Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 62
VLyf&heilsa
J Við hlustum!
CPROBLil
KYNNING
a nyju joiavorunum
frá OROBLU í Lyf
og lieilsu í Keflavík
fostudaginn
15. des. kl. 14-18.
J\u((/uu(k(
fylgir hverri
OROBLU vöru
BRILLANCE
sokkabuxur
og ekki eins stíft prógram.
Fyrsta daginn gátum við farið
og verslað og tekið því rólega.
Það var miklu frekar að mínu
skapi.“
Sif gekk enda ljómandi vel í
keppninni og náði þriðja sæti.
Hún var einnig kjörin Miss
Press af ljósmyndurunum.
„Ég var bara mjög sátt því yf-
irleitt hlýtur finnska stúlkan
þennan titil svo það kom mjög
skemmtilega á óvart. Svo var
allt annar andi hjá stelpunum
þarna en í Miss Universe. Úr-
slitakvöldið var líka mun af-
slappaðra og sást það til dæmis
á því að við byrjuðum athöfnina
tvisvar útaf sjónvarpsvélum því
áhorfendur voru að skyggja á
sviðið. Við byrjuðum bara aftur
og það var ekkert mál.“
Eftir þessar keppnir er lítið eftir
af embættisverkum Sifjar sem
Ungfrú ísland. „Ég á enn hálft
ár eftir og býst við að það verði
rólegt. Eg mun þó auðvitað
krýna Ungfrú Suðurnes og Ung-
frú ísland og ég geri ráð fyrir að
það sé það eina sem ég á eftir
að gera.“
Sif var í miðju starfsnámi í flug-
umferðastjórnun þegar annríkið
hófst í fegurðarsamkeppnum, en
hún segir það ekki hafa skemmt
fyrir sér.
„Ég missti auðvitað nokkrar
vikur úr en ég var dugleg þess
á milli. Ég kláraði alla vegana
fyrsta hlutann af náminu og er
búin að vera að vinna í einn og
hálfan mánuð. Eftir árið get ég
svo tekið næsta hluta sem eru
aðflugsréttindi og eftir það er
ég orðin fullnuma flugumferðar-
stjóri,“ segir Sif og bætir því við
að henni líki mjög vel í starfmu.
Hún stefnir þó á að mennta sig
enn frekar og er flugnám henni
ofarlega í huga. „Ég ætla að taka
einkaflugmannsréttindin og get
vonandi tekið bóklega prófið
næsta sumar.“
Sif hefur svo sannarlega fengið
að upplifa margt á þessum
skamma tíma og segist búa vel
að þeirri reynslu.
„Þetta er keppnisheimur, en
maður lærir af þessu og er
sterkari eftir á. Maður er einn í
þessu og stendur á eigin fótum
og gerir sitt besta. Svo fékk ég
líka tækifæri á að vinna við fyrir-
sætustörf sem er bara mjög gott
og gaman, en ég held samt að ég
láti mér nægja að starfa við það
út titilsárið og láta því svo lokið.
Vl'KURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27.ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!