Víkurfréttir - 14.10.2004, Síða 14
Krabbameinsfélag
Suðurnesja
Fræðslufundur
Fræðslufundur veröur haldinn í sal
Rauöa kross Islands aö Smiöjuvöllum 8
hinn 21. október kl. 20.00.
Efni:
Krabbamein í ristli og endaþarmi:
Sjúkdómur sem mögulegt er aö
fyrirbyggja, meðhöndla og sigra.
Fyrirlesari:
Ásgeir Theódórs, yfirlæknir.
SpKef
Sparlsjóðurlnn f Kcflavík
Stjórnin
Pökkum Sparisjóönum
í Keflavík veittan stuöning
Ekki til eftirbreytni
annig er mál með
vexti að ég, undirritað-
ur, sótti um baðvörslu-
starf við íþróttahús Njarð-
víkur og hef ekki enn fengið
viðbrögð við umsókn minni.
Hvorki af né á. Búið er að
ráða í starfið og mjög hæfur
maður ráðinn.
Ég átel vinnubrögð bæjarins
þar sem ekkert samband hefur
verið hafl við mig né aðra um-
sækjendur sem ekki fengu
starfið. Þetta finnst mér argasti
dónaskapur af hálfu bæjarins í
garð einstaklinga í atvinnuleit.
Vinnubrögðin eru forkastanieg
og ekki til eftirbreytni. Ég vona
að menn vandi sig betur í
ffamtiðinni.
Virðingarfyllst,
Karl Sanders
> Yfir 100 sprengjurfundist á Suðurnesjum á þessu ári:
Sprengjuleit vestur af Stapafelli
Isíðustu viku stóð Land-
helgisgæslan fyrir
sprengjuleit á svæðinu
norðvestur af Stapafelli á
Reykjanesi. Einnig tóku 25
starfsmenn vopnadeildar
varnarliðsins þátt í leitinni.
Leitir af þessu tagi eru gerðar
rcglulega á æfingasvæðum og
sprengjueyðingasvæðum á
Reykjanesi sem varnarliðið
hefur haft tii afnota. Við ieitina
fannst mikið af sprengifimum
hlutum, sprengjubrotum, skot-
færum og púðri.
Svæðið norðvestur af Stapafelli
var notað sem sprengjueyðinga-
svæði íyrir varnarliðið á Kefla-
víkurflugvelli en Landhelgis-
gæslan hefur einnig notað svæð-
ið til að eyða sprengjum fyrir
vamarliðið þar sem Land-
helgisgæslan tók alfarið við þeim
málaflokki fyrir árið 2002.
A þessu ári hefur Landhelgis-
gæslan staðið fýrir leit á svæðinu
í kringum Kleifarvatn, Vogaheiði
og Stapafell með góðum árangri.
Fundist hafa yfir 100 hlutir sem
hefur verið eytt.
Svæðið sem
leitað var á í
síðustu viku er
mjög vel merkt
með skiltum en
ekki afgirt. Það
er mikilvægt að
fólk sem finnur
torkennilega hluti á
svæðinu láti það vera að snerta
þá og tilkynni fundinn til
Landhelgisgæslunnar eða
lögreglu við fyrsta tækifæri.
eru þau alveg búin að tapa sér í 10-11?
o
40 % afsláttur
af öllum vörum á Haustdögum
° °o
OnW
o
lokum tímabundið vegna breytinga
sunnudaginn 17.október
ný og glæsileg 10-11 verslun
opnar í lok mánaðarins
14
VfKURFRÉTTIR Á NETINL) I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
MYNDIR: IANDHELGISGÆSIAN / ADRIAN KING