Víkurfréttir - 14.10.2004, Blaðsíða 2
t
Ástkær móöir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
> Áhugahópurinn þrýstirá að breikkun Reykjanesbrautar verði lokið:
Skorar á stjórnvöld að bjóða
breikkun brautarinnar út
Helga Gunnólfsdóttir,
Garðavegi 13, Keflavík,
lést föstudaginn 8. október á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 15. október kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnlaug Eyfells Arnadóttir, Halldór Magnusson,
Sævar Árnason, Hildur Ellertsdóttir,
Árný Kristbjörg Arnadóttir,
Gunnólfur Árnason,
Svala Árnadóttir,
HreiðarÁrnason,
Helga Árnadóttir,
Ómar Árnason,
Árni ÞórÁrnason,
Skjöldur Vatnar Árnason,
Fanney Bjarnadóttir,
Björn Pálsson,
Sigurjón Hreiðarsson,
Ingibjörg Blomsterberg,
Asta Þórarinsdóttir,
Kristín Linda Sveinsdóttir.
Októberbriálæð
HP Compac nx7010 .. kr. 149.900
r Verð no o
Örgjörvi:
Minni:
Skjár:
Harður diskur:
Rafhlaða:
Stýrikerfi:
Abyrgð:
Intel Pentium-M 1.5GHz
256MB DDR í 1 kubb (mest 2GB)
15.4" Wide Screen WXGA+ skjár,
40GB
8 Cell Lilon, allt að 5 klst ending
Microsoft Windows XP Pro
2ja ár a neytendaábyrgð
SAMHÆFNIi
Hringbraut 96 • Sími 421 7755 • www.samhaefni.is • sala@samhaefni.is
Fyrsta áfanga við breikk-
un Reykjanesbrautar er
formiega lokið en fyrir
nokkru afhcntu verktakar
brautina til Vcgagerðarinnar.
Lokaúttekt Vegageröarinnar á
verkinu fór fram í síðustu viku.
Aðeins á eftir að koma gróðri
fyrir á ýmsa bletti við Reykja-
nesbrautina en það verður gert
í vor í samráði við verktaka.
Verktakarnir fengu greitt flýti-
fé vegna verksins.
Steinþór Jónsson formaður
áhugahóps um örugga Reykja-
nesbraut gleðst yfir því að fyrsta
áfanga sé lokið. Steinþór segir að
nú þegar sé hafin barátta fyrir
síðari áfanganum. „Nú þarf að
ljúka tvöföldun. Við höfum feng-
ið að keyra örugga Reykjanes-
braut síðan í júlí og það eru allir
mjög ánægðir með breytinguna.
Brautin er orðin öruggari og
ánægjan er einróma,” segir Stein-
þór en barátta áhugahópsins
heldur áfram. „Við horfurn til
ummæla samgönguráðherra frá
11. janúar árið 2001. Þar sagði
hann að ffamkvæmdir við fyrsta
áfanga breikkun Reykjanesbraut-
ar myndi hefjast á árinu 2002 og
það stóðst. Hann sagði einnig að
framkvæmdum við fyrsta áfang-
ann myndi ljúka árið 2004 og
það stóðst einnig. I framhaldi af
því sagði ráðherra að síðari hluti
framkvæmdanna myndi ráðast af
mögulegum framkvæmdahraða
verktakanna.”
Að sögn Steinþórs hafa verktak-
amir ítrekað lýst því yftr að hægt
sé að ljúka framkvæmdum við
síðari hluta breikkunar Reykja-
nesbrautar á innan við einu ári.
Samkvæmt áætlun Vegagerðar-
innar er gert ráð fyrir að breikkun
síðari hluta Reykjanesbrautar
kosti um 2 milljarða króna.
Steinþór segir að mikilvægt sé að
allir hlutaðeigandi geri sér grein
fyrir því að fyrri hluti breikkun-
arinnar hafi kostað 60% af upp-
haflegri áætlun. „í ljósi reynslu
verktakanna trúum við því að
slíkar tölur muni sjást aftur ef
verkið yrði boðið út núna. Ef þær
tölur standast erum við að tala
um kostnað uppá milljarð króna.”
Áhugahópurinn fagnar ummæl-
um forsætisráðherra í stefnuræðu
sinni þar sem hann talaði um
mikilvægi tvöfoldunar Reykja-
nesbrautar. „Áhugahópurinn
skorar á stjómvöld að bjóða ut
seinni áfangann á næstu vikum.
Við höfum vissu fyrir því að
þetta sé besti tíminn til þess
þannig að hægt sé að tryggja eins
hagstæð verð og áður í verkinu,
sagði Steinþór í samtali við Vík-
urfréttir.
> Línuskipið Kristinn Lárusson úr Sandgerði „í átökum" við rússnesk herskip:
„Líkar illa svona hernaðarbrölt"
-segir Jón Cuðlaugsson, skipstjóri á Kristni Lárussyni, sem sveigði frá Rússunum
Línubáturinn Kristinn
Lárusson GK fékk
óblíöar móttökur frá
rússnesku flotadeildinni úti
fyrir Austfjörðum nú fyrr í
vikunni. 180 tonna línubá-
turinn frá Sandgerði mátti
beygja af sinni leið og haida sig
fjarri Rússaflotanum sem
skaut grænum blysum upp í
loftið tii að vara áhöfnina við
að koma ekki of naerri.
„Við vorurn á landleið til
Dalvíkur þegar við lentum á
æfingasvæði þeirra, flestir í
áhöfninni okkar voru sofandi
þegar Rússamir skutu upp blys-
unurn svo það voru bara þeir í
brúnni sem urðu vitni að þessum
atburði,” sagði Jón Guðlaugsson,
skipsstjóri á Kristni Lárussyni
GK, í samtali við Víkurfréttir á
þriðjudagskvöldið.
Jón þorði ekki annað en að hlýða
fyrirmælum Rússanna en sagði
að sér likaði illa við svona
hemaðarbrölt.
Þegar Vikurfréttir höfðu sam-
band við Jón voru rússnesku
skipin enn á miðunum í tæplega
20 milna fjarlægð frá Kristni
Lárussyni.
Miðlun frétta og mynda
Meö öflugri fréttavakt Víkurfrétta eru Ijósmyndarar
og blaöamenn til taks allan sólarhringinn!
FRÉTTASÍMINN
i898 2222
z4*S*S*»“
2
VÍKURFRÉTTiRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!