Víkurfréttir - 16.09.2004, Page 22
FÆREYSKAR
KARTÖFLUR
í SANDGERÐI
„Þetta er miklu betri uppskera hcldur en í fyrra
og þær eru nokkuð stórar núna,” sagði Pétur
Jcnscn scm ásamt móður sinni Maríönnu Jensen
tóku upp kartöflur í Sandgerði á mánudag.
„Þær eru bcstar svona nýjar,” segir Maríanna og
Pétur bætir við. „Maður bara síður þær og
borðar - þarf ekkert að skræla eða neitt. Það er
líka langmest vítamín í kartöfluhýðinu,” segir
hann en móðir hans segist aldrei hafa geta borð-
að hýðið.
Pétur segist hafa sett útsæðið niður fyrstu vikuna í
júni. „Það var nú heldur seint. Maður þyrfti að setja
útsæðið niður í mai - þá yrðu þær töluvert stærri
segir Pétur en í fyrravor setti Pétur mjöl niður tneð
útsæðinu og segir hann það vera að skila sér núna.
„í fyrrahaust var lítil sem engin uppskera og við
fengum aðeins botnfylli af kartöflum út úr því. Það
virðist hinsvegar sem mjölið hafi þurft ár til að gera
moldina kraftmeiri, en ég dreifði einnig áburði yfir í
vor.” I garðinum hjá þeim feðginunum er einnig
nokkuð af rabbarbara. „Eg er nú búin að taka upp
rabbarbara einu sinni úr garðinum og mér sýnist ég
ná að taka upp aðra uppskeru fljótlega,” segir Mari-
anna brosandi.
Langbestmótið
Laugardaginn 18. september
Punktakeppni m/forgjöf
Karla- og kvennaflokkur
Langbest^þ
lla/nargötu 62 • 230 Krflavík • Stml 421 4777
Nrtfang: langbaitOtlmntt.tÆ • tcuno.gUM/langbtal
Glaesileg verðlaun fyrir 5 efstu sætin í báðum flokkum.
Nándarverðlaun á 16. braut - ársmiði fyrir holu I höggi
Allir keppendur fá teiggjafir
Ræst út frá kl. 12-14
Skráning á golf.is og í síma 421 4100
Námskeið fyrir verðandi
veiðimenn og skotvopnaleyfisliafa
Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir umsækjendur um
skotvopnaleyfi og undirbúningsnámskeið fyrir hæfnispróf
veiðimanna.
Veiðikortanámskeiðið kostar kr. 7.000,
skotvopnanámskeiðið kr. 18.000.-
Skráning hjá
Veiðistjórnunarsviði í
síma 462 2820.
Nánari upplýsingar á ust.is
U S T
Staðsetning: Félagsheimili lögreglunnar Keflavík
Skotvopn bóklegt: 30 sept. ogl.Oktkl 18.00-22.00
Skotvopn verklegt: 2. Okt kl 9.00 Skotsvæöi.
Veiðikortanámskeiö: 5. Okt kl 18.00 -22.00
Kennslugögn eru send til þátttakenda eftir greiöslu námskeiðsgjalds sem þarf að greiöast minnst
viku fyrir námskeiðiö. Ennfremur þurfa þátttakendur að skila inn sakavottoröi og læknisvottoröi,
sérstaklega útgefnu vegna skotvopnanámskeiða til lögreglu minnst viku fyrir námskeiðin.
Nýnemar FS kysstu svínshausinn að venju
Busafjör í FS
Nýnemar Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja voru
boðnir velkomnir í skól-
ann á hefðbundinn hátt á
fimmtudaginn en um 120 nýir
nemendur heíja nám við skól-
ann á þessu hausti. Nýnem-
arnir voru stimplaðir um leið
og þeir komu í skólann og
brugðu eldri nemendur á Ieik
með þeim í skólanum fram
eftir morgni.
Eftir sprell i skólanum var haldið
í skrúðgöngu að 88-húsinu þar
sem nýnemarnir voru formlega
boðnir velkomnir í skólann þar
sem þeim var dýft ofan í vatn og
í kjölfarið látnir kyssa hinn
viðfræga svínshaus. Sú hefð að
nýnemar séu látnir kyssa svíns-
haus hefur haldist lengi við
skólann. Skóladagurinn endaði
með flatbökuveislu í skólanum
og hafa nýnemamir því formlega
verið teknir inn í skólasamfélag-
ið.
Samkvæmt hefð sér útskrif-
tarhópur Fjölbrautaskóla Suð-
umesja um vígsluna og að sögn
Völu Rúnar Björnsdóttur
útskriftarnema tókst dagurinn
mjög vel. „Það eru allir mjög
ánægðir með daginn og allir
skemmtu sér rnjög vel.”
t
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi,
Bjarki Hafþór Vilhjálmsson,
Íshússtíg 5, Keflavík,
lést 9. september. Jarðarförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 21. september kl. 14.00.
Vilhjálmur H. Snorrason, Anna Björg Þorbergsdóttir,
Gígja Rafnsdóttir, Jón Olgeir Ingvarsson,
Ágúst Vilhjálmsson, Gyða Jóhannsdóttir,
Hafrún Anna Sigurbjörnsdóttir og aðrir aðstandendur.
22
VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!