Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2006, Side 27

Víkurfréttir - 19.01.2006, Side 27
nýjustu fréttir alla daga rvf.is Sundkonan Hulda Hrönn úrVogum: Júdó í Akademíunni Júdódeild Þróttar í Vogum undir forystu Magnúss Haukssonar mun standa fyrir júdónámskeiði fyrir nemen- dur Íþróttaakademíunnar í Reykjanesbæ á næstu tveimur vikum. Æfing er kl. 13 í dag þar sem Akademíunemar fá leiðsögn í hinum ýmsu byltum og brögðum, en svo verður ön- nur æfing á þriðjudag ko- mandi. Júdókynningunni lýkur svo með móti í Akademíunni þann 28. janúar. Njarðvík lá gegn HK Njarðvíkingar máttu sætta sig við 4-0 tap gegn HK í Fíf- unni í á dögunum en þetta var fyrsti æfingaleikur Njarð- víkinga á undirbúningstíma- bilinu. Gestur Gylfason lék sinn fyrsta leik með Njarðvík og var í byrjunarliðinu. 3. og 4. flokkur í úrslit Um helgina tryggðu 3. og 4. flokkur GRV sér þátttöku- rétt í úrslitum á fslandsmót- inu í innanhúsknattspyrnu kvenna. Þá tryggði 5. flokkur R/V sig einnig inn í úrslitin. Úrslit 3. og 4. flokks um helg- ina: 3. flokkur GRV - Víkingur = 4-0 GRV - Stjanan = 10-4 GRV-FH =9-1 4. flokkur GRV - fR = 2-0 GRV - HK = 3-1 GRV - Fjölnir = 4-0 GRV - BÍ = 2-0 Grindavík sigraði Reyni í Reykjaneshöll Grindavík sigraði Reyni í æfingaleik í knattspyrnu á þriðjudagskvöld, 5 - 1. Sinisa Kekic gerði sér lítið fyrir og skoraði 4 mörk í fyrri hálfleik. Scott Ramsey bætti svo við einu í seinni hálfleik áður en Reynir minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu. Það vakti athygli í gær að í marki Grindavíkur stóð ungur Bandaríkjamaður. Heitir hann Nick og er ný- kominn til landsins og segir á heimsíðu UMFG að hann hafi óskað eftir að fá að sýna hæfileika sína með Grinda- víkurliðinu. Stefnir á ÓL Hulda Hrönn Agnars- dóttir, 14 ára sund- kona úr Vogum, vann það mikla afrek á nýársmóti fatlaðra sem fór fram á dög- unum, að hampa Sjómanna- bikarnum, sem er veittur stiga- hæsta sundmanni mótsins. Hún hlaut 575 stig og sigraði í 50 metra skriðsundi, en þetta var í 20 skiptið sem bikarinn er veittur. Bikarinn gaf Sigmar Ólafsson, sjómaður, til keppn- innar. Hulda Hrönn, sem æfir stíft með sundfélaginu Firði í Hafn- arfirði, sagði í stuttu spjalli við Víkurfréttir að þó að sundið væri mjög tímafrekt væri það alltaf jafn skemmtilegt. „Ég er á æfingum sex daga vikunnar og fæ svo einn dag í frí. Það er rosa- lega gaman á æfingum því þar eru allir vinir mínir sem ég er búin að æfa með í mörg ár.” Hulda hefur verið í landsliðinu um nokkurt skeið og farið í íjölmörg keppnisferðalög. Hún hefur unnið fjöldan allan afverð- launum á stórum mótum og stefnir ennþá lengra. „Ég ætla að að halda áfram að leggja hart að mér og stefni að sjálfsögðu á að komast á Ólymp- íuleikana einhvern daginn. Til að ná því ætla ég að halda áfram að mæta vel á æfingar og gera mitt besta,” segir þessi efnilega sundkona. Það sem er framundan hjá Huldu á næstunni eru þrjú mót sem hún sækir erlendis, í Þýska- landi, Svíþjóð og Danmörku. Þar ætlar hún að sjálfsögðu að standa sig vel og vinna til verð- launa sem bætast í ört stækk- andi safn hennar. Töpuðu á Ásvöllum Haukar sigruðu Grinda- vík 73-72 í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik á mánudags- kvöld. Með sigrinum náðu Haukastúlkur fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar. Helena Sverrisdóttir var að vanda allt í öllu hjá Haukum, en hún skoraði 33 stig og tók 17 fráköst auk þess að stela níu boltum. Leikurinn var í raun eingvígi milli hennar og Jericu Watson hjá Grindavík, en hún skoraði 30 stig, tók 17 fráköst og varði 9 skot fyrir Grindavík. Haukar hafa nú 22 stig að loknum 12 umferðum en Grindavík er í öðru sæti með 18 stig. Ný iþrótt er að ryðja sér tifgims í Reykjaneshölinni, en það er hið risbee-golf, eða Folf. nýst um að koma disknum í „holuna” Netið er uppi í Höllinni á þriðjudags og udagsmorgnum. gsblómin Fotleg gjafavara eftir norrœna hönnuði Tilboð á túlipönum kr. 990,- Nellikur á tilboði kr. 250,- Opið: mán - fös: 10-18 fös - lau: 10-19 sun: 12 - 18 du matt kaupc OQrJíkar ekki fo bjoðum uppa: (wsti'|a?fil9pllinn afgreiddur kl ^fimmtudag. a [Sf^tíi^emmtanalðgga SRemmtanaioqqa )kkur ef _ ) æm viö cafe.bar.keflavík yello IÞROTTASIÐUR VIKURFRETTA ERU 1 BOÐI LAIMDSBANKANS

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.