Víkurfréttir - 14.12.2006, Síða 32
Þessír iðnaðar- 1
menn voru að
steypa í bliðunni
á dögunum þegar
myndin var tekin.
Atvinnuleysi
meðal iðnaðar-
manna þekkist
varla enda nóg
að gera í bygg-
ingariðnaði þessi
dægrin.
VF-mynd: elg
Fjöldi atvinnulausra er ívið meiri nú í byrjun
desember miðað við atvinnuástand í venju-
legu árferði. Munar þar um rúmlega eitt
hundrað fyrrum Varnarliðsstarfsmenn sem komu
inn á atvinnuleysisskrá í haust eftir að orlofstíma
lauk, að sögn Ketils G. Jósefssonar, forstöðumanns
Svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja.
Nú í byrjun desember voru 319 einstaklingar skráðir
atvinnulausir, 118 karlar og 201 kona. Til saman-
burðar má geta þess að í nóvember í fyrra var meðal-
fjöldi atvinnulausra 173 einstaklingar og 193 voru
atvinnulausir í desember.
Ketill G. Jósefsson segir atvinnuástandið alltaf verst
á þessum árstíma og fram yfir áramót en það skáni
með hækkandi sól. Engin ástæða sé til svartsýni á
komandi ári.
Þrátt fyrir fjöldauppsagnir vegna brotthvarfs Banda-
ríkjahers hefur ástandið á þessu ári verið sérlega gott
og menn hafa sé það rnikiu verra, að sögn Ketils. í
því sambandi má geta þess að árið 2003 var atvinnu-
ástand hvað verst í langan tíma þegar yfir 500 manns
voru skráðir atvinnulausir.
„Ég kvíði ekkert komandi ári, þrátt fyrir að verið sé
að hræða mann með samdrætti hér og þar. Menn
verða bara að vera fljótir að hugsa hvað þeir ætla að
gera við þetta svæði og þau tækifæri sem við Suður-
nesjamenn höfum. Þau eru mest í kringum flugvöll-
inn en einnig í ýmsu öðru,“ sagði Ketill.
Mest er það fólk í þjónustu- og skrifstofustörfum sem
eru á atvinnuleysisskrá. Á meðal iðnaðarmanna er at-
vinnuleysi óþekkt um þessar mundir.
„Við höfum ekki sé iðnaðarmann á atvinnuleysisskrá
í tvö ár. Ef það hefur gerst hefúr viðkomandi stoppað
mjög stutt," sagði Ketill.
*
\
Úr myndasafni Víkurfrétta
Bærinn tekur
breytingum
Það hafa allir gaman af því að skoða gamlar myndir og
enn skemmtilegra er að bera saman gamlar myndir við
nýjar sem teknar eru á sömu slóðum. Ellert Crétarsson
kíkti í myndasafn Víkurfrétta, fann nokkra gullmola og
fór síðan út með myndavélina á svipaðar slóðir. Það
er Ijóst að Reykjanesbær er að taka stakkaskiptum.
Aðalgatan í bænum með ein hættulegustu
gatnamótin. Já, svona voru gatnamót Aðalgötu
og Iðavalla í Keflavík í þá gömlu góðu
daga. Þarna endar Aðalgatan við einhvern
ómerkilegan malarveg sem í dag er ein helsta
leiðin út úr Keflavíkurhluta Reykjanesbæjar og
tenging bæjarins við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
1 mörg ár hafa þetta verið ein varasömustu
gatnamót bæjarins, þar sem hornið Iðavellir
og Aðalgata var mjög blint og þar hafa orðið
margir árekstrar. I dag er hins vegar komið
hringtorg á hornið og uppi á hæðinni má sjá
blómlegan atvinnurekstur í ferðaþjónustu.
32 I Vl'KURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 í 27. ARGANCUR
VÍKURFRÉTTiR Á NETINU
www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR DAGLEGA!