Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 14.12.2006, Qupperneq 14
Arangur Keflvíkinga á knatt- spyrnuvöllum hér heima og er- lendis undanfarin ár hefur verið með miklum ágætum, en óhætt er að segja að árangur tveggja ungra manna, þeirra Guðmundar Oddssonar og Þórs Kristjánssonar, sem settust nýverið í stjórn enska stórliðsins West Ham, hafi vakið enn meiri athygli. Báðir eru þeir sannir Keflvíkingar, Þór lék með yngri flokkum félagsins og Guð- mundur lék með liðinu allt upp í meist- araflokk þar sem hann lék í fjögur ár, til 1999, og gerði m.a. tvö mörk á ferl- inum og varð bikarmeistari 1997. Guð- mundur er einn af eigendum lögfræði- stofunnar Logos og stýrir útibúi hennar í London. Þór er einn af nánustu samstarfs- mönnum Björgólfs Guðmundssonar og sitja þeir í stjórn liðsins ásamt Eggerti Magnússyni, stjórnarformanni. í stuttu spjalli við Víkurfréttir sagði Guð- mundur að góðir straumar léku um fé- lagið þrátt fyrir umbrotatíma. Var langur aðdragandi að þátttöku þinni í þessu verkefni? Nei, í sjálfu sér ekki. Yflrtökur fyrirtækja eru yfirleitt verkefni sem taka nokkra mánuði en í þessu tilviki er um að ræða yfirtöku á skráðu félagi þannig að ferlið í því er tiltölulega einfalt þegar búið er að semja um verð og skoða félagið ofan í kjölinn. Nú þóttir þú liðtækur í fótboltanum á sínum tíma. Var það einn af kostunum sem Eggert og Björgólfur sáu við að fá þig inn í samstarfið? Ég hefði viljað halda það en því miður er það ekki þannig. Það er víst ekki verið að leitast til þess að ég komi með takka- skóna. Þeir vita samt að ég spilaði og skil leikinn að einhverju leyti, en mitt hlutverk var að- allega ráðgjöf við yfirtökuna og eftir hana ráðgjöf um rekstur og þróun félagsins. Gengi liðsins hefur ekki verið gott síðan þið tókuð við. Hvernig lýst ykkur á framhaldið? Félagið var að sjálfsögðu keypt til að gera eitthvað úr því og við munum ekki sætta okkur við neitt annað en árangur. Nú verðum við að skoða næstu skref því ár- angurinn í síðustu tveimur leikjum hefur verið afleitur. Skipt hefur verið um þjálf- ara og verður það hlutverk nýs þjálfara að byggja upp lið sem nær árangri. West Ham er gott lið í grunninn en við verðum að bæta við okkur leikmönnum og byggja liðið upp. West Ham er líka þekkt fyrir það í Englandi að vera uppeldisstöð fyrir efnilega knattspyrnu- rnenn sem hafa náð mjög langt og nægir þar að nefna nokkur af stærstu nöfnunum í enska boltanum í dag; Frank Lampard, Joe Cole, Ferdinand bræður, Carrick og fleiri og fleiri. Þannig hefur þetta verið í ára- tugi og við munum að sjálfsögðu fjárfesta áfram í því uppbygging- arstarfi og vonum að við náum að halda lengur í okkar bestu leikmenn en hefur verið raunin. Hvaða liði hélstu með i enska boltanum áður en þú settist í stjórn West Ham? Ég er með Liverpoolmann innra með mér í dvala en það verður að segjast eins og er að maður hefur ekki haft svona gaman af því að fylgjast með fótbolta síðan maður var sjálfur að spila. Litli bróðir hefur ekki enn fyrirgefið mér þessi umskipti en hann á eftir að koma með mér á völlinn og mun ég þá snúa honum snarlega með sama hætti og ég gerði við pabba um daginn. Hefur þú fylgst með fótboltanum hér heima á fslandi? Já, ég reyni að fylgjast vel með Keflavík og reyni að þekkja nöfnin á þessum nýju strákum. En svo eru nú ennþá gamlir skunkar þarna inni á milli sem ég spilaði með sjálfur. Ég sé ann- ars lítið af íslenskum fótbolta en reyni að fara á leiki þegar ég er á landinu. Munuð þið skoða ís- lenska leikmenn fyrir West Ham? Það eru menn hér í stjórninni með tengsl við ýmis félög og að- gangur að íslenskum klúbbum er góður, þannig að ef efnilegir íslenskir leikmenn koma upp munum við íylgjast með þeirn eins og leikmönnum frá öðrum löndum. Hefur þú hugsað þér að starfa í þessum geira fótboltans í langan tíma? Það er eitthvað sem ræðst ekki bara af mér, því svo lengi sem er þörf fyrir mína þekkingu og þjónustu hef ég bara gaman af þessu. En það er nú þannig að rekstrarumhverfi fyrirtækja hér úti er að mörgu leyti flóknari en við eigum að venjast svo það er ekki óvana- legt að svona jólasveinar eins og ég, sem eiga að kunna eitthvað af formlegheit- unum í þessum bransa, séu hafðir með. Nú hafa stuðningsmenn oft tekið nýjum eigendum félaga illa eins og sást með Man Utd um árið. Hvernig hafa stuðningsmenn West Ham tekið ykkur eftir yfirtökuna? Þeir hafa tekið okkur mjög vel og virð- ast kunna að meta þá sýn sem nýir eig- endur hafa á framtíð klúbbsins. Það þarf hins vegar líka að taka með í reikninginn að auk okkar tilboðs var tilboð frá hópi umboðsmanna sem höfðu sínar hug- myndir um áframhaldið, m.a. að dæla inn í Jdúbbinn leikmönnum sem væru á þeirra snærum til að láta þá leika í úrvals- deild og selja þá aftur íyrir hærra verð. Samanburður á okkur og t.d. Glazer hjá Man Utd stenst heldur ekki þar sem sá maður hefur aldrei mætt á heimaleik síns liðs og virðist ekki hafa mikinn á huga á leiknum sem slíkum. Nýir eigendur West Ham eru hins vegar forfallnir fótboltafíklar og stuðnings- menn eru ánægðir með það. Björgólfur og Eggert eru báðir frægir fyrir áhuga á knattspyrnu og Eggert er mjög virtur í alþjóðaknattspyrnusamfélaginu. Þetta lesa stuðningsmenn í blöðunum og eru ánægðir með að fá einhverja sem vita hvað þeir eru að gera og eru að kaupa klúbbinn upp á árangur hans en ekki til að vera hliðarverkefni í leikmanna- málum. Þannig að hér er mikil hamingja. Við erum stór, fornfrægur klúbbur þar sem er uppselt á alla heimaleiki og fjöl- mennur hópur stuðningsmanna fylgir lið- inu hvert sem er. West Ham á sér glæsta fortíð og vonandi glæsta framtíð. Það verður áhugavert að sjá hvernig Keflvíkingunum ungu mun reiða af í ensku úrvalsdeildinni, en Guðmundur segist einnig hafa fengið góð viðbrögð að heiman. Þar leynast allnokkrir stuðnings- menn West Ham, þar á meðal Rúnar V. Arnarson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, sem er „Hamar” nr. 1 á Is- landi. 14 IVIKURFRETTIR I 50.TOLUB1AÐ-JÖ1AB1AÐIÐ2006 I 27. ÁRGANCUR VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGIEGA!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.