Víkurfréttir - 14.10.2004, Side 16
Namskei
í jólakortagerð og Bócilla-saúm
Fyrirhugað er að halda námskeið
í jólakortagerð og
Bucilla-saum á næstunni.
Upplýsingar í versluninni Palóma.
aioma
Víkurbraut 62 - stmi 426 8711
titnmgar i
til leigu í Sandgerði.
Upplýsingar í síma 861 2319
www.sokkar.is
■BKIiMI
Kynnum vetrarlínuna frá OROBLU
í Lyf&heilsu Keflavík
á morgun, föstudag frá kl. 14-18.
20% kynningarafsláttur af öllum
OROBLU vörum.
<^Lyf&heilsa
> Nýtt forvarnarverkefni fyrir grunnskólanema:
HUGSAÐ UAA BARN
I REYKJAN ESBÆ
/
gcgnum tíðina hefur margt
verið reynt í skólastarfinu
til að forða æsku landsins
frá eymd og volæði. Fyrrver-
andi eiturlvfjafíklar hafa kom-
ið í kennslustundir hjá nem-
endum grunnskólanna og sagt
sorgarsögu sína og hver man
ekki cftir myndbandinu um
Ella, sem var alheilbrigður
strákur, en hóf að sniffa lím og
endaði sem ósjálfbjarga ungur
maöur í hjólastól. Engu að síð-
ur leiðast unglingar út í
drykkju, vímuefnaneyslu og
ótímabærar þunganir halda
áfram að skjóta upp kollinum.
Þegar núverandi kennaraverkfalli
lýkur munu Grunnskólar Reykja-
nesbæjar taka upp nýtt fræðslu-
verkefti sem ber heitið „Hugsað
um bam.”
Verkeftið heftir sannað sig sem
áhrifaríkt heilbrigðis- og félags-
forvarnaverkefni þar sem það
hefar verið reynt og er fyrir nem-
endur í 8. bekk. Verkefhið hjálpar
nemendum að taka upplýsta
ákvörðun varðandi kynlíf og
barneignir. Einnig er hér um að
ræða nýstárlega fræðslu í áfeng-
is- og vímuefaaforvömum.
Vekja unglinga til
umhugsunar um kynlíf
Verkefaið er komið til Islands að
tilstuðlan O.B. Ráðgjafar sem
leitaði út fyrir landsteinana til að
koma verkefninu á fót. Mark-
miðið er að vekja unglinga til
umhugsunar um afleiðingar kyn-
lifs og leitast við að hafa áhrif á
að þeir byrji að stunda kynlíf
eldri en nú þekkist og af meiri
ábyrgð. Ein alvarlegasta áhættu-
hegðunin hjá unglingum er að
byrja að stunda kynlíf of ung sem
m.a. ýtir þeim oft út í áfengis-
neyslu. Alkahólvíman vekur oft
áhuga unglinga á að prófa vímu
af ólöglegum vímugjöfum. Það
er leitun að unglingi sem byijar
að fara í vímu af ólöglegum
vímugjöfam áður en ltann kynn-
ist fyrst vímunni af alkahóli.
í „barninu” er tölva
„Hugsað um bam verkefaið felst
í því að nemendur fá, yfir eina
helgi, dúkkur til umönnunar.
Dúkkan likist mjög rnikið alvöru
bami en hún hefar hlotið nafaið
Raunveruleiknibarnið. I „barn-
inu“ er tölva sem segir til um það
hvernig foreldri nemandinn hafí
reynst,” segir Olafur Grétar
Gunnarsson hjá O.B. Ráðgjöf.
Reykjanesbær fyrsta sveitar-
félagið
Reykjanesbær mun verða fyrsta
sveitarfélagið á Islandi sem tekur
upp þessa kennsluaðferð fyrir
nemendur sína. Fræðsluverkefa-
ið hefur reynst gífurlega vel í
Noregi, Astralíu og víðar. Verk-
efaið er einnig mikill stuðningur
við foreldra í uppeldishlutverk-
inu. Nú þegar hefur Reykjanes-
bær veitt styrk til verkefaisins en
Raunveruleiknibömin og sá bún-
aður sem þeim tengist er mjög
dýr í kaupum og því verða þau
leigð af O.B. Ráðgjöf. Raunvem-
leiknibarnið grætur, hjalar, það
þarf að skipta á því, láta það ropa
og það heimtar mat hvenær sem
er sólarhringsins. Ami Sigfasson,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, tekur
verkefainu fagnandi. „Eg tel að
reynslan sýni að verkefnið sé
mjög öflugt forvarnarverkefni
sem gerir ungu fólki grein fyrir
þeirri ábyrgð sem fylgir því að
eiga böm,” segir Arni.
í Reykjanesbæ hefur fagfólk
lengi leitað leiða til að fækka
ótímabærum þungunum. Eitt
slíkt verkefai hófst árið 1992 en
um árabil hefur verið reynt að
spoma gegn ótímabæmm þung-
unum víða um land.
Fundu dúkkuverkefnlð
í Noregi
Árið 2003 komust frumkvöðl-
arnir Ólafur Grétar og Bjarni
Þórarinsson á snoðir um dúkku-
verkefaið í Noregi en þar hefar
verkefnið skilað 100% árangri í
því að koma í veg fyrir ótíma-
bærar þunganir hjá 18 ára og
yngri.
Fær víða góðan stuðning
Nemendur við Háskólann í
Reykjavík gerðu könnun á við-
horfi til kynfræðslu meðal nem-
enda í 8. bekk. Niðurstöður þeirr-
ar könnunar voru afgerandi. 6%
nemenda töldu sig tilbúin til að
eignast bam og ala því önn. Lýð-
heilsustöð telur verkefnið afar
þarft og Landlæknisembættið
mælir með þessari fræðslu og tel-
ur hana nýstárlega útfærslu á
kynfræðslu sem muni höfða til
unglinga. Barnaverndarstofa
mælir einnig með verkefninu.
Umboðsmaður barna á Islandi
hefar fylgst vel með því vanda-
máli sem þunganir og kynsjúk-
dómar eru hjá unglingum og hef-
ur verið með þrýsting á stjórn-
völd að bregðast við af fullum
þunga. Það verður fróðlegt að
fylgjast með því hvaða áhrif þetta
verkefai muni hafa á gmnnskóla-
nemendur Reykjanesbæjar og
foreldra þeirra.
16
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!