Víkurfréttir - 14.10.2004, Page 23
Keflavíkurstúlkur eiga einn leik í vikunni en þær mæta ÍS á útivelli. Bæði lið
gera tilkall til titilsins þetta árið og hafa á að skipa sterkum leikmönnum.
Keflavíkurstúlkur virðast ekkert hafa gefið eftir þrátt fyrir mannabreytingar
og ÍS virkaði afar sannfærandi í sínum fyrsta leik
„Þetta verður prófraun á okkur að spila á móti einu af toppliðunum,”
segir Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur. „Þær eru með öflugt lið og
marga landsliðsmenn, en við munum leggja okkur 100% fram og spila
sterka vörn gegn þeim.”
Jöfn keppni framund
an í kvennakörfunni
Keflavík og Grindavik hófu keppni í 1. deild
kvenna í körfuknattleik með góðum sigr-
um. Keflavík vann nágranna sína í Njarð-
vík næsta auðveldlega eins og við var að búast og
mæta firnasterkar til leiks. Þá vann Grindavík
KR á heimavelli sínum og virðast ætia að vera
með í toppbaráttunni frá upphafl í vetur.
Önnur umferðin fór fram í gær og mættust þar
Njarðvík og Grindavík í grannaslag auk þess sem
Keflavík fékk nýliða Hauka í heimsókn í Sláturhús-
ið. Blaðið var farið í prentun áður en leikjunum
lauk.
Annars virkar deildin mun jafhari en oft áður og
verður gaman að fylgjast með framvindunni í vetur.
Nýr Kani til
Keflavíkur
Körfuknattleikslið Keflavíkur
hefur fengið Bandaríkjarnann-
inn Mike Matthews til liðs við
sig fyrir átök
vetrarins. Hann
kemur í stað
Jimmy Miggins
sem var látinn
fara eftir slælega
frammistöðu í
undirbúnings-
Ieikjum.
Matthews er 24 ára og 208 cm
á hæð og er fenginn til liðsins
sem varnarmaður og frákast-
ari. Hann iék með hinu sterka
liði Florida State og var þar í
hálfgerðu aukahlutverki. Matt-
hews er engu að síður ofarlega
á lista yfir þá leikmenn skólans
sem hafa varið flest skot þrátt
fyrir að hafa einungis leikið
þar í þrjú ár.
PUNGAPRÓF
30 tonna réttindanám stýrimanna
Haldið verður námskeið í haust og verður
kennt á mánudögum, þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 17:00 - 20:00 í húsnæði
Fjölbrautaskóla Suðurnesja í stofu 101.
Kennsla verður fram í desember og prófað
verður um áramót.
Kynning verður nk. þriðjudag kl. 17:00
Kennarar verða Lárus Pálmason og
Kristján jóhannesson.
Prófdómari: Þorleifur Kr. Valdimarsson.
Innritun í síma 899 8483 eða í larus@fss.is
Mahogny • Sprautulakkað MDF
1 eldhusinnréttingar
> baðinnréttingar
' fataskápar
ímikluúrv311
Uppsettar
innréttingar í sal
Gott úrval innréttinga á lager
- stuttur afgreiðslufrestur!
www. uppsetningar. is
Innréttingar
Njarðarbraut 3g Reykjanesbæ
Sími 421 0026 Fax 421 2026
VÍKURFRÉTTIR I SPORT I FIMMTUDAGURINN14. SEPTEMBER 2004 I 23