Víkurfréttir - 14.12.2006, Qupperneq 20
Verslunin Samkaup
Strax, sem er sennilega
betur þekkt sem Spar-
kaup á Hringbraut, fagnar á
morgun 50 ára afmæli sínu.
Það var 1956 sem Kaupféiag
Suðurnesja opnaði fyrstu
sjálfsafgreiðsluverslunina á
Suðurnesjum, Kjörbúðina, að
sænskri fyrirmynd og þótti
slíkt tíðindum sæta, enda var
einungis ein önnur slík verslun
á landinu. Á þessum tíma tíðk-
aðist að kaupmaðurinn stæði
fyrir aftan búðarborðið og
sækti vörurnar sjálfur og þótti
mörgum þessi nýstárlega að-
ferð vafasöm. „Það voru nú
sumir sem óttuðust að við-
skiptavinirnir finndu ekkert
og þess háttar vangaveltur. En
þetta gekk annars mjög vel,”
segir Guðjón Stefánsson, kaup-
félagsstjóri og fyrrum fram-
kvæmdastjóri Samkaupa.
Guðjón byrjaði einmitt feril
sinn hjá Kaupfélaginu í Kjör-
búðinni ári eftir að búðin opn-
aði, þá 13 ára, og var þar í tvö
sumur. Hans fyrstu skyldustörf
voru að vigta sykur, hveiti, skyr
og þess háttar fyrir kúnnana,
en eftir það fór hann að vinna í
verslun kaupfélagsins að Hafnar-
götu 30 sem seldi matvöru, búsá-
höld, föt og margt fleira.
Ekkert var til sparað þegar Kjör-
búðin var sett á laggirnar og var
byggt nýtt hús undir verslunina
sem var 100 fermetrar til að
byrja með en var síðar stækkuð
um 3-400 fermetra. „Hún væri
frekar lítil í samanburði við
verslanirnar i dag en var stór á
mælikvarða þess tíma og þótti
framúrstefnuleg,” sagði Guðjón.
Verslunin hefur þróast nokkuð
gegnum árin. Árið 1976 var
búðin stækkuð og nafni hennar
breytt í Sparkaup og um leið var
henni breytt í lágvöruverslun. 1
umfjöllun um tímamótin í blað-
inu Faxa sagði Gunnar Sveins-
son, þáverandi kaupfélagsstjóri,
að vörusala frá byrjun hafi verið
rnjög góð og að rekstur vöru-
markaðarins ætti að standa
undir sér þótt álagningu hafi
verið stillt mjög í hóf.
Á þessum árum óx verslunar-
rekstri Kaupfélagins fiskur um
hrygg og opnuðu verslanir á
þess vegum í öllum þéttbýlis-
kjörnum á Suðurnesjum, ein af
annari. Árið 1982 opnaði svo
stóiverslunin Samkaup í Njarð-
vík.
Þegar kom fram á seinni hluta
níunda áratugarins versnuðu að-
stæður til verslunarreksturs svo
farið var út í gagngera endur-
skipulagningu reksturs Kaupfé-
lagsins. Endurreisnin hófst svo
árið 1992 og og ári seinna voru
fest kaup á stórri verslun í Hafn-
arfirði. Má segja að þar hafi út-
rás hafist sem enn sér ekki fyrir
endann á. Árið 1998 var allur
verslunarrekstur félagsins svo
settur undir dótturfyrirtækið
Samkaup.
Á síðasta ári var skerpt á ímynd
verslananna og þeim skipt niður
í Samkaup Úr\'al, Nettó, Kaskó
og Samkaup Strax eftir vöruúr-
vali og verðstigi.
Sparkaup hefur haldið velli í öll
þessi ár og er nú, eins og fyrr
sagði, rekin undir merkinu Sam-
kaup Strax auk þess sem útliti
búðarinnar var breytt. Guðjón
segir breytingarnar hafa rnælst
vel fyrir hjá viðskiptavinum
og framtíðin sé björt í Spar-
kaupurn.
Afmælishátíðin verður, eins
og áður kom fram, á morgun,
og stendur á milli kl. 15 og 18.
Þar verður boðið upp á kaffi, af-
mælistertu, ís og svala auk þess
sem vörur verða á sérstöku af-
mælistilboði.
20
VÍKURFRÉTTIR I 50.TÖLUBLAÐ-JÓLABLAÐIÐ2006 I 27. ÁRGANGUR