Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Side 67

Víkurfréttir - 14.12.2006, Side 67
Guðríður Waage tekur formlega við plasmatækinu frá Páli Fanndal, verslunarstjóra Ormsson i Reykjnesbæ. Hlaut aðalvínninginn í Jólalukkunni Lukkan, þ.e. jólalukka Víkurfrétta Iék heldur betur við hana Guðríður Waage nú í vikunni þegar hún brá sér í Kaskó og fékk þar Jólalukkumiða. Þegar hún hafði skafið af miðanum trúði hún vart eigin augum því á honum var vinningur upp á hvorki meira né minna en 42 tommu hágæða plasmatæki frá Ormsson í Reykjanesbæ, sem var aðal- vinningur Jólalukku Víkurfrétta að þessu sinni. Verðmæti tækisins er um 300 þús- und krónur. „Ég var ekki alveg að fatta þetta í fyrstu og fannst þetta hálf skrýtið. Eg fékk miðann í Kaskó þegar ég verslaði þar um helgina með barnabarninu mínu. Það er því óhætt að segja að það hafi verið lukkutröllið mitt,” sagði Guðríður í samtali við VE Guðríður segist ekkert ætla að fá sjónvarps- dellu þó henni hafi áskotnast svona magnað plasmatæki. Hún eigi gott sjónvarpstæki fyrir og það muni fara upp í sumarbústað. „Það vill svo skemmtilega til að öll heim- ilstækin á mínu heimili eru einmitt frá Ormsson, við höfum alltaf verslað þar og höfum góða reynslu af því,” sagði Guðríður. Tilnefningar um Ljósahús Reykjanes- bæjar 2006 Menningar- íþrótta- og tómstundsvið Reykjanesbæjar ásamt Hitaveitu Suðurnesja stendur nú í sjötta sinn fyrir samkeppni um „Ljósa- hús” Reykjanesbæjar árið 2006. Einnig verður valin best skreytta gatan og best skreytta fjölbýlishúsið. Úrslit verða kynnt fimmtu- daginn 14. desember kl. 18:00 í Duushúsum. Vegleg verðlaun. Eftirtalin hús hafa verið til- nefnd. Baugholt 12, Baugholt 27, Borgarvegur 20, Borgarvegur 25, Bragavellir 2, Bragavellir 3, Bragavellir 4, Efstaleiti 44, Faxabraut 65, Gónhóll 27, Háleiti 20, Hamragarður 9, Hátún 12, Hátún 24, Heið- arbakki 12, Heiðarbraut 5c, Heiðarholt 3, Hólagata 45, Holtaskóli séð að ofanverðu, Hraunsvegur 7, Hraunsvegur 8, Hrauntún 3, Hrauntún 14, Kirkjuvegur 15, Krossholt 4, Krossholt 8, Krossholt 9, Lág- mói 19, Langholt 16, Lóma- tjörn 3, Lómatjörn 7, Mið- garður 2, Miðtún 1, Miðtún 8, Óðinsvellir 6, Sunnubraut 9, Þverholt 11, Þverholt 18, Tjarnargata 30, Túngata 14, Týsvellir 1. Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu íVerkalýðs og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis um kjör aðalstjórnar samkvæmt A-lið laga um stjórnarkjör og stjórnar sjómannadeildar, ásamt trúnaðarmannaráði, stjórn sjúkrasjóðs, orlofsheimilasjóðs, fræðslusjóðs og varamönnum þeirra samkvæmt lögum félagsins. Tillögum skal skila á skrifstofu félagsins í síðasta lagi klukkan 12:00föstudaginn 22. desember nk. Hverri tillögu skal fylgja stuðningsyfirlýsing tilskilins fjölda félagmanna samkvæmt reglugerð ASÍ þar að lútandi. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. Kjörstjórn VSFK og nágrennis Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Halla býður alla velkomna á vinnustofu sína og býður upp á kaffi og kökur. Halla Har, myndlistarkona, verður ineð opna vinnustofu nú á aðventunni þar sein fólk getur skoðað og keypt verk eftir listakonuna. Vinnustofa Höllu er að Strandvegi t í Sjálandi Garðabæ (íbúð iOi). Síminn hjá Höllu er 421 2838 og 847 1134. STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGIÝSÍNGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VlKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 14. DESEMBER 2006

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.