Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.10.2006, Side 23

Víkurfréttir - 05.10.2006, Side 23
Stemmningin sem ríkti i Glaumbergi fyrir 20 árum var rifjuö upp í Stapanum á laugardagskvöldiö. Fram komu sumir þeirra skemmtikrafta sem héldu uppi stuðinu i Glaumbergi á sínum tíma. Hljómsveitin Miðlarnir rifjaðu upp gamla takta og lék fyrir dansi fram á nótt. Ellert Grétarsson tók þessar svipmyndir frá Glaumbergskvöldinu en fleiri myndir frá herlegheitunum er hægt að skoða í Ijósmyndasafninu á vef Víkurfrétta, vf.is. búMeNN, Búmenn auglýsa íbúðir Búmenn hsf Húsnæðisfélag Suðurlandsbraut 54 108 Reykjavík Sími 552 5B44 Fax 552 5944 bumenn@bumenn.is www.bumenn.is Grindavík íbúðir í nágrenni við dvalar- og hjúkrunarheimilið Víðihlíð í Grindavík. Til sölu er búseturéttur í 10 íbúðum í parhúsum við Víðigerði í Grindavík. Hér er um að ræða annan áfanga af tveimur en fyrsti áfangi var afhentur nýjum eigendum um miðjan september s.l. Um er að ræða 2ja herb. íbúðir ásamt bílskúr og garðskála samtals um 120m2 að stærð. íbúðirnar verða um 91 m2 með garðskála. íbúðirnar verða afhentar fullbúnar ásamt frágengnum garði og er stefnt að því að þær verði til afhendingar haustið 2007. Félag eldri borgara í Grindavík og Grindavíkurbær hafa unnið með Búmönnum að verkefninu. Þar sem væntanlegir íbúar munu geta nýtt sér þjónustu Víðihlíðar munu þeir njóta forgangs við úthlutun sem eru eldri en sextugir. Reykjanesbær Til sölu er búseturéttur í 9 íbúðum við Stekkjargötu sem byggðar verða fyrir Búmenn í Innri Njarðvík. Um er að ræða 3ja herb. íbúðir ásamt bílskúr og garðskála. Heildarflatarmál íbúðar ásamt bílskúr er um 120m2 og er garðskáli um 14m2. Um er að ræða 6 íbúðir í parhúsum og 3 einbýlishús. Hér um að ræða síðasta áfanga af þremur. Fyrirhugað er að afhenda íbúðirnar í febrúar 2007. íbúðirnar verða fullbúnar með frágenginni lóð og hlutdeild í samkomuhúsi. Með þessum áfanga verður fjöldi íbúa samtals 41 á lóðinni. Þeir sem sóttu um annan áfanga og settu sig á biðlista fyrir þennan áfanga þurfa að staðfesta umsóknir sínar. Réttur til kaupa miðast við 50 ára og eldri. Umsóknarfrestur er til 16. október n.k. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 54 eða í síma 552 5644 milli kl. 9-15. STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VÍKURFRÉTTIR FIMMTUDAGURINN 5. OKTÓBER 2006 23

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.