Víkurfréttir - 16.09.2004, Qupperneq 25
99
EKKERT ANNAD
EN SICUR!”
Grindavík vinnur fyrstu tvo
leikina í Reykjanesmótinu
Grindavík bjargaði sér
endanlega frá falli úr
Landsbankadciidinni
með góðum sigri á nágrönnum
sínum í Keflavik, 3-4, um síðus-
tu helgi. Næsta sunnudag fá
þeir Víkinga í heimsókn og
verður fróðlegt að sjá hvernig
sú rimma fer.
Víkingar þurfa nauðsynlega á
sigri að halda í botnbaráttunni,
en Grindvíkingar hafa ekki að
neinu að stefna nema að ljúka
sumrinu með stæl. Þeir gætu
jafhvel skotið Keflvíkingum og
KR niður fyrir sig og sest í
fimmta sætið.
„Það kemur ekkert annað til
greina en sigursagði Grétar
Hjartarson, framherji Grinda-
víkur i samtali við Víkurfréttir.
„Við ætlum að vinna þennan
leik, ná í þijú stig og klára árið
með stæl.” Grétar segir Grind-
víkinga koma inn í leikinn af ful-
lum krafti og hugsi ekki um
stöðu Vikinganna sem munu
falla fái þeir engin stig út úr
leiknum. „Þeir eiga ekkert inni
hjá okkur. Það er ekki okkur að
kenna að þeir eru í fallhættu þan-
nig að við tökum bara vel á
þeim.”
Reykjanesmótið í
körfuknattleik hófst í
Grindavík í síðustu viku
þar sem heimamenn lögðu
Keflvíkinga að velli, 103-86, og
Njarðvíkingar sigruðu Hauka,
72-63.
Önnur umferðin fór fram sl.
þriðjudagskvöld í Keflavík og
unnu Grindvíkingar Hauka með
sannfærandi hætti, 101-85. Þá
lögðu Keflvíkingar Njarðvík-
inga, 101-84, en þriðja umferðin
fer fram i Njarðvík í kvöld. Úr-
slitin verða að Asvöllum í Hafn-
arfirði á mánudaginn.
Bestu menn
heiðraðir hjá
Víði og Reyni
Reynir og Víðir héldu lokahóf
sín um siðustu helgi þar sem
efnilegustu og bestu menn lið-
anna fengu viðurkenningar fyrir
afrek sín í sumar.
Hjá Reyni var Guðmundur Gísli
Gunnarsson valinn bestur, en
hann var jafnffamt markahæstur
með 7 mörk. Georg Birgisson
var besti leikmaður sumarsins að
mati stuðningsmanna liðsins.
Andrés Eggertsson þótti efnileg-
asti leikmaðurinn, en Hjörtur
Fjelsted skoraði mark ársins.
Rafh Markús Vilbergsson þótti
skara framúr hjá Víði, en hann
skoraði 7 mörk, fleiri en nokkur
annar í liðinu í sumar. Efhilegast-
ur var Bjöm Bergmann Vil-
hjálmsson, en EinarTryggvason
fékk viðurkenningu fyrir mestu
framfarir.
Tveir Kanar til Keflavíkur
Körfuknattleikslið Kefla-
víkur hefur tryggt sér
starfskrafta tveggja
bandarískra ieikmanna fyrir
átök vetrarins. Þeir heita Ant-
hony Glover og Jimmy Migg-
ins og eru báðir stórir og
stæðilegir piltar. Glover
reyndist Keflvíkingum afar
vel í leiknum gegn Njarðvík í
Reykjanesmótinu og skoraði
36 stig, en Miggins hefur ekki
enn fengið að reyna sig í ieik.
Miklar væntingar eru til þess
síðarnefnda en hann var mikil
stjarna með háskólaliði sínu
vestra áður en hann meiddist
illa. Hann freistar þess nú að
sanna sig og er þátttaka Kefla-
víkur i Evrópukeppninni vel til
þess fallin.
Steindór hættur sem landsliðsþjálfari
Steindór Gunnarsson hefur látið af störfum
sem landsliðsþjálfari i sundi, en Stcindór
hefur undanfarin fjögur ár starfað með
Iandsliðum SSI. Fyrst sem unglingalandsliðs-
þjálfari en frá miðju ári 2002 sem landsliðsþjálf-
ari.
Ásamt því að hafa sinnt stöfúm landsliðsþjálfara
hefur hann einnig verið þjálfari hjá ÍRB og starfað
sem kennari í Grunnskóla Njarðvíkur.
Sundsamband Islands þakkaði Steindóri sérstaklega
fyrir vel unnin störf í þágu landsliða SSÍ og sund-
hreyfingarinnar allrar og vonaði að hann tæki áfram
þátt í verkefhum með landsliðum og undirbúnings-
hópum Sundsambandsins á komandi árum.
Stigateppi - Skrifstofuteppi - Heimilisteppi - Bflateppi - Anddyrismottur - Dreglar - Stök teppi o.fl.
Opnunartílboð
Marazzi Gólfflísar 4 gerðir 30x30 cm.
Marazzi veggflísar 20x25 cm.
Marazzi hvítar veggflísar 15x15 cm.
Armstrong plastparket Eik (7,5 mm. þykkt)
Skipadreglar 1 metri á breidd
Úrval af flísum
frá Porcelanosa, Venis, Marazzi og Imola.
Kr. 1.450 pr.m2
Kr. 890 pr.m2
Kr. 890 pr.m2
Kr. 980 pr.m2
Kr. 945 pr.mtr.
Vínyl og Linoleum-gólfdúkar frá FORBO
Gegnheilir vínyldúkar frá Tarkett
Berry Floor plastparket - Baltic Floor viðarparket
Deitermann flísafylgiefni - Uzin spörtl og lím
FLÍSARjjgÓLF
Iðavöllum 7, 230 Reykjanesbær
Sími 421 7090 Fax 421 7091
E-maiI: flg@simnet.is
VlKURFRÉTTIR I 38.TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN16. SEPTEMBER 2004 I 25