Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 30

Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 30
auDXa, Aðventan. Það finnst mér skemnitilegur tími þó svo að klikkað sé að gera og álagið mikið. Unnið á tvískiptum vöktum og maður þarf að vinna báðar vaktirnar. Ég byrja að skreyta heima hjá mér í upphafi aðventu og siná plokka upp skrautið fram að jólum. Set punkt- inn yfir i-ið með því að skreyta jólatréð á Þorláks- inessukvöld um leið og ég sýð hangikétið, svona eins gamlar og góðar hefðir segja til um. Þetta finnst mér gaman því ég er nefnilega soldið svag fyrir jólaskrauti og ræð illa við mig ef ég t.d. ramba inn í búðir sem selja slíkar gersemar á spottprís fyrir jólin. Verð eins og krakki í sælgætisbúð. Ég er veikari fyrir jólaskrauti en konum i einkennisbúningum. Fyrir margt löngu síðan, þegar ég var búinn að búa með sömu konunni í all nokkur ár, ákvað ég að kom- inn væri tími til að stíga skrefið til fulls og láta pússa okkur saman. Þar sem ég telst rómantískur nokkuð langt undir meðallagi en tæknilega sinnaður yfir með- allagi, sendi ég bónorðið með SMS skilaboði. Ég var reyndar ekki á hnjánum þegar ég ýtti á “send“ heldur sat á skrifborðsstólnum framan við tölvuna mína. Mig minnir að ég hafi meira að segja verið með lapp- irnar uppá borði. Þetta var á Þorláksmessukvöldi, sumsé fyrir margt löngu síðan eins og áður sagði. Þetta uppátæki mitt spurðist út og meira að segja kom fréttamaður frá Stöð 2 og tók viðtal af þessu til- efni. En það er nú önnur saga. Nema hvað, eftir jólin var farið til gullsmiðsins á Rgilsstöðum, þar sem við bjuggum, og pantaðir for- láta giftingarhringar. Auðvitað varð að velja eitthvað almennilegt, sem er vitaskuld mjög ólógískt með hliðsjón af því að þriðja hvert hjónaband fer út um þúfur, samkvæmt opinberum tölum. Hafa fræðimenn á hinum ýrnsu sviðum reynt að finna haldbærar skýr- ingar á því hvers vegna hjónabönd endast svona stutt og illa nú til dags en ekki verður farið nánar út í það hér. Einn hráslagalegan vetrardag um iniðjan janúar var svo undirritaður sendur til gullsmiðsins til að leysa út hringana góðu enda brúðkaupið framundan í upp- hafi Þorrans. Gullsmiðurinn var að pakka öllu sínu hafurtaski saman þar sem framundan var endanleg lokun á búð- inni. Ég hef ekki mikið vit á fyrirtækjarekstri en veit þó að innkoman þarf að vera ívið betri en útgjöldin til þess að hann geti gengið upp. Þessu var víst öfugt farið hjá gullsmiðnum. Þar sem ég stend þarna á miðju búðargólfinu rek ég augun í tvo stóra og bara ansi hreint krúttlega jóla- sveina sem höfðu haft það hlutverk að vera til skrauts í búðinni í desember. Þeir meira að segja hreyfðust og gátu spilað lög ef inaður tíindi að splæsa í raf- hlöður. Ég stóð algjörlcga dolfallinn. Ég gjörsainlega féll fyrir þessum jólasveinum. Það var eins og þeir horfðu á mig og biðjandi augnaráðið sagði “taktu okkur með þér heim“. Svona eins og þegar maður heldur á litlum, sætuin hvolpi sein leitar að heimili. Ég vissi sem var að örlög þessara jólasveina voru í algjörri óvissu þar sem það var jú verið var að loka búðinni fyrir fullt og allt. Ég varð að bjarga þeim. Ég sneri mér að gullsmiðnum og spurði hvort hann vildi ekki bara selja mér jólasveinana, úr því að hann væri nú að loka búðinni. Honuin fannst hugmyndin hreint ekki svo galin og upphófust nú samningavið- ræður sem lauk á þann veg að jólasveinarnir komust í mína eigu fyrir sanngjarnt verð. Ég var alsæll með fenginn og ekki laust við að ég væri strax farinn að hlakka til næstu jóla þó ekki væri enn nenia iniður janúar. Borgaði ég gullsmiðnum upp- sett verð og gekk á braut skælbrosandi með jólasvein undir sinn hvorum handarkrikanum. f þann mund sem ég er að stiga út úr búðinni heyrðist kallað að baki mér: „En Ellert, hvað með giftingarhringana?“ Þess vegna hef ég stundum sagt meira í gríni en al- vöru, þegar ég ineð rífandi stolti sýni fólki þessar gersemar, að ég hafi keypt þessa tvo jólasveina og svo giftingarhringa fyrir afganginn. Af hjónabandinu er það að segja að það entist ekki. En jólasveinana á ég ennþá. Þeir endast og endast og eru uppáhalds-jólaskrautið initt. Eiga eflaust eftir að fylgja mér í gegnum þykkt og þunnt alla tíð. 30 VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JÖLABLAÐIÐ 2006 I 27.ÁRGANCUR VI'KURFRÉTTIR A NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.