Víkurfréttir - 14.10.2004, Síða 28
Til sölu
Bolafótur 11, Njarðvík
500m2 iðnaðarhúsnæði á 2 hæðum,
möguleiki að skipta upp í eininga,
eignin er í góðu astandi.
15.400.000,-
STUÐLABERG
FASTEIGNASALA
Hafnargötu 29,2. hæð, Keflavík • Sími 420 4000
fax 420 4009 • studlaberg.is
Leikskólinn Gefnarborg í Garði
óskar eftir leikskólakennara eða
öðrum starfskrafti í hálfsdagsstöðu
eftir hádegi.
Þarf að geta hafði störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar
veitir leikskólastjóri
í síma 422 7166 og 898 7206.
mskeið í tækjasa!
Morgunnámskeið
í tækjasal
í 6 vikur.
Byrjar mánudaginn
18. október
verð kr. 7.900,-
Upplýsingar
og skráning
hjá Sigríði Kristjánsd.
í síma 899 0455
*sk
Innifalið'-
# 2x í viku manudagog
miðvikudagki.930
# cm og fitumælin
# matarprógram og
fræðslumolar
# kennsla í tækjasal
# öflug brennsla og
styrking fyrir a"a
# lyftinga prógram
i ^
gfli fl&aasitt
Sundmiðslöð Keflavíkur
S(mi 421 4455 • www.perlan.net
Glöggir vegfarendur hafa
eflaust tekið eftir mikl-
um stakkaskiptum á
Aðalstöðinni við Hafnargötu
undanfarnar vikur.
Gagngerar breytingar hafa orðið
á rekstri og aðstöðu innan dyra
og utan, en Ingi Þór
Hermannsson, deildarstjóri
markaðsdeildar Esso segir
breytingarnar hafa staðið lengi
til. „Við vissum að við þurftum
að breyta til þegar við tókum yfir
reksturinn fyrir tæpum þremur
árum. Við erurn að tala um afar
rótgróna starfsemi í Keflavík, en
við viljum gera betur og byggja
upp.” Það er ekki orðurn aukið
þar sem rekstur Aðalstöðvarinnar
nær aftur til ársins 1948 og hefiir
verið í sama húsnæði í rétta hálfa
öld.
Hin nýja Aðalstöð ber yfirskrifti-
na Veganesti - Aðalstöðin, en
Esso rekur tvö önnur Veganesti, í
Reykjavík og á Akureyri. Auk
nafriabreytingarinnar hefur einn-
ig orðið bylting í því sem er á
boóstólum í Veganesti -
Aðalstöðinni því nú er boðið upp
á skyndibita eins og hamborgara,
heitar samlokur og fleira sem er
eldað á staðnum. Þá hefur að-
kornan að lúgunum verið bætt til
mikilla muna.
Ingi segir viðtökuniar hafa verið
góðar. „Það var náttúrulega
mikið rask í surnar þegar
framkvæmdirnar voru, en við
sjáum að okkar fostu viðskipta-
vinir eru komnir aftur. og þeir
hafa lýst ánægju sinni með
breytingarnar við starfsfólk
okkar. Við iögðum metnað okkar
í þetta verkefiti og finnst vel hafa
tekist til.”
Böðvar Jónsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjanes-
bæ, er kominn á framandi
slóðir, hann situr nú í fyrsta
sinn á Alþingi. Þessa stundina
er hann að leysa Guðjón
Hjörleifsson af störfum en
þegar Guðjón snýr aftur mun
Böðvar fylla í skarðið fyrir
Kjartan Olafsson.
„Þessir fyrstu tveir dagar hafa
verið ljómandi skemmtilegir og
mjög athyglisverðir, ég hef verið
að koma mér í takt við þau
verkefni sem eru í gangi,” sagði
Böðvar. „Á Alþingi eru hlutimir
mun stærri í sniðum en í
bæjarpólitíkinni og gerast þar af
leiðandi mun hægar.” Aðspurður
sagði Böðvar að það yrði bara að
koma í ljós þegar afleysingunum
væri lokið hvort hann hygði á
framtíðarferil inni áAlþingi.
Opinn fundur
Kiwanisklúbburinn Brú
var stofnaður á Kefla-
víkurflugvelli, 7. febrú-
ar 1973.
Félagsskapurinn er um þessar
mundir að flytja sig um set til
Keflavíkur og býður öllum á
opinn fund fimmtudagskvöldið
14. október í Kiwanishúsinu að
Iðavöllum 3. Þar gefst færi á að
kynnast Kiwanishreyfíngunni,
en um er að ræða alþjóðlega
þjónustuhreyfingu manna og
kvenna, sem hafa áhuga á að
taka virkan þátt í að bæta sam-
félagið, og láta gott af sér leiða.
Húsið er opið frá kl. 8.
UPPSAGNIR SLÖKKILIÐS-
MANNA:
Reyntað end-
urskoða eina
uppsögn
Mikil óánægja er með
uppsagnir sautján
slökkviliðsmanna í
slökkviliðinu á Keflavíkurflug-
velli. Vernharð Guðnason, for-
maður Landsambands
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna (LSS), segir málið ekki
einungis varða slökkviiiðs-
menn uppi á velii licldur alla
starfsstéttina.
í síðustu viku héldu slökkviliðs-
menn uppi á Keflavíkurflugvelli
félagsfund og sendu i kjölfarið
frá sér harðorða ályktun þar sem
m.a. kom fram að með uppsögn-
unum liafi slökkviliðsmenn verið
settir í gíslingu. „Það eru allir
mjög langt niðri vegna þessa
rnáls og það er skiljanlegt því að-
ferðin sem var notuð við upp-
sagnirnar er óskiljanleg. Það
skilur enginn hvernig þeir ein-
staklingar, sem sagt var upp,
voru valdir og um það eru ekki
til neinar skýrar reglur,” sagði
Vernharð í samtali við Víkur-
fréttir.
Vernharð kærði sig ekki um að
fara út í þá umræðu að uppsagn-
imar mætti rekja til klíkuskapar
en hann taldi engu að síður eðli-
legt að ófaglærðir menn vikju
fyrir sér reyndari mönnum. „Það
eina sem ég veit fyrir víst í
augnablikinu er að það á að
reyna að endurskoða eina upp-
sögnina en hvenær það verður
gert veit ég ekkisagði Vemharð
sem átti ekki von á því að beinar
samræður deiluaðila muni eiga
sér stað. LSS mun fara með mál-
ið eins langt og til þarf og telur
Vemharð að Utanrikisráðuneytið
þurfi að koma að málinu.
Auglýsingasími
Víkurfrétla er
421 0000
28
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!