Víkurfréttir - 16.09.2004, Page 17
EI LS U viðtah
1. Nafn:
Elísabet Doris Eiríksdóttir
2. Hvernig hugsar þú um
líkamann:
Með því að ganga eða
hjóla og gera smá leikfi-
mi.
3. Uppháldsheilsumatur:
Spíruð korn, spíraðar baunir og jurtafæði úr góðu
hráefni.
4. Hvernig nærir þú sálina:
Með því að lesa Orð Guðs.
5. Hvernig slakar þú á:
Með því að leggjast útaf, lesa góða bók eða tala í síma
við góða vini.
6. Hvað kemur þér í gott skap:
Félagsskapur góðra vina.
7. Hvar finnst þér best að vera:
Heima er best og e.t.v í Hveragerði t.d á heilsuhælinu.
8. Hvað hvetur þig áfram:
Tímaþröng
9. Hollráð:
Allavega fyrir líkamann er t.d að borða ung fíflablöð
sem meðlæti með mat eða sem álegg ofan á brauð.
En hjálpræði sálarinnar er mikilvægast... „jesús Kristur er
svarið".
BÆTIEFNIÐ
Bíoflavóníðar:
Kallast einnig P vítamín og eru vatnsleysanleg
bætiefni sem fyrirfinnast oftast í samfloti með C
vítamíni. Dæmi um algenga bíoflavoníða eru t.d.
sítrín, hesperidín, rútín og kersetín. Bíoflavoníða er
aðallega að finna í innanverðu hýði ýmissa ávaxta s.s.
sítrusávaxta (sítrónum, grape, appelsínum), einnig í
apríkósum, kirsuberjum, vínberjum, plómum og
papaya. Grænar paprikur, brokkolí og tómatar eru
ríkustu grænmetistegundirnar. Bókhveiti er komteg-
und sem inniheldur mikið magn af rútfni.
Bíoflavoníðar hafa öfluga andoxunarvirki og verja þar
með frumur líkamans fyrir sindurefnum (free radi-
cals). Meginhlutverk þeirra er þó að styrkja háræðar
og stjórna gegnumflæði súrefnins, koltvísýrings og
næringaefna um háræðar. Ásamt C vítamíni heldur
það m.a. bandvefjum heilbrigðum. Bíoflavoníðar eiga
einnig þátt í að minnka histamín framleiðslu frum-
anna (sérstaklega kersetín) og eru þ.a.l. gagnlegir við
ýmis konar ofnæmi s.s. frjókornaofnæmi, astma og
liðagigt. Með því að styrkja háræðar eru bíóflavoníðar
notaðir m.a. við blæðandi tannholdi, gyliinæð,
blóðnösum, og marblettum.
SPEKI MANAÐARINS:
„Með því að dvelja úti í
náttúrunni þroskast hjá þér hæfni
til að skynja hið fullkomna samræmi
í samspili orku og efnis".
s
u/l
HVAÐ ER SPELTI?
pelt er mjög forn korntegund sem tilheyrir elstu
menningarjurtum mannkynsins. Spelt er víða í
Evrópu einnig þekkt undir heitinu Dinkel. Það er eitt
af þremur upprunalegustu korntegundunum í heiminum,
hinar tvær tegundirnar eru Enkorn og Emmer. Spelt varð
til úr þessum tveim korntegundum og er í raun ekki
hveitkorn, heldur sérstök korntegund sem hefur ýmsa
eiginleika fram yfir aðrar korntegundir í dag. En það er
mikilvægt að speltið sé lífrænt ræktað og að ekki sé búið
að víxlrækta það eða blanda við hveiti. Þá tapar það þes-
sum mikilvægu eiginleikum.
Við ræktun á spelti er ekki hægt að fá eins mikla uppskeru
eins og við ræktun á venjulegu hveiti, aðeins um 60% og
síðan fellur 35% burt sem er hýðið. Það þarf sérstakar vélar
til að ná burtu ysta hýðinu. Hið þétta og harða hýði sem er
svo erfitt að fjarlægja hefur þó sína kosti því það ver sjálft
kornið fyrir allri ytri loftmengun og jafnvel geislavirkni.
Þetta gerir speltið að einni hreinustu og hollustu næringu
nútímans.
Spelt inniheldur flest næringarefni sem þarf til að viðhalda
góðri heilsu. Það inniheldur amínósýrur, steinefni, sne-
filefni og vítamín. í spelti má finna töluvert magn af fosfór,
kalíum, kísil og magnesíum. Einnig er meira af vítamíni B1
og B2 og níasíni en í hveitikorni.
Margir halda að speltkornið sé glúteinlaust því svo margir
sem eru með glútenóþol þola speltið. En það er töluvert
magn af glúteni í speltinu en uppbygging þess er önnur og
áhrifin því önnur í líkamanum. Þessar lýsingar um speltið
eiga aðeins við þar sem um hreinræktað spelt er að ræða,
en því miður eru á markaði spelttegundir sem búið er að
hveitikrossa, þ.e. kynbæta með blöndun á hveiti. Allt spelt-
mjöl og speltkorn sem selt er hjá Yggdrasil er hreinræktað.
Helstu eiginleikar speltkornins:
•mjög bragðmilt og auðmeltanlegt
• má nota í allar uppskriftir í staðinn fyrir hveiti og heil-
hveiti
• flestir sem þola ekki glúten þola speltið
(Höf: Yggdrasill)
JURTIN
Vallhumal! (Achillea millefolium):
Nýttir plöntuhlutar: Blóm og blöð
Söfnun: Fyrri hluta sumars
Áhrif: Samandragandi, æðaútvíkkandi og
því blóðþrýstingslækkandi, svitadrífandi
og hitalækkandi, krampastillandi,
bólgueyðandi, græðandi.
Notkun: við byrjun kvefs eða flensu, hita,
háum blóðþrýstingi, krömpum í meltingavegi,
æðahnútar, þrálát sár (útvortis).
UPPSKRIFTII
Cashewkrem & jarðarber:
2 dl. cashewhnetur
1 dl. appelsínusafi
2 döðlur, smátt saxaðar
1 bakki jarðarber
-Cashewhneturnar og döðlurnar lagðar
í bleyti í ca 2 klst
-Vatnið sigtað frá
-Hneturnar, döðlurnar og appelsínusafinn
eru sett í matvinnsluvél og blandað
vel þar til alveg kremað og flott
-Sett í desertskálar jarðarber
og cashewkrem til skiptis
-Flott að nota ískúluskeið f kremið
-Líka hægt að nota kremið ofan á kökubotna
-Verði ykkur að góðu.........uummm
(Höf: Sólveig Eiríksdóttir, Crænum Kosti)1