Víkurfréttir - 14.10.2004, Page 32
Bæjartáð Grindavíkur mótmælir
sameiningartillögu harðlega
Afundi bæjarráðs
Grindavíkur á mið-
vikudag í síðustu viku
var tillögum nefndar um
sameiningu sveitarféiaga
harðlega mótmælt. Segir í
fundargerð bæjarráðs að í
tillögunum sé Grindavíkur-
bær settur undir sameining-
artillögur með sveitarfélög-
um á Suðurnesjum þvert
gegn ályktun og umsögn
bæjarstjórnar.
Samkvæmt tillögum samein-
ingarnefndarinnar er gert ráð
fyrir að sveitarfélög á Suður-
nesjum verði sameinuð í eitt.
ÚTBOÐ
STÓRU - VOGASKÓLI
VOGUM VATNSLEYSUSTRÖND
Eignarhaldsfélaglð Fastelgn hf, óskar eftir tilboðum
i viðbyggingu við Stóru - Vogaskóla, Vogum á
Vatnsleysuströnd. Verkið nær til að byggja
viðbygginguna ásamt að vinna breytingar innanhúss á
eldra skólahúsi.
Viðbyggingin er alls 1.290 m2 að hluta á tveimur
hæðum.
Helstu magntölur eru:
Mót: 2.500 m2
Steypa: 460 m3
Bendistál: 40 tonn
Hitakerfi: 200 kw
Gluggar og gler: 130 m2
Léttir milliveggir: 560 m2
Niðurtekin loft: 1.150 m2
Verkinu skal vera lokiö eigi síðar en ð.ágúst 2005.
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu Halldórs
Guðmundssonar ehf Skúlatúni 6, 2.hæð, 105
Reykjavík frá kl: 10:22 n.k. þriðjudag 12.október
2004.
Tilboð verða opnuð á skrifstofum
Vatnsleysustrandarhrepps, Iðndal 2, 190 Vogar
þriðjudaglnn 26.október 2004 khll:22 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
@00
Fasteign hf
Tillaga um gerð tjald-
svæðis í Sandgerði
Tillaga um að koma á fót
tjaldsvæði í Sandgerði
var lögð fram á bæjar-
stjórnarfundi í síðustu viku. í
tillögunni sem lögð var fram af
Ólafi Þór Ólafssyni bæjarfull-
trúa Þ lista er gert ráð fyrir að
gerð tjaldsvæðisins komist á
fjárhagsáætlun bæjarins fyrir
árið 2004.
I greinargerð sem fylgir tillög-
unni segir að miklir möguleikar
séu í ferðaþjónustu í Sandgerði
og að vinna þurfi markvisst að
uppbyggingu á því sviði. Skipu-
lagt tjaldsvæði sárvanti í bæjarfé-
lagið til að gera það að vænleg-
um kosti fyrir íslenska og erlenda
ferðamenn. Segir í greinargerð-
inni að Sandgerðisbær eigi að
eiga frumkvæði að því að koma
upp slíkri aðstöðu og auka þar
sem möguleikana í ferðaþjónustu
í bænum.
Morgunkaffi í
Listasalnum
Laugardaginn 16.
október verður á ný
boðið í morgunkaffi í
Listasalnum í Duushúsum en
að þessu sinni verður lista-
verkaeign Reykjanesbæjar
kynnt.
Þar mun Gunnhildur
Þórðardóttir MA nemandi í
liststjómun við listaháskólann í
Cambridge kynna verkefni sem
hún vann fyrir safnið í sumar.
Áhugasamir eru hvattir til að
mæta. Boðið verður upp á kaffi
og bakkelsi en aðgangur er
ókeypis.
Verslunar- og þjónustuhús rís í Garði
Fyrirhugað er að byggja
verslunar- og þjónustu-
hús á horni Gerðavegar
og Garðbrautar í Garði.
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
Garðs var deiliskipulag við
Sunnubraut samþykkt með 6 at-
kvæðum gegn 1 atkvæði. Það
gerir ráð fyrir að húsið rísi þar
sem hús Sparisjóðsins er nú.
Deiliskipulagið hefur verið sent
til Skipulagsstofnunar til stað-
festingar. Ekki voru allir full-
komlega sáttir við fyrirhugaðar
framkvæmdir og lagði Arnar
Sigurjónsson, fulltrúi I-listans,
fram tillögu um að húsið risi ann-
ars staðar. Telur hann að meiri
sátt skapist um bygginguna ef
það risi að Garðbraut 51.
Tillagan var felld með þremur at-
kvæðum F-lista, fulltrúar I-lista
greiddu tillögunni atkvæði og
einn fulltrúi F-lista sat hjá ásamt
fulltrúa H-lista.
>- Aðsend grein um umhverfismál í Reykjanesbæ:
Njarðvíkinni fórnað - tii hvers?
Nú horfir Njarðvíkin sög-
unni til. Þessari nátt-
úruperlu og fuglaparadís
hefur verið raskað svo rækilega
að hún minnir helst á stórskipa-
höfn. Náttúruleg tengsl hennar
við Stakksfjörðinn og úthafið
eru rofin. Ur lofti er grjótgarður
þessi mest áberandi mannvirkið í
Reykjanesbæ!
í þágu hvers var náttúruperlunni
fórnað? í besta falli var það fyrir
misskilning - mikil mistök. I versta
falli stórbrotið skemmdarverk.
Það hefur lítið verið fjallað um
þessa framkvæmd á opinberum
vettvangi. I ársgömlu bréfí ffá Um-
hverfisstofnun kemur m.a. þetta
fram um framkvæmdina sem þá
var fyrirhuguð:
„í framlögðum gögnum fram-
kvæmdaraðila kemur fram að
fyrirhugað sé að byggja tvo sam-
tals um 740 m langa sjóvamar-
garða utan við Njarðvíkurleirur
og verði um 175 m breið sjórás á
milli garðanna. Gert sé ráð fyrir
að vestari garðurinn verði 7,5 m
hár og 33 m breiður en sá austari
5,0 m hár og 26 m breiður.
Göngustígur verði á um 6 m
breiðri fyllingu innan við sjó-
vamargarðana og gert sé ráð fyrir
þrepum upp á útsýnispalla á
krónu garðanna á nokkmrn stöð-
um og göngubrú yfir sjórásina.
Samkvæmt Aðalskipulagi
Reykjanesbæjar 1995-2015 sé
gert ráð fyrir tengibraut yfir
Njarðvík á fyrirhuguðum sjó-
vamargarði en ekki sé fyrirhugað
að ráðast í umrædda vegtengingu
við fyrirhugaðar framkvæmdir.
Gijót og kjamaefni í sjóvamar-
garðinn, samtals unt 67.000 m3,
verði tekið úr námu á iónaðar-
svæði í Helguvík. Frarn kemur
að tilgangur ffamkvæmdarinnar
sé að veija útivistarsvæðið á Fitj-
urn og fyrirhugað Víkingaland og
naust fyrir flóðatjóni og landbroti
og að staðsetning garðanna sé
valin til að tryggja að heildar-
mynd svæðisins haldist og leiran
verði ekki klofin frá Fitjum og
Víkingalandi með sjóvöm. “
Hvað vinnst og hveiju er fórnað?
í tilvitnaða bréfinu hér fyrir
ffaman kemur ffam hvilík ferlíki
þessir garðar eru. Fróðlegt væri
að vita hvað framkvæmdin öll
kostar og hver borgar. Hvað
borgar ríkið og hvað borgar
Reykjanesbær? Var ekki hægt að
verja þessurn fjármunum í neitt
þarfara? Lesa má milli línanna
að þarna verður komin akbraut
effir fáein ár - þvert ofan í gefin
fyrirheit.
Það er ljóst að þeim tilgangi „að
tryggja að heildarmynd svæðis-
ins haldist” verður ekki náð.
Leiran er að visu ekki klofin ffá
fitjunum, en hún er klofin frá
hafinu. Það tekur fyrir útsýni til
sjávar á stóru svæði. Var ekkert
hugað að þessum geigvænlegu
sjónrænu áhrifum ffamkvæmdar-
innar?
En er ekki bráðnauðsynlegt að
„verja útivistarsvæðið á Fitjum
og fyrirhugað Víkingaland og
naust fyrr flóðatjóni og land-
broti?” En ég spyr á móti: Er
meira um flóðatjón á þessu
svæði en almennt í byggðum
Suðumesja? Hvaða ár hafa orðið
stór tjón þarna? Hvað hefur
skemmst? Hvar á meint landbrot
sér stað?
Jú, ætlunin er að veija fyrirhugað
„Víkingaland” með sjóvörn. En
bygging Víkingalands er enn
ekki hafin og því varla of seint
að færa það ögn fjær fjörunni svo
ekki þurfi að fela það bak við sjö
mefra háa gijótgarða.
Greinin er birt i heild sinni á
fréttavefVíkurfrétta vf.is
Þorvaldur Örn Árnason,
vinstri grænn líffræðingur og
kennari íVogum. valdur@gi.is
32
VlKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLECA!