. Um
að hann hafi stolið hugmynd um
sjónvarpsdagskrárblað af aðila
sem kom og fékk prenttilboð í
slíkt blað hjá honum. Undir-
ritaður haföi heimildir um það.
Þessi aðili heitir Jón Guð-
mundsson. Undirritaður hringdi í
hann í gær og spurði hann hvort
hann teldi það rétt eftir mér haft
að Sigurjón í Grágás hafi stolið
viðkomandi hugmynd.
„Ég tel hiklaust svo vera. Það var
alla vega mjög skrýtið að hann
skyldi fara af stað með svona
blað beint í kjölfar þess að ég
kom og fékk tilboð hjá honum,
sem reyndist rniklu hærra en ég
fékk annars staðar. Það kom mér
mjög spánskt fyrir sjónir, svo
ekki sé meira sagt. Én það er
auðvitað auðvelt fyrir hann að
segja að hugmyndin haft legið á
borðinu hjá honum i einhvern
tíma”, sagði Jón.
Með von um að Sigurjón
Grágásarmaður fari að sjá ljósið
og noti plássið i Tíðmdum undir
annað en ótíðindi um undirrit-
aðan og blaðið sem hann stofn-
aði.
Páll Ketilsson.
Bitror
f r é t t i r
Kvartað undan há-
vaða frá hljómsveit
■ Kvartað var undan há-
vaða frá hljómsveit í Njarð-
vík á fimmtudagskvöldið en
hljómsveitin var með æf-
ingu. Segir í dagbók lögregl-
unnar að hljómsveitin hafi
hætt spilamennsku þegar
lögregla kom á staðinn.
Óspektir við Stapa
■ Óskað var eftir lögreglu
að Stapa í Njarðvík, þar sem
busaball Fjölbrautaskóla
Suðumesja stóð yfir. Aðili
sem var undir áhrifum áfeng-
is fékk ekki inngöngu og var
ósáttur með það, en lögregl-
an þurfti ekki að gripa til
neinna aðgerða.
Sleginn í andlitið á
skemmtistað
■ Á fimmta tmianum á að-
faranótt sunnudags vom tveir
menn fluttir á Heilbrigðis-
stofnun Suðumesja, með
skurði á höfði. Annar þeirra
hafði verið slegin i andlitið á
skemmtistað í Keflavík og
var saumaður skurður á vör.
Hinn hafði dottið i heima-
húsi í Njarðvík og fengið
skurð á höfuðið, sem sauma
þurfti.
Atlantsolía sækir um
lóðir á Suðurnesjum
■ Atlantsolía hefur sótt um
lóðir fýrir bensínstöðvar í
Sandgerði og Grindavík.
Bæjarráð Grindavikur hefur
lagt til að tekið verði tillit til
umsóknar Atlantsoliu við
gerð deiliskipulags fýrir
íbúabyggð norðan Grinda-
víkurbæjar.
Bæjarráð Sandgerðisbæjar
hefhr vísað erindi Atlantsolíu
til fagráðs innan bæjarins þar
sem tekin verður ákvörðun
um staðsetningu. Atlantsolía
hefur hug á að sækja um lóð
fýrir sjálfsafgreiðslustöð sem
opin yrði allan sólarliringinn.
Datt við heita pottinn
■ Um tíuleytið á laugar-
dagskvöld var óskað eftir
lögreglu og sjúkrabifreið að
heimahúsi í Sandgerði, þar
hafði kona dottið á höfuðið
er hún var að stíga upp í heit-
an pott, og rotast. Hún fékk
fljótlega rænu og var ekki
aðgerða þörf.
Fleiri fréttir
www.vf.is
10
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!