Víkurfréttir - 14.10.2004, Blaðsíða 12
Halla Karen Guðjónsdóttir er 16 ára nemi í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja en hún er einnig
ritari húsráðs 88 hússins. Halla segir að 88 húsið
sé frábær staður þar sem næstum því allt sé hægt að
gera. Þar er aðstaða til náms og á næstunni verður boðið
upp á tölvuaðstoð á miðvikudögum. í húsinu er hægt að
fara í tölvur, billjard og borðtennis svo eitthvað sé nefnt.
„Strákarnir þar eru alveg æði og geta hjálpað manni við
allt...eða svona hér um bil,“ segir Halla.
Hvað er helst að gera í
húsráði 88 húsins?
Bara vera í geggjuðum
félagsskap og skipuleggja
og finna hugmyndir fyrir 88
húsið. Og gera það að
veruleika!
Hvað er það skemmtileg-
asta við starfið?
Mjög svo æðislegur
félagsskapur og að sjálf-
sögðu Styrmir og Hjörtur.
Hvað er það helsta sem er
á dagskránni í 88 húsinu á
næstunni?
Næstu helgi opnar listasýn-
ing og bráðlega verðum við
með kjallararokk. Svo má
ekki gleyma föstu liðunum
okkar þar sem við hor&m á
fyndna fimmtudaga á Skjá
einum og Idolið og
Svínasúpuna á föstudögum.
Hvað finnst þér um
kennaraverkfallið?
Æji, ég vorkenni bara aðal-
lega 10. bekk. Kennaramir
eru stressaðir fyrir, hvað þá
þegar þeir hafa ekki nógan
tíma til að fara í allt efnið.
Hver er uppáhalds
hljómsveitin þín?
Tjaa.. ég bara veit ekki. Eg
er svo til alæta á tónlist svo
það er engin uppáhalds..
Ef þú ættir 7.500 krónur
hvað myndir þú þá kaupa
þér?
Ég myndi kaupa mér 1 flug-
miða til Akureyrar og
smokka fyrir afganginn.
Hvað dettur þér í hug
þegar þú lest:
-Powerpc: tölva bara.
-Durex: góðir smokkar
-Girðing: Sauður
-Frampartur: Brjóst
-Bringuhár: Frekar mikið
sexy.
Hvernig heldur þú að
menningarmiöstöðvar
ungs fólks muni líta út
árið 2235?
Ég held að þær verði gular
og fallegar.
Kisa íóskilum!
Þessi svarti og hvíti kisu-
strákur ratar ekki heim til
sín. Hann hélt til við
hraðbanka Sparisjóðsins í
Njarðvík á mánudagskvöld,
rennblautur og svangur, og
lítið fararsniö á honum.
Starfsmenn Vikurfrétta tóku
kisa í fóstur og komu honum
í næturgistingu. Ef þú kann-
ast við þennan kettling, 4-5
mánaöa gamall fress, þá vin-
samlega hafðu samband í
síma 898 2222.
Nemendur FS taka áskorun í VF
Árni Jóhannsson er að pæla í að verða kennari
þegar hann verður stór. Hann myndi biðja Bush
um að benda á írak á landakortinu ef hann ætti
þess kost að spyrja hann einnar spurningar. Árni
skorar á Helga Gíslason.
Ef þú værir ofurhetja hvað myndirðu kalla þig?
Ég myndi kalla mig „One Thousand Degrees" og
slagorðið mitt myndi vera „10 times the boiling heat
of water.“
Hver er þín uppáhalds kvikmynd?
Það er ekki hægt að nefna eina þegar svo mörg
listaverk hafa verið gerð.
Ef þú ættir að kitla einhvern hvern myndirðu
kitla?
Ég myndi kitla hann Ola Freyr.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú crt orðinn stór?
Pæla í því að verða kennari en er samt orðinn
nokkuð stór núna
Ef þú gætir spurt Bush Bandaríkjaforseta einn-
ar spurningar, hver yrði sú spurning?
Ég myndi biðja hann um að benda á írak á landa-
korti. Ætli hann viti hvar það er.
Ég skora á Helga Gíslason.
Spumingar til Helga.
Ef þú ættir gírafa hvað myndirðu kalla liann?
Á skalanum 1-10, hversu harður ertu?
Kanntu að prjóna?
Ef þú gætir farið aftur í tímann hverju myndirð-
u breyta?
Hvcr er uppáhalds einræðisherrann þinn?
Efni og ábendingar til VF17 • johannes@vf.is
> Unglingaútvarpsstöð í Fjörheimum:
Fjörstöðin farin í loftið
Unglingar í félagsmiðstöð-
inni Fjörheimum verða
með útvarpsstöð, Fjör-
stöðin 92,7, dagana 13.-21.
október nk.
Mikil vinna og undirbúningur
hefur átt sér stað hjá starfsmönn-
um og unglingum sem sóttu
námskeið i þáttagerð og eru í
framhaldi af því að setja saman
sína eigin útvarpsþætti.
Hér er á ferðinni gott forvamar-
starf sem höfóar vel til margra
unglinga og em bæjarbúar hvattir
til að stilla viðtæki sin á FM
97,2. Unglingamir ætla að hljóð-
varpa sínum útvarpsþáttum dag-
lega ffá kl. 16.00-22.00 en tónlist
af upptöku verður spiluð allan
sólarhringinn. Umsjónarmenn
með Fjörstöðinni FM 97,2 eru
þau Hafþór Barði Birgisson og
Anna Albertsdóttir.
Fjörheimaráð sem skipað er
tveimur nemendum úr hverjum
grunnskóla í Reykjanesbæ eru í
því að safha auglýsingum og ef
vel gengur er hugmyndin að
Fjörheimaráð kaupi nýjar tölvur
til afnota fyrir unglinga í félags-
miðstöðinni Fjörheimum. Eru
forráðamenn fyrirtækja hvattir til
að taka vel á móti unglingumum.
Gróðursetft upp á heiði
Föstudaginn 8. október
fór hópur nemenda sem
stefnir að útskrift á
önninni að Rósaselsvötnum
ofan við Keflavík. Þar
gróðursetti hópurinn plöntur
undir öruggri leiðsögn
Þorvaldar Sigurðssonar,
íslcnskukennara.
Um er að ræða svæði sem
skólinn fékk á sínum tíma úthlut-
að hjá Skógræktarfélagi
Suðumesja. Þeir nemendur sem
útskrifast frá skólanum
gróðursetja þar plöntur tvisvar á
ári; nemendur sem útskrifast á
haustönn fara í upphafi haust-
annar en hópar sem útskrifast að
vori gróðursetja þá. Þetta hefur
verið gert í nokkur ár og er búið
að gróðursetja þó nokkuð af
plöntum sem eiga vonandi eftir
að vaxa þar og dafna.
12
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
UOSMYND: AXEL SIGURBJÖRNSSON. VF-UÓSMYND/HÉÐINN EirIksson