Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 40

Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 40
20 ÁR LIÐIN FRÁ ÞVÍ EÐVARÐ EÐVARÐSSON VAR KJÖRINN ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Daginn eftir kjör íþróttamanns ársins 1986 mætti Eddi í skólann og var tekið með fagnað- arlátum af nemendum og starfsfólki Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Með honum á myndinni er Ragnheiður Runólfsdóttir, sem varð ofarlega í kjörinu en hreppti svo titilinn nokkrum árum seinna. Eddi fór í marga frægðarförina erlendis og hér fær hann höfð- inglegar móttökur í flugstöðinni eftir Evrópumeistaramótið í Búlgaríu 1985. Með honum á myndinni eru foreldrar hans, þau Eðvarð Felixson og Guðrún Ása Gústafsdóttir. Hér tekur Eddi á móti titlinum íþróttamaður Suðurnesja 1988. Enn á fullu Eðvarð með sjö met í desember 11 [u.AHomaðnr Ársins hiá DV og hlaut Einn er sá maður sem var oftar en margur annar á síðum Víkurfrétta frameftir 9. áratuginum. Enda er afrekaskrá mannsins með þvílíkum ólíkindum að hann hætti sjálfur að hafa tölu á ts- landsmetunum fyrir margt löngu síðan. Hætti að telja þegar þau voru komin vel yfir annað hundraðið. Þetta er Eðvarð Þór Eðvarsson, sundkappi, kallaður Eddi. Svo skemmtilega vill til að einmitt á þessu ári eru liðin 20 ár frá því að hann var kosinn Iþrótta- maður ársins á landsvísu. Edda vantar aðeins ár í fertugt og hann er ennþá á fullu. Heldur sér ennþá í toppformi, m.a. með því að hlaupa 7-12 kílómetra 3 - 4 sinnum í viku. Hátt í 1000 verðlaunapeningar „Ætli besta tímabilið mitt hafi ekki verið frá svona 1985 til 1988 en á því tímabili féllu flest metin bæði hér heima og er- lendis“, svarar Eddi, aðspurður um keppnisferilinn. Metin voru gríðarmörg en hvað stendur upp úr í huga Edda? „Það er örugglega 3ja sætið í Evrópubikarkeppninni 1986, úr- slitasæti á heimsmeistaramóti 1986 í Madrid, úrslitasætin á Evrópumeistaramótunum 1985 og 1987 og Norðurlandametið í 200 metra baksundi sem stóð óhaggað frá 1986 til 1991“, svarar Eddi. Verðlaunapeningarnir munu vera á bilinu 800 - 900, sem hengdir hafa verið um hálsinn Edda í gegnum tíðina og bikar- arnir eru eitthvað vel yfir 100 talsins. Þetta er því mikill fjöldi verðlaunagripa sem safnast hafa á sigursælum ferli en hluti þeirra er núna á Iþróttasafni Islands. Sagan segir að menn hafl verið hættir að rukka Edda um farandgripina, þeir vissu að hann myndi hvort eð er vinna þá til eignar að lokum. Drifinn áfram af metnaði „Upphafið að þessu tímabili var 1984 þegar ég fór til Danmerkur að æfa og keppa, þá 17 ára gam- all“, segir Eddi. „Þar fékk ég mjög gott vegarnesti fyrir árin sem á eftir komu. Ég fékk betri innsýn í það sem var að gerast á alþjóðlegum vettvangi og önnur markmið til að keppa að. Þetta var vissulega góður skóli en ég bjó líka vel að þeirri þjálfun sem ég hafði fengið hjá Friðriki Ólafs- syni en með honum starfaði ég lengst. Friðrik eyddi miklum tíma í þetta en lengi vel fórum við daglega í bæinn til æflnga. Þetta gátu verið 7-8 tímar á dag sem fóru í ferðir og æfingar. „Metnaðurinn til að ná árangri dreif mann alltaf áfram. Og ár- angurinn var það sem maður nærðist á, þegar hann byrjar að skila sér eykst viljinn og metn- aðurinn til að gera enn betur. 1 dag virðist það vera all algengt í mörgum íþróttagreinum, að menn eru ekki tilbúnir að leggja þetta á sig nema að spyrja fyrst hvað þeir fái mikið fyrir í pen- ingum. Mér finnst það miður að gamla ungmennafélagsand- anum svokallaða er sífellt verið að ýta meira til hliðar á kostnað peningahyggjunnar", segir Eddi. Víðförull sundkappi Á keppnisferlinum ferðaðist Eddi víða um álfur á keppnis- ferðalögum og bar margt fyrir augu hins unga sundkappa frá Islandi. „Maður sá margt forvitnilegt og framandi á þessum ferðalögum. Þau víkkuðu sjóndeildarhring- inn og maður sá ýmislegt sem kenndi manni þakklæti fyrir hluti sem okkur þykja sjálfsagðir hér heima á íslandi. Til dæmis þótti manni það mjög sérstakt að sjá fólk standa í löngum bið- röðum til að geta keypt sjálf- sagðan hlut eins mjólk. Ég fór mjög víða um lönd en kom þó aldrei til Suður-Ameríku eða Ástralíu. Vantar meiri aga 1 dag er starfar Eddi við sund- þjálfum og kennslu, jafnframt því að vera umsjónarkennari 7. bekkjar í Heiðarskóla. ) I VlKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27.ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETINU •. www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.