Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Side 68

Víkurfréttir - 14.12.2006, Side 68
„Annars líður okkur mjög vel í Keflavík. Ég verð nú sarnt að viðurkenna það að það var nokkuð skrýtin tilfinning að fara í Keflavíkurtreyjuna í fyrsta sinn,” sagði Ingibjörg. Fjórmenningarnir keppa nú allir að sama markinu og það er að færa Islandsmeisturum Hauka sinn fyrsta ósigur á tímabilinu. „Þann 17. desember munu Haukar tapa sínum fyrsta leik,” sagði Rannveig ákveðin en þá mætast toppliðin í Sláturhúsinu í Keflavík. „Við verðum að vita að við getum unnið Hauka og þetta er spurning um sjálfs- traust því við erum með betra lið,” bætti Ingibjörg við. „Við þurfum öll að vera á sömu blaðsíðunni þegar í Haukaleikinn kemur,” sagði Agnar. Þrátt fyrir að innrás Njarðvíkinganna í Keflavík bera fjórmenningarnir enn taugar til síns gamla fé- lags. Hver veit nema Ljónagryfjan fái krafta þeirra notið að nýju þegar kvennakörfuboltinn rís þar úr ösku. Þó er bara eitt sem kemst að í þeirra huga þessa stundina, íslandsmeistaratitillinn. Þegar kvennakörfuknattleikurinn í Njarðvík lognaðist útaf urðu leikmenn Njarðvíkur að finna sér nýtt félag og þá var stutt yfir bæjarmörkin til Keflavíkur. Nú er svo búið að fjórir fyrrum Njarðvíkingar eru í röðum Kefla- víkur. Þrír leikmenn og aðstoðarþjálfarinn Agnar Mar Gunnarsson. Rannveig Kristín Randversdóttir gekk til liðs við Keflavík árið 2001 en þá hafði hún fengið sig fullsadda af agaleysinu sem hafði einkennt um- gjörðina í kringum meistaraflokk UMFN. Stöll- urnar Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir og Margrét Kara Sturludóttir gengu til liðs við Keflavík fyrir leiktíðina 2005-2006 og það var svo í sumar sem Agnar var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins eftir langa umhugsun. „Jón, þjálfari Keflavíkur, hafði samband við mig og bað mig um að koma sem aðstoðarþjálfari til Keflavíkur. Ég hugsaði mig um í svona 2-3 vikur,” sagði Agnar léttur í bragði en það þykir ávallt tíð- indum sæta þegar leikmenn eða þjálfarar skipta úr Njarðvík í Keflavík eða öfugt enda mikill metingur á millum þessara stórvelda í körfuboltanum. Agnar þurfti að sætta sig við nokkrar háðsglósur í upphafi en hann stefnir langt sem þjálfari og fyrir honum var þetta næsta rökrétta skrefið á hans ferli. Frænka Agnars, Kara Sturludóttir, rak heldur betur upp stór augu sumarið 2005 þegar hún hitti fyrir Ingi- björgu vinkonu sína á æfingu hjá Keflavík. Kara og Ingibjörg vissu hvorugar að hin hefði ákveðið að ganga til liðs við Kefiavík. „Pabbi átti góðan þátt í þessari ákvörðun minni,” sagði Kara en faðir hennar, Sturla, gerði garðinn frægan á árum áður með Njarðvíkingum. Ingibjörg sagðist myndu hug- leiða það að fara aftur í sitt gamla félag ef liðinu tækist að koma sér upp í Iceland Express deildina. frá Njorövík VÍKURFRÉTTIR I 50.TÖLUB1AÐ-JOLAB1AÐIÐ2006 I 27. ARGANGUR 3ÉTTIR Á NETINU •www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.