Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 42
INNUTI BLOMAÞORPIÐIREYKJANESBÆ
11 Jll I ■ -"SEjj BlAMA^ORPli( opío ir
1 • ; ’I 1
%
Iólakransarnir hennar Ás-
dísar Vilborgar Pálsdóttur
í Blómaþorpinu eru lista-
c út af fyrir sig og til vitnis
um hugmyndauðgi og sköp-
unargleði höfundarins. Enda
hefur Ásdís fengið viðurkenn-
ingu fyrir jólakrans sem hún
gerði sérstaklega fyrir þátt-
inn Innlit-útlit á Skjá einum.
Einnig varð hún í öðru sæti
í flokki tvö á íslandmeistara-
mótinu i blómaskreytingum á
þessu ári.
Blómaskreytingar fyrir öll til-
efni eru ær og kýr Ásdísar sem
fyrir nokkrum árum söðlaði um
í lífinu; sagði skilið við fiskiðn-
aðinn. sem hún hafði starfað
við um árabil og hóf nám í garð-
yrkjufræðum og blómaskreyt-
ingum. Hún útskrifaðist úr
þeim fræðum frá Landbúnaðar-
háskóla Islands fyrr á þessu ári.
Auk þess hefur hún bætt færni
sína og þekkingu með nám-
skeiðum og sat t.a.m. námskeið
hjá Nils Norman, sem er kon-
unglegur norskur blómameist-
ari. Ásdís sækir efnivið sinn
aðallega út í náttúruna og fyrir
nokkrum árum sat hún sérstakt
námskeið í þeim efnum í Dan-
mörku hjá vel þekktum meistara
í faginu. Og hún er enn að bæta
við sig þekkingu því um þessar
mundir situr hún á skólaþekk í
Iðnskóla Hafnarfjarðar þar sem
hún stundar nám í útstillingum.
I Blómaþorpinu að Túngötu 10
í Reykjanesbæ er vinnustofa
Ásdísar, sem sérhæfir sig í nú-
tímalegum, sérstökum, árstíð-
arbundnum og stílhreinum
skreytinum fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og félagasamtök, að
VÍKURFRÉTTIR ! 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27. ARGANCUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!