Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2006, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 19.01.2006, Blaðsíða 28
Aðsent efni: postur@vf.is SSINN Guðbrandur Einarsson skrifar um meirihlutann í Reykjanesbæ Kosningaverksmiðja ársins 2006 - af atvinnumálum í Reykjanesbæ Foringi sjálfstæðismanna í atvinnumálum hér í Reykjanesbæ, Þorsteinn Erlings son skrifar í síð- asta tölublað Víkurfrétta g r e i n u m kosti þess að reisa álver í Helguvík. Tiltók Þor- steinnlO ástæður máli sínu til stuðnings. Reyndar voru ástæðurnar sem hann nefndi 11 en ekki 10. Sú síðasta sem hann númeraði reyndar ekkert sérstaklega, um að við hefðum Árna Sigfússon sem bæjarstjóra og Júlíus Jóns- son sem hitaveitustjóra, lýsir í raun hvers konar Súpermanna- samfélag hann vill skapa hér. Sjálfstæðismenn eru eina ferð- ina enn að búa til kosningaverk- smiðju. Þær eru orðnar ófáar, en hafa hvergi sést nema í kosn- ingaplöggum sjálfstæðismanna og í neikvæðum tölum í efna- hagsreikningi sveitarfélagsins. Mér dettur ekki í hug að skipa mér í einhvern flokk, með eða á móti álveri í Helguvík á þessu stigi málsins. Málið er allt of skammt á veg komið til þess. Hins vegar vil ég vegna háflugs- ins í Þorsteini Erlingssyni koma aðeins niður á jörðina með þetta mál og tiltaka noltkur atriði sem munu þarfnast nánari skoðunar. Þorsteinn nefnir áhuga á Cent- ury Aluminium á byggingu 250 þúsund tonna álverksmiðju í Helguvík. Þeir vilji byrja 2008 og hefja rekstur 2010. Það er skiljanlegur áhugi álfyrirtækis í ljósi þess að álverð er í sögulegu hámarki og verður það væntan- lega áfram. Hvar gætum við verið í álröðinni? Framkvæmdum við álver á Reyðarfirði er hvergi nærri lokið. Þær munu standa yfir í a.m.k. 2 ár til viðbótar, jafn- framt því sem stækkunarfram- kvæmdir á Grundartanga eru í fullum gangi. Álverið í Straums- vík verður stækkað og áhugi norðanmanna á byggingu ál- vers á Norðurlandi hefur legið fyrir í áraraðir. Þar virðist vera að nást sátt um staðsetningu fyrir norðan og því ekkert til fyrirstöðu að hefjast handa. Ráðherra iðnaðar og viðskipta kemur einnig frá því svæði og ekki mun það skemma fyrir. Því tel ég ekki rétt að gera ráð fyrir að Suðurnesin eigi nokkra möguleika næsta áratuginn að minnsta kosti. Alþjóðasamþykktir íslendingar eru aðilar að Kyoto- bókunni svokölluðu, sem er bókun við rammasamning SÞ um loftlagsbreytingar frá árinu 1997. Þar undirgengust margar þjóðir að draga úr loftslags- mengun eins og hún var árið 1990. Nokkrar þjóðir fengu undanþágu frá þessu ákvæði á ýmsum forsendum. íslendingar fengu slíka undanþágu þegar þeir undirgengust samkomu- lagið árið 2002. Samkomulagið við íslendinga gerir ráð fyrir að útstreymi gróðurhúsaloft- tegunda frá Islandi megi ekki aukast meira en sem nernur 10% frá árinu 1990. Það má reikna með að þegar álverið á Reyðarfnði verður komið í full afköst og framleiðsla hefur auk- ist, bæði á Grundartanga og í Straumsvík, verði lítið eftir af þessum aukamengunarkvóta sem íslendingar fengu. Ruðningsáhrif Við upphaf framkvæmda við Kárahnjúka urðu margir til þess að vara við þeim ruðn- ingsáhrifum sem slík risafram- kvæmd hefði í för með sér. ís- lenska hagkerfið væri það iítið að samkeppnisstöðu margra starfsgreina yrði raskað veru- lega. Því miður hafa varnaðar- orð þessara aðila ræst. Fyrirtæki í fiskvinnslu, sprotafyrirtæki og hátæknifyrirtæki eru farin úr landi eða hyggjast flytja vegna hás gengis íslensku krónunnar. Ferðaiðnaðurinn sem er vax- andi atvinnugrein, er ekki að auka tekjur sínar þrátt fyrir fjölgun ferðamanna. Þensla er í hagkerfinu og viðskiptahalli er sögulegur. Þekkingarsamfélög - frumframleiðsla Þessi áhrif hljóta að vera ráða- mönnum umhugsunarefni og gera má ráð fyrir að staldrað verði við að afloknun fram- kvæmdum á Austurlandi og hagkerfið kælt niður. Það getur ekki verið keppikefli neinnar þjóðar að skipta út störfum sem byggja á þekkingu og hátækni fyrir störf í verk- smiðjum sem byggja á frum- framleiðslu. Slíkt væri aftur- hvarf til fortíðar. Það er þekking- ariðnaðurinn sem er að skapa þjóðum heirns aukin verðmæti. Staðsetning (Álver í miðbænum) Suðurnesjamenn þurfa einnig að velta fyrir sér hver eigi að vera staðsetning slíkrar verk- smiðju ef til hennar kemur. Ný- verið gengum við til kosninga um sameiningu sveitarfélaga hér á svæðinu. Þrátt fyrir að nið- urstaðan hafi orðið sú að íbúar hafi kosið óbreytt ástand, geri ég ráð fyrir að til lengri tíma verði liorft til sameiningar sveitarfé- laganna í Garði og Sandgerði og Reykjanesbæ. Ef til slíkrar sameiningar kæmi yrði álverið staðsett inn í sveitarfélaginu miðju. Er það ekkert til að hafa áhyggjur af? Orkugarður - Stálpípa. Það var fleira í kosninga- plöggum sjálfstæðismanna fýrir síðustu kosningar en stálpíp- verksmiðja, sem þeir hafa nú slegið af. Þar rnátti m.a lesa um háleitar hugmyndir um Orku- garð, einhverskonarháskólasam- félag í kringum Hitaveitu Suð- urnesja. Sú hugmynd er góðra gjalda verð, en því miður hefur minna farið fyrir umræðum um hana á þessu kjörtímabili. Súpermennirnir hans Þorsteins gætu kannski upplýst okkur um stöðu þess máls enda höfðu aðal- hlutverkin verið ætluð þeim. Það er að mörgu að hyggja þegar ráðist er í framkvæmd af slíkri stærðargráðu sem hér um ræðir.Umræðan um kosti og galla álvers í Helguvík á eftir að fara fram og það mun líða langur tími þar til til hægt verður að komast að niðurstöðu um hagkvæmi þess að reisa hér álver, ekki bara fyrir okkar sam- félag, heldur þjóðfélagið allt. Þessi verksmiðja verður ekki notuð í þessari kosningabaráttu eins og sjálfstæðismenn gjarnan vilja. Það er gott til þess að vita að kjörnir fulltrúar hafi áhuga á atvinnumálum hér á svæðinu en ég vildi gjarnan sjá menn hugsa aðeins smærra í sniðum. Við þurfum ekki alltaf að skapa hundruði starfa í einu og leggja allt undir. Sígandi lukka er best. Við höfurn glímt við einhæfni í atvinnulífi liér á Suðurnesjum og markmiðið ætti því að vera að auka á fjölbreytni til þess að sem flestir geti fengið starf við hæfi. Guðbrandur Einarsson bcejarfulltrúi Samfylkingarinnar í Rcykjanesbœ FASTEIGNASTOFA SUÐURNESjA WWW.FST.IS Kjarrmói 4 - Njarðvík Nýlegt 184m2,4 herb. parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.Flísalagt anddyri með hita í gólfi. Rúmgott eldhús með góðum tækjum ogflísalögðu gólfi. Sjónvarpshol með gegnheilu eikarparketi, fataherb. inn af hjónah. Mjög vandað, sérstök áhersla á hljóðeinangrun milli húsa. Vel staðsett. Skagabraut 36 - Garður Mjög gott 126m2,4 herb. einbýlishús með 68m2 bílgeymslu. I bílgeymslu er vinnuaðstaða sem skiptist í anddyri, salerni, vinnuher- bergi og bílgeymslu. Vel við haldiö, nýlega steniklætt, nýir gluggar og gler að hluta, skipt um hita og vatnslagnir ‘93 ofl. Húsið er vel staðsett, opið svæði í kring, sérlega fallegt útsýni og rólegur staður. I lAI NARGÖTIJ .51-55 llfYKIANI SIVi;//SÍMI 4204050// GUNNURMAGNÚSDÖITIRSÍMI 864 3802// SÆVAR I’IÍTURSSON SÍMI 8942252 ÁSBJÖRN JÓNSSON HDL. & LÖGGILDUR FASTEIGNASALI VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 28 IVÍKURFRÉTTIR : 3.TÖLUBLAÐ ' 27. ÁRGANCUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.