Víkurfréttir - 14.10.2004, Blaðsíða 24
Úrslit vikunnar
Intersport-deild karla
Njairtvík-KIÍ 106-85
Njarðvík: Troy Wiley 29/11,
Matt Sayman 19, Páll Kristins-
son 15, Brenton Binninghatn
11, Friðrik Stefánsson 9/10.
KFÍ: Josli Helin 36/17, Pétur
Sigurðsson 23
Tindastóll-Ketlavík 76-110
Kellavík: Halldór Halldórsson
17/10, Magnús Gunnarsson
17, Gunnar Stefánsson 16, Jón
Nordal Hafsteinsson 14, Ant-
liony Glover 14.
Tindastóll: Svavar Birgisson
30, Ragnar Guðinundsson 12,
Nikola Cvjetkovic 12, Axel
Kárason 11/14.
Grindavík-Snæfvll 90-80
Grindavík: Darrel Lewis
35/11, Páll Axel Vilbergsson
14, Justin Miller 12/20, l lelgi
Jónas Guðfinnsson 11
SnæfelkSiguröur Þorvaldsson
23, Hlynur Bæringsson 19/22,
Pálini Sigurgeirsson 15,
Desmond Peoples 11.
Hópbílabikar Karla
Þór-Njarðvík
Njarðvík: Kristján Sigurðsson
24, Troy Wiley 18/13, Matt
Sayiuan 12, Egill Jónasson 11.
Þór: Grétar Erlendsson 18,
I lallgrímur Brynjólfsson 12,
Robert Hodgson 11/12.
Ármann-Ketlavík 54-127
Breiðablik Grindavík 76-108
Grindavík: Páll Axel Vilbergs-
son 22, Darrel Lewis 21, .lustin
Miller 21, Morten
Szmiedowicz 16.
Breiðablik: Jónas Ólason 24,
Ágúst Angantýsson 12, Loftur
Einarsson 11.
1. deild kvenna
Njarðvík-Ketlavík 49-81
Njarðvík: Jatnie Woudslra
17/16, Ingibjörg Vilbergsdóttir
9, Flelga Jónasdóttir 9.
Kellavík: Reshea Bristol 24,
Rannveig Randversdóttir 13,
María Ben Erlingsdóttir 10/9,
Bryndís Guðmundsdóttir 7/10.
Grindavík-KR 65-55
Grindavík: Erla Þorsteindóttir
21, Erla Reynisdóttir 13, Ólöf
I lelga Pálsdóttir 11.
KR: Katie Wolfe 13/10, Halla
Jóhannesdóttir 12, Georgia
Kristianssen 11.
„Erfitt að fara fra Keflavik
„Það er mjög erfitt að fara frá Keflavík því þetta
voru bestu tvö ár sem ég hef átt í þjálfun og okk-
ur gekk mjög vel,” sagði Milan Stcfán Jankovic í
samtali við Víkurfréttir. „Það var allt eins og best
gat verið, leikmenn, stjóm og stuðningsmenn
Milan segist stoltur af starfi sínu með Keflavíkurlið-
ið og nefnir sem dæmi að þrir strákar frá Keflavík
hafi verið í byrjunarliði U-21 liðs Islands á dögun-
um. „Ég stefni bara á að gera það sama hjá Grinda-
vík á næstunni.” Milan mun taka við þjálfun 2.
flokks hjá Grindavík og verður aðstoðarþjálfari
Guðjóns Þórðarsonar ef hann semur við liðið. Mil-
an er ekki ókunnugur aðstæðum í Grindavík því þar
var hann i 11 ár, þar af 4 sem þjálfari meistara-
flokks.
Þróttmikiö starf
hjá Nes í vetur
Vetrarstarfið hjá íþrótta-
félaginu Nes er komiö á
fulla ferð eftir sumarfrí.
Starfið hófst 6. September og
er æft fjóra daga vikunnar.
Æft er í tveimur aldurshópum,
cldri og yngri, og æfa á milli 60
og 70 einstaklingar hjá félag-
inu. Boðiö er upp á boccia,
sund, knattleiki og frjálsar
íþróttir eins og undanfarna vet-
ur og fara æfingar fram í
íþróttahúsinu í Hciðarskóla og
íþróttahúsinu í Grindavík.
Strax í byrjun september var
haldið knattspyrnumót SO á Sel-
fossi á vegum Iþróttasambands
Fatlaðra og urðu Nesarar i 2. sæti
í því móti.
Jóhann R. Kristjánsson keppti í
borðtennis á Ólympíumót fatl-
Eldhressir keppendur Nes á haustmóti ÍF
aðra í Aþenu í september. Það er
frábær árangur hjá Jóhanni að
komast á Ólympíumótið og eru
Nesarar mjög stoltir af sínum
manni. í ffamlialdi af þessum ár-
angri Jóhanns
verða settar
upp borð-
tennisæfingar
á vegum fé-
lagsins og er
verið að ganga
ifá æfingahús-
næði fyrir þá
starfsemi.
Laugardaginn
2. okt. var
haldið Haustmót ÍF í frjálsum
íþróttum og sendi Nes 9 kepp-
endur á mótið. Keppt var í lOOm
hlaupi, kúluvarpi, Iangstökki,
spjótkasti og kringlukasti karla
og kvenna. Mótið gekk mjög vel
og átti Nes mann á verðlauna-
pallinn í öllum greinum og oft
tvo og jaíhvel þijá.
Þessa dagana er verið að undir-
búa Islandsmót í boccia einstak-
lingskeppni sem ffam fer á Sauð-
árkróki 22. - 23. október nk. og
er mikill spenningur í liðinu.
Heimasíða Nes er: www.nes-
sport.is þar er að mikið af mynd-
efhi o.fl. frá starfi félagsins.
Anna María yfir 300 leikina!
Merkileg tímamót voru á ferli
körfuknattleikskonunnar
Önnu Maríu Sveinsdóttur í
gærkvöld, en þá lék hún sinn
300 leik í cfstu deild.
Engin önnur kona hefur spilað
jafnmarga leiki og Anna, en hún
hefur staðið í stórræðum með
Keflavík síðustu 19 árin. Hún lék
sinn fyrsta leik þann 6. október
1985. Hún hefiir síðan unnið 22
íslands- og bikarmeistaratitla
með Keflavík og 14 rninni titla.
Engin hefúr skorað fleiri stig en
hún í efstu deild kvenna, eða
4720, og hún hefur verið valin
leikmaður ársins 6 sinnum og í
lið ársins 10 sinnum. Þá hefur
hún leikið 60 landsleiki, eða
fleiri en nokkur önnur körfu-
boltakona.
„Ég hef nú lítið verið að spá í
þetta,” sagði Anna María þegar
Víkurfréttir spurða hana hvort
hún hefði stefnt að þessu lengi.
„Ég tek bara einn vetur í einu og
verð í þessu á meðan ég hef
gaman af því að spila. Þaó hefúr
sennilega haldið mér við efnið í
öll þessi ár að vinna svona mikið.
Þetta er alltaf jafii garnan og er
eiginlega orðið fíkn. Eigum við
ekki bara að segja að ég stefni á
400!” segir Anna og hlær.
Nýju lánin kynnt í Landsbankanum
Landsbanki íslands heldur kynningarfund
um nýju íbúóalánin í útibúi bankans að
Hafnargötu 57 í Keflavík næstkomandi
miðvikudagskvöld klukkan 20. Er „fjár-
málastjórum heimilanna” sérstaklega boðið á
fundinn. Á fundinum munu sérfræðingar
bankans svara spurningum varðandi nýju
lánin. Edda Rós Karlsdóttir hjá greiningadeild
Landsbankans mun fjalla um nýju lánin og
áhrif þeirra á fjármál heimilanna og hvernig
breyttir tímar kalla á nýja hugsun varöandi
greiðslubyrði. Pétur Bjarni Guðmundsson hjá
fasteignaþjónustu Landsbankans fjallar um
þá ráðgjöf sem bankinn býður viðskiptavinum
sinum varðandi lánamálin og gerir grein fyrir
lánamögulcikum.
Skráning fer fram í síma 410-8172 eða með
tölvupósti á netfangið jona.va!sdottir@lands-
banki.is
Snorri A/lár leik-
maðurársins
Snorri Már Jónsson var útnefnd-
ur leikmaður ársins á lokahófi
knattspymudeildar Njarðvíkur.
Snorri, sem var einnig leikmaður
ársins 2002, fékk einnig viður-
kenningu fyrir að hafa leikið 100
leiki fyrir félagið. Aðrir leik-
menn sem tóku við viðurkenn-
ingu voru Eyþór Guðnason
markakóngur, Aron Már Smára-
son sem þótti efnilegastur auk
þess sem Eyþór og Kristinn Öm
Agnarsson fengu viðurkenningu
fyrir 100 leiki og Friðrik Ama-
son fyrir 50 leiki.
Stórsigur hjá Njarð-
víkurdrengjum
Drengjaflokkur Njarðvílmr vann
stórsigur á Skallagrími, 103-56, i
fyrsta leik fslandsmótsins á
mánudag. Ljóst var strax í fyrsta
leikhluta að um ójafnan leik yrði
að ræða, en þá var staðan 27-5. í
hálfleik var staðan, 52-21 og
þrátt fyrir að leikur Skallagríms
hafi skánað í seinni hálfleik var
aldrei hætta á ferðum fyrir
Njarðvíkinga.
Jóhann Ámi Ólafsson áti stórleik
og skoraði 28 stig og tók 20 ffá-
köst. Næstir honum komu Daní-
el Guðmundsson með 23 stig og
Kristján Sigurðsson með 16 stig.
Þrír Keflvíkingar
í U-21 liði
Keflvíkingamir Jónas Guðni
Sævarsson, Hörður Sveinsson og
Ingvi Rafh Guðmundsson voru
allir í byijunarliði U-21 lið ís-
lands í sigrinum á Svíþjóð á
þriðjudag. Leikurinn endaði 3-1
fyrir Island, en leikið var á
Grindavíkurvelli.
24
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!