Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2006, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 19.01.2006, Qupperneq 19
Stöndum þétt við bakið á börnum og unglingum þegar kemur að erfiðum ákvörðunum: Hjálpum unglingum að bíða! Reykjanesbær var fyrsta sveitarfélagið á íslandi sem bauð öllum nem- endum upp á forvarna- og fræðsluverkefnið Hugsað um barn. Fjöldi skóla í Iand- inu hefur síðan sýnt verkefn- inu vaxandi áhuga bæði nem- endur, foreldrar og kennara, heilsugæslustarfsmenn og fleira fagfólk. Nú er nemendum í 8. bekk í Reykjanesbæ boðið upp á verk- efnið annað árið í röð. Verk- efnið hefst í Njarðvíkurskóla og verður kynning fyrir foreldra n.k. þriðjudag 24. jan kl. 17.15. í Njarðvíkurskóla. Verkefnið vekur nemendur til umhugsunar um afleiðingar kyn- lífs og leitast við að hafa áhrif á að þeir byrji að stunda kynlíf eldri en nú þekkist og af meiri ábyrgð. Nemendur fá í hendur dúkku sem þeir eiga að annast eina helgi og kynnast þannig þeirri ábyrgð sem því fylgir að annast ungbarn. Hluti af fræðsl- unni er einnig mjög áhrifarík fræðsla um skaðsemi áfengis og vímuefnaneyslu og hjálpar nem- endum að forgangsraða og sjá Listirog menning Guðrún Einarsdóttir á Lista- safni Reykjanesbæjar Laugardaginn 21. janúar n.k. kl. 15.00 verður opnuð einkasýning Guð- rúnar Einarsdóttur á Lista- safni Reykjanesbæjar. Guðrún sýnir þar rúmlega tuttugu ný verk unnin með olíu á striga ásamt skúlptúrum unnum úr frauðplasti og litarefni á tré. I sýningarskrá sem gefin er út af þessu tilefnisegir Aðalsteinn Ing- ólfsson m.a. um verk Guðrúnar: „í seinni tíð hefur Guðrún lagt bæði dýpri og heildrænni skiln- ing í „náttúruna", tengt saman hinar stóru lífrænu heildir jarð- . fræðinnar, smáheima líffræð- innar og ofurvíddir stjörnufræð- innar. I nýjustu verkum hennar erum við stödd við upptök sjálfs lífsins, þar sem síbreytingin er eina staðreyndin sem hægt er að reiða sig á. Um leið eru verk Guðrúnar langt í frá köld og vísindaleg; þvert á móti eru þau borin uppi af ríkum og full- komlega „órökrænum” tilfinn- ingum. Þær tilfinningar snerta umgengni okkar við þá marg- brotnu og viðkvæmu lífrænu veröld sem við höfum fengið að láni og eigum að skila óskadd- aðri til afkomenda okkar.” Guðrún Einarsdóttir hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum frá ár- inu 1990. Hún hefur hlotið við- urkenningu sem einn af okkar áhugaverðustu listamönnum í dag og var m.a. einn af full- trúum Islands á Carnegie Art Award 1999. Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og er staðsett í sýningarsal Lista- safnsins í Duushúsum, Duus- götu 2-10 í Reykjanesbæ. Sýn- ingin stendur til 5. mars n.k. FREITASIMINN SQLABHRjNGSVAKT 8982222 mikilvægi þess að leggja rækt við námið í grunnskólanum. I október s.l. fór af stað forvarn- arverkefnið Ég ætla að bíða. Síðan höfum við séð fréttir þess efnis að áfengisauglýsingar hafa aukist og aðra frétt þess efnis að áfengisauglýsingar skila árangri. Þannig getur umhverfi unglinga verið kynlífs- og áfengis hvetj- andi og mikilvægt að hinir full- orðnu hjálpi til að við að hvetja börnin til að bíða með að lifa kynlífi og nota áfengi. Stefna þarf að því að börn séu ekki kyn- lífsiðkendur eða farnir að nota áfengi á grunnskólaaldri. 40% unglinga sem fara í meðferð hjá SÁA hafa ekki lokið grunn- skólaprófl. Bíði unglingar með að nota áfengi til 17 ára aldurs eru minni líkur en ella á því að þau ánetjist fíkniefnum seinna á lífsleiðinni. HUB verkefnið er ekki aðeins mjög áhrifaríkt fyrir samstarf og samskipti heimilis og skóla, að auki er hér á ferðinni öflugt verkefni eða tæki fyrir foreldra til að sinna siðferðisuppeldi. Verkefnið var tilnefnt til for- eldraverðlauna Heimilis- og skóla, landsamtaka foreldra s.l. vor. Foreldrar þurfa stuðning í sínu uppeldishlutverki og sér- staka hjálp til að hjálpa börnum sínum að bíða með að lifa kyn- lífi og nota vímuefni. HUB verkefnið er í samstarfi við Fræðslumiðstöð í fíkni- vörnum. Skólastjórendur, kennarar, hjúkrunarfræðingar, Fjölskyldu- og félagsmálasvið og Vinnuskóli Reykjanesbæjar hafa hafa tekið þátt í verkefn- inu. Hitaveita Suðurnesja, Spari- sjóðurinn og Verslunarmannafé- lag Suðurnesja hafa styrkt verk- efnið. Kennarar gera sér grein fyrir því að það er svo miklu auðveldara fyrir nemendur að ná árangri í grunnskólanámi ef þeir eru ekki kynlífsiðkendur eða farnir að nota áfengi. Foreldrar þurfa að standa vörð um börnin sín gegn því mikla flóði áróðurs sem gengur yfir börn og unglinga bæði í gegnum auglýsingar og ýmsan áróður. Gagnrýnin hugsun og samræður við börn um afleið- ingar er árangursrík leið til að hjálpa þeim að taka afstöðu og ákvörðun um að bíða. Nán- ari upplýsingar á vefsvæðinu: http://www.obradgjof.is/pdf/ allt_saman.pdf Ólafur Grétar Gunnarsson ráðgjafi hjá ÓB-ráðgjöf MÁMSKEEÐ Á NÆSTONNI ★ Handverk Að gera upp gömul húsgögn Rafmagnsfræði til heimilisnota Skartgripasmíði Skrautskrift Tréútskurður Ullarþæfing Víkingaklæðnaður Málun Teiknun/málun/litafræði Blönduð tækni/steypa Starfstengd námskeið Bókhald sem stjórntæki Lyfhrifafræði Markaðsmál í fyrirrúmi Siðferðileg álitamál Vélgæsla ★ Tungumál Enska Islenska fyrir útlendinga Spænska Nánari uppl.og skráning í síma 4217500 www.mss.is ★ Lystisemdir Egypsk matargerð Indversk matargerð Smurbrauðsnámskeið Lesblindugreining ★ Lestur og skrift Hraðlestrar námskeið Lestrarerfiðleikar fullorðinna Viltu bæta stafsetningu þína? f Ymis námskeið Fjarmál heimilanna Sakamálasögur Sportköfun Stafrænar myndavélar ^ Tölvunámskeið Iðnnám ★ Grunnmenntaskólinn 300 kennslustundir Landnemaskólinn 120 kennslustundir STÆRSTA FRÉTTA- OC AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VÍKURFRÉTTIR FIMMTUDAGURINN19.JANUAR2006 19

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.