Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 16

Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 16
FÓÐRUN GÆLUDÝRA Það er ýmislegt sem hafa þarf í huga þegar kemur að fóðrun gæludýra. Mikill fjöldi tegunda hunda- og kattafóðurs er á mark- aðnum og hægt er að velja á milli þurrfóðurs, dósamats og mis- munandi innihaids- og hragðefna, svo eitthvað sé nefnt og skal því engan undra að valið geti verið erfltt. Gæði þessa tilbúna fóð- urs eru þó afar misjöfn og byggjast m.a. á uppruna hráefnanna og samsetningu þeirra. Undanfarið hafa vinsældir hráfæðis farið vaxandi en það sjá eigendur sjálfir um að útbúa. í þessari grein mun ég taka fyrir nokkur atriði sem varða gæludýrafóður. Innihaldslýsingar Innihaldslýsingar á gæludýrafóðri veita yfirleitt nokkuð góðar vísbendingar um gæði fóðursins. í hráefnalistanum er fyrst talið það hráefni sem hlutfallslega mest er af og svo koll af kolli. Síðan er næringargildi fóðursins gerð skil, þ.e. hlutfall próteins, kol- vetnis, fitu o.fl. Nauðsynleg næringarefnl Kettir eru kjötætur en hundar eru í raun alætur, þ.e. auk kjöts þarfnast þeir fæðu úr öðrum fæðuflokkum. Öll dýr þurfa prótein, kolvetni, fitu, vatn, vítamín og steinefni til að vaxa, þroskast og viðhalda heilbrigði. Prótein eru samsett úr amínó- sýrum; efnasamböndum sem líkaminn notar til að viðhalda eðlilegri starfsemi. Sumar amínósýrur getur líkaminn framleitt sjálfur en aðrar ekki og er því lífsnauðsynlegt að fá þær úr fæðinu, þ.e. úr dýra- eða plönturíkinu. Gæði próteinanna sem hundar og kettir fá úr fóðri veltur á samsetningu þeirra, þ.e. hvaða amínósýrur þau innihalda. Hreint kjöt er besti prótein- gjaflnn, svo má nefna kjötmjöl (meat meal), þar á eftir kjöt- og beinamjöl og að lokum aukaafurðir/innmat (byproducts). Ef fóðrið inniheldur hlutfallslega mest af kornmeti (corn, cereals) má ætla að próteinið sé af lakari gæðum. Alla jafna má segja að kjúklingakjöt sé einn besti próteingjafinn fyrir hunda og ketti en það skiptir sem sagt miklu máli hvort um er að ræða kjöt, kjöt- og beinamjöl eða aukaafurðir. Þurrfóður eða dósamatur? Þegar kemur að því að velja á milli þurrfóðurs og dósamats er vert að hafa nokkur atriði í huga. Þurrfóður er yfirleitt ódýrara, það þolir að standa í einhvern tíma í matardallinum og það er betra fyrir tennurnar en dósamaturinn. En það getur verið erfitt að fá suma hunda og sérstaklega ketti til að éta þurrmatinn. Blautmatur í álpokum (skammtastærðum) nýtur mikilla vin- sælda en slíkur matur er yfirleitt ekki hugsaður sem heilfóður heldur sem viðbót. Aukabitar Allir hundaeigendur (og sumir kattaeigendur) kannast við biðj- andi augu við matarborðið sem getur verið afar erfitt að hafna. Margir falla í þá gryfju að gefa heimilisdýrinu eitthvað smávegis að narta í þegar fjölskyldan borðar kvöldmatinn. Sömu eigendur kvarta oft yfir því að dýrin vilji alls ekki fóðrið sitt, sama hvers konar fóður er í boði. Þá er mikiivægt að átta sig á að aukabitar geta verið ansi orkuríkir og í mörgum tilfeilum slagað hátt í orkuþörf dýranna. Sem dæmi má nefna smáhund sem vegur 2,5 kg. Orkuþörf hans er u.þ.b. 200 kcal á dag sem er á við eina (stóra) pyisu. Mun skynsamlegra er að nota gott hundakex til að verðlauna með og fyrir kettina er alltaf gott að eiga rækjur í fryst- inum fyrir sérstök tilefni. Að lokum er ekki úr vegi að minnast á hátíðirnar sem eru framundan þar sem veisluborðin svigna undan veitingunum. Reykt kjöt, feitar sósur og súkkulaði í miklu rnagni geta farið mjög iila í maga gæludýranna og orsakað alvarleg veikindi. Því er æskilegt að fara mjög varlega í slíkar matargjafir enda er Snata slétt sama um hvort það er 24. desember eða 24. mars! Hrund Hólm dýralœknir Dýralœknastofa Suðumesja - www.dyri.com VlKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27.ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is * LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.