Víkurfréttir - 16.09.2004, Blaðsíða 20
BioBú
Biobú ehf. er nýtt fyrirtæki á sviði mjólkurvinnslu sem
sérhæfir sig í vinnslu og markaðssetningu á lífrænni
jógúrt. Fyrirtækið er í eigu hjónanna Kristjáns
Oddssonar og Dóru Ruf og hóf starfsemi í júní 2003.
Framleiddar eru þrjár bragðtegundir; hrein jógúrt,
jógúrt með jarðarberjum og jógúrt með múslí.
Lífræna mjólkin, sem notuð er kemur frá bænum
Neðra-Hálsi í Kjós. Mjólkin frá Neðra-Hálsi er eina
lífræna drykkjarmjólkin sem fer á markað hérlendis.
Mjólkina selja ábúendurnir til Mjólkursamsölunnar
sem sér um vinnslu og dreifingu hennar. Af þeim
125.000 lítrum sem framleiddir eru á Neðra-Hálsi
seljast um 30.000 lítrar sem lífræn mjólk. Það sem
eftir er hefur verið blandað saman við venjulega mjólk
og selt þannig. Með tilkomu Biobús hefur þetta breyst
og framvegis er umframmjólkin nú nýtt í framleiðslu á
lífrænni jógúrt.
Biobú ehf.
Stangarhyl 3a
110 Reykjavík
Sími: 587-4500
e-mail: biobu@biobu.is
Veffang: www.biobu.is
Yggdrasill
Yggdrasill, verslun með lífrænt ræktaðar afurðir, var stofnað árið
1986 og var tilgangurinn með stofnun félagsins að selja eingöngu
lífrænt ræktaðar matvörur og aðrar vörur af bestu fáanlegu
gæðum. Félagið hefur öll árin haldið þessu markmiði sínu. Þeir
sem stóðu að stofnun félagsins voru hjónin Rúnar Sigurkarlsson
og Hildur Guðmundsdóttir ásamt nokkrum bændum sem voru þá
að stunda lífræna ræktun. Þessir aðilar höfðu það sameiginlegt að
hafa kynnst lífrænni ræktun og lífrænum afurðum íjarna í Svíþjóð,
og fannst vanta mikið upp á úrval og gæði á slíkum vörum á
íslandi. Einnig var til staðar lítill hópur fólks sem fannst mjög
mikilvægt að svona fyrirtæki gæti orðið til og lagði sitt af mörkum
til að hjálpa til.
Starfsemin fór rólega af stað enda ekki svo stór neytendahópur til
að byrja með. Lítil geymsla í fjölbýlishúsi dugði fyrstu mánuðina.
í desember 1988 var svo verslunin flutt í miðbæ Reykjavíkur í
núverandi húsnæði að Kárastíg 1. Þar hefur verslunin starfað í öll
þessi ár og fer áhugi og eftirspurn stöðugt vaxandi.
Auk verslunarinnar á Kárastíg hefur Yggdrasill einnig starfrækt
heildsölu og selt í aðrar verslanir. Heildsala og dreifing í aðrar
verslanir hefur einnig aukist og fást nú vörur frá Yggdrasill í
öðrum heilsuvöruverslunum og stórmörkuðum.
Félagið hefur gott samstarf við bændur á íslandi sem stunda
lífræna ræktun og hefur ætíð til sölu það úrval af lífrænt ræktuðu
grænmeti sem fáanlegt er hverju sinni.
Einnig flytjum við inn vörur frá m.a. Þýskalandi, Hollandi,
Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Bretlandi.
Við leggjum áherslu á að versla helst við fyrirtæki sem eru
eingöngu með lífrænt ræktaðar vörur með gæðamerkingum frá
viðurkenndum vottunaraðilum.
[ dag er starfsemin ört vaxandi og vöruúrval er alltaf að aukast.
Áhugi á lífrænt ræktuðum vörum hefur aldrei verið meiri en í dag.
Ástæður fyrir því eru margar m.a. meiri meðvitund um umhverfis-
mál og heilsu. Einnig gerir fólk kröfur á að vita nákvæmlega
innihald vöru sem það neytir, m.a. vegna
ofnæmis. Því miður er það staðreynd að
ofnæmi og óþol hefur aukist mikið og því
er mikilvægt að neytendur hafi aðgang að
vörum sem það getur treyst að eru án
aukaefna, litarefna og ýmissa annarra
óæskilegra hjálparefna.
Yggdrasill
Kárastíg 1
562 4082 / 561 9299
yg g d ras i 11 @ygg d ras i 11. i s
Brauðhúsið í Grímsbæ
Bræðurnir Sigfús og
Guðmundur Guðfinns-
synir reka Brauðhúsið í
Grímsbæ. Þeir bræður
baka einvörðungu úr
lífrænu hráefni. "Við
erum með allt korn
lífrænt ræktað og
annað hráefni, sem við
notum, eins og
þurrkaða ávexti, fræ og
gróft korn. Við erum
með tvenns konar súrdeig í brauðunum og síðan hafa
svokölluð spelt brauð verið að vinna mjög á. Þau eru úr spelti,
en það er korn, sem við mölum og notum í staðinn fyrir hveiti.
Þetta er aldagömul hveititegund, sem er mjög næringarrík og
komið hefur í Ijós að, að margir, sem þola ekki hveiti þola
spelt". Brauðhúsið í Grímsbæ framleiðir nú um 20 tegundir af
brauði úr lífrænt ræktuðu hráefni. Höfuðmarkmið
Brauðhússins er að framleiða hágæðavörur úr lífrænu hráefni
sem eru lausar við geymsluefni og önnur aukefni og eru
einnig án hvíts sykurs.
Brauðhúsið ehf. Grímsbæ
Efstalandi 26
108 Reykjavík
568 6530
Garðyrkjustöðin Akur
Garðyrkjustöðin Akur er í eigu hjónanna Karólínu
Gunnarsdóttur og Þórðar G. Halldórssonar og staðsett í
Laugarási í Biskupstungum. Keyptu þau stöðina 1991 með
það að markmiði að stunda þar lífræna ræktun. Stöðin er í
dag 2200m2 undir gleri auk pökkunar- og vinnsluaðstöðu og
er öll starfsemi vottuð sem lífræn af Vottunarstofunni Tún.
Ræktaðar eru ýmsar tegundir grænmetis eins og tómatar,
kirsuberjatómatar, gúrkur, paprikur í ýmsum litum og
chilli—pipar. Ræktunarárið hefst um áramót með sáningum en
uppskera hefst svo í mars á gúrkum en tómatar og paprikur
fylgja í kjölfarið í apríl og maí. Uppskerutímabilið stendur svo
út október en þá er hreinsað út úr húsum og þau þrifin og
undirbúin fyrir næsta tímabil.
Auk þess fer fram úrvinnsla afurða og þá fyrst og fremst
mjólkursýring grænmetis og þá aðallega súrkálsgerð en
einnig niðurlagning og súrsun grænmetis. Markmiðið er að
þessar afurðir séu á markaði allt árið en þó aðallega þann
tíma sem minna er af fersku og nýuppskornu grænmeti.
Garðyrkjustöðin Akur
Laugarási, Bláskógabyggð
801 Selfoss
486 8966 / 891 8983
akurbisk@isholf.is
Iðavöllum Keflavík
20
VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LE5TU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!