Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.10.2004, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 14.10.2004, Blaðsíða 16
Namskei í jólakortagerð og Bócilla-saúm Fyrirhugað er að halda námskeið í jólakortagerð og Bucilla-saum á næstunni. Upplýsingar í versluninni Palóma. aioma Víkurbraut 62 - stmi 426 8711 titnmgar i til leigu í Sandgerði. Upplýsingar í síma 861 2319 www.sokkar.is ■BKIiMI Kynnum vetrarlínuna frá OROBLU í Lyf&heilsu Keflavík á morgun, föstudag frá kl. 14-18. 20% kynningarafsláttur af öllum OROBLU vörum. <^Lyf&heilsa > Nýtt forvarnarverkefni fyrir grunnskólanema: HUGSAÐ UAA BARN I REYKJAN ESBÆ / gcgnum tíðina hefur margt verið reynt í skólastarfinu til að forða æsku landsins frá eymd og volæði. Fyrrver- andi eiturlvfjafíklar hafa kom- ið í kennslustundir hjá nem- endum grunnskólanna og sagt sorgarsögu sína og hver man ekki cftir myndbandinu um Ella, sem var alheilbrigður strákur, en hóf að sniffa lím og endaði sem ósjálfbjarga ungur maöur í hjólastól. Engu að síð- ur leiðast unglingar út í drykkju, vímuefnaneyslu og ótímabærar þunganir halda áfram að skjóta upp kollinum. Þegar núverandi kennaraverkfalli lýkur munu Grunnskólar Reykja- nesbæjar taka upp nýtt fræðslu- verkefti sem ber heitið „Hugsað um bam.” Verkeftið heftir sannað sig sem áhrifaríkt heilbrigðis- og félags- forvarnaverkefni þar sem það hefar verið reynt og er fyrir nem- endur í 8. bekk. Verkefhið hjálpar nemendum að taka upplýsta ákvörðun varðandi kynlíf og barneignir. Einnig er hér um að ræða nýstárlega fræðslu í áfeng- is- og vímuefaaforvömum. Vekja unglinga til umhugsunar um kynlíf Verkefaið er komið til Islands að tilstuðlan O.B. Ráðgjafar sem leitaði út fyrir landsteinana til að koma verkefninu á fót. Mark- miðið er að vekja unglinga til umhugsunar um afleiðingar kyn- lifs og leitast við að hafa áhrif á að þeir byrji að stunda kynlíf eldri en nú þekkist og af meiri ábyrgð. Ein alvarlegasta áhættu- hegðunin hjá unglingum er að byrja að stunda kynlíf of ung sem m.a. ýtir þeim oft út í áfengis- neyslu. Alkahólvíman vekur oft áhuga unglinga á að prófa vímu af ólöglegum vímugjöfum. Það er leitun að unglingi sem byijar að fara í vímu af ólöglegum vímugjöfam áður en ltann kynn- ist fyrst vímunni af alkahóli. í „barninu” er tölva „Hugsað um bam verkefaið felst í því að nemendur fá, yfir eina helgi, dúkkur til umönnunar. Dúkkan likist mjög rnikið alvöru bami en hún hefar hlotið nafaið Raunveruleiknibarnið. I „barn- inu“ er tölva sem segir til um það hvernig foreldri nemandinn hafí reynst,” segir Olafur Grétar Gunnarsson hjá O.B. Ráðgjöf. Reykjanesbær fyrsta sveitar- félagið Reykjanesbær mun verða fyrsta sveitarfélagið á Islandi sem tekur upp þessa kennsluaðferð fyrir nemendur sína. Fræðsluverkefa- ið hefur reynst gífurlega vel í Noregi, Astralíu og víðar. Verk- efaið er einnig mikill stuðningur við foreldra í uppeldishlutverk- inu. Nú þegar hefur Reykjanes- bær veitt styrk til verkefaisins en Raunveruleiknibömin og sá bún- aður sem þeim tengist er mjög dýr í kaupum og því verða þau leigð af O.B. Ráðgjöf. Raunvem- leiknibarnið grætur, hjalar, það þarf að skipta á því, láta það ropa og það heimtar mat hvenær sem er sólarhringsins. Ami Sigfasson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, tekur verkefainu fagnandi. „Eg tel að reynslan sýni að verkefnið sé mjög öflugt forvarnarverkefni sem gerir ungu fólki grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að eiga böm,” segir Arni. í Reykjanesbæ hefur fagfólk lengi leitað leiða til að fækka ótímabærum þungunum. Eitt slíkt verkefai hófst árið 1992 en um árabil hefur verið reynt að spoma gegn ótímabæmm þung- unum víða um land. Fundu dúkkuverkefnlð í Noregi Árið 2003 komust frumkvöðl- arnir Ólafur Grétar og Bjarni Þórarinsson á snoðir um dúkku- verkefaið í Noregi en þar hefar verkefnið skilað 100% árangri í því að koma í veg fyrir ótíma- bærar þunganir hjá 18 ára og yngri. Fær víða góðan stuðning Nemendur við Háskólann í Reykjavík gerðu könnun á við- horfi til kynfræðslu meðal nem- enda í 8. bekk. Niðurstöður þeirr- ar könnunar voru afgerandi. 6% nemenda töldu sig tilbúin til að eignast bam og ala því önn. Lýð- heilsustöð telur verkefnið afar þarft og Landlæknisembættið mælir með þessari fræðslu og tel- ur hana nýstárlega útfærslu á kynfræðslu sem muni höfða til unglinga. Barnaverndarstofa mælir einnig með verkefninu. Umboðsmaður barna á Islandi hefar fylgst vel með því vanda- máli sem þunganir og kynsjúk- dómar eru hjá unglingum og hef- ur verið með þrýsting á stjórn- völd að bregðast við af fullum þunga. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvaða áhrif þetta verkefai muni hafa á gmnnskóla- nemendur Reykjanesbæjar og foreldra þeirra. 16 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.