Fréttablaðið - 24.08.2017, Side 6
Úrbótaáætlun
okkar gerir ráð fyrir
því að samningaviðræður
við ríkið taki alveg fram að
áramótum.
Þorsteinn Gunnarsson,
sveitarstjóri
Skútustaðahrepps
21. - 26. ÁGÚST
HJÓLAÐU Í SKÓLAN
N
AFSLÁTTUR
AF GÖTUHJÓLU
M OG HYBRID HJÓ
LUM OG KROSS RE
IÐHJÓLAHJÁLMUM
TRYGGÐU ÞÉR ALVÖRU HJÓL Á FRÁBÆRU VERÐI!WWW.GÁP.IS FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200
30%
Rútínan hefst á ný
Sumarfrí skóla og stofnana renna sitt skeið á næstu dögum hafi þau ekki gert það nú þegar. Götur borgarinnar báru það með sér í morgunsárið í
gær. Merktu það margir að umferðin hafi gengið örlítið hægar en daginn áður enda fleiri ökutæki að streyma á göturnar. En ef grámyglulegur hvers-
dagsleikinn hræðir fólk er ávallt hægt að hugga sig við að aðeins fjórir mánuðir eru til jóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NáttúruverNd Heilbrigðisnefnd
Norðurlandssvæðis eystra mun
afturkalla starfsleyfi þeirra fyrir-
tækja á verndarsvæði Mývatns, sem
bjóða aðstöðu fyrir 50 manns eða
fleiri, verði fjármagnaðri úrbóta-
áætlun í fráveitumálum ekki skilað
fyrir 15. september.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
hefur ítrekað óskað eftir aðstoð
ríkisins við að fjármagna nauð-
synlegar aðgerðir vegna alvarlegs
fráveituvanda sem hefur mjög nei-
kvæð áhrif á lífríki Mývatns, en
verndarsvæðið er á rauðum lista
Umhverfisstofnunar yfir svæði sem
eiga á hættu að tapa verndargildi
sínu. Kostnaður við nauðsynlegar
framkvæmdir er talinn hlaupa á
hundruðum milljóna króna.
Heilbrigðisnefndin hafnaði
úrbótaáætlun sem sveitarfélagið
og stærri ferðaþjónustufyrirtækin
á svæðinu unnu að kröfu nefndar-
innar, þar sem hún var ekki fjár-
mögnuð. Frestur til að skila fjár-
magnaðri úrbótaáætlun er gefinn
til 15. september.
„Þá verður vonandi búið að
lenda þessu samtali um hugsanlega
aðkomu ríkisvaldsins. Vonandi
tekst það,“ segir Alfred Schiöth,
framkvæmdastjóri heilbrigðiseftir-
litsins.
„En ef það tekst ekki, og þeim
tekst ekki að skila fjármagnaðri
áætlun fyrir 15. september, er það
hlutverk heilbrigðisnefndar að aft-
urkalla starfsleyfi þessara fyrirtækja
í Skútustaðahreppi, þar sem meng-
unarstigið er yfir því sem nemur 50
persónueiningum,“ segir Alfred og
vísar til fyrirtækja sem hafa aðstöðu
til að þjónusta 50 manns eða fleiri.
Aðspurður segir hann þetta fyrst
og fremst vera hótel og gisti- og
veitingaþjónustur á svæðinu, bæði
í þéttbýliskjörnum Reykjahlíðar,
Voga og Skútustaða en einnig fyrir-
tæki í sveitinni utan þéttbýlis.
„Það eru mjög jákvæðar sam-
ræður í gangi. Þetta er í ferli,“ segir
Þorsteinn Gunnarsson, sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps, spurður
um hinn langþráða ríkisstuðning.
„Úrbótaáætlun okkar gerir ráð fyrir
því að samningaviðræður við ríkið
taki alveg fram að áramótum og
við erum að vinna eftir því. Ef þeim
verður ekki lokið fyrir 15. septem-
ber munum við líklega sækja um
frest.“
Í skriflegu svari umhverfisráð-
herra við fyrirspurn Óla Halldórs-
sonar, sem birt var á vef Alþingis
á föstudag, er engu lofað um hvort
eða hve mikils fjárstuðnings sé að
vænta. Af svarinu verður ekki séð
að ráðherra telji sig lagalega skuld-
bundinn til að koma sveitarfélaginu
eða atvinnurekendum til aðstoðar.
„Hins vegar er ljóst að sveitar-
stjórn stendur frammi fyrir stóru
verkefni og ströngum tímafresti sem
önnur sveitarfélög búa ekki við. Í því
ljósi samþykkti ríkisstjórn að verða
við ósk sveitarstjórnar Skútustaða-
hrepps um að hefja viðræður um
væntanlegar úrbætur í fráveitumál-
um og fjármögnun þess,“ segir í svari
ráðherra. adalheidur@frettabladid.is
Ferðaþjónusta við Mývatn í lausu lofti
Starfsleyfi ferðaþjónustufyrirtækja við Mývatn verða afturkölluð verði úrbótaáætlun í fráveitumálum ekki fjármögnuð fyrir fimmtánda
september. Áætlaður kostnaður er hundruð milljóna. Skútustaðahreppur hefur ítrekað óskað eftir aðstoð ríkisins við fjármögnunina.
viðskipti Samanlagðar eignir rík-
ustu tæknifrumkvöðla heims eru
nú í fyrsta sinn yfir einni billjón
Bandaríkjadala samkvæmt nýjum
lista Forbes yfir ríkustu starfsmenn
tæknifyrirtækja.
Eignirnar hafa hækkað um 21
prósent milli ára.
City A.M. greinir frá því að sam-
tals eiga tæknifrumkvöðlar á borð
við Bill Gates, Mark Zuckerberg og
Jeff Bezos 1,08 billjónir dala, jafn-
virði 114 billjóna króna.
Gates, sem stofnaði Microsoft,
er ríkastur og efstur á listanum en
hann er metinn á 84,5 milljarða
dala, þrátt fyrir að hafa gefið umtals-
verðan hlut eigna sinna til góðgerð-
armála síðustu áratugi. Bezos, stofn-
andi Amazon, fylgir fast á eftir með
eignir metnar á 81,7 milljarða dala.
Zuckerberg, stofnandi Facebook, er
svo í þriðja sæti.
Rekja má aukinn auð hópsins til
þess að gengi hlutabréfa í tækni-
fyrirtækjum hefur almennt hækkað
umtalsvert undanfarið. Á síðustu
fjórtán mánuðum hefur gengi
hlutabréfa í Facebook hækkað um
44 prósent, hlutabréf í Microsoft
hækkað um 46 prósent og hlutabréf
í Amazon um 27 prósent. – sg
Ríkasta fólkið í
tæknigeiranum
aldrei ríkara
Bill Gates, stofn-
andi Microsoft
2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F i M M t u d A g u r6 F r é t t i r ∙ F r é t t A B L A ð i ð
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
F
-D
A
1
4
1
D
8
F
-D
8
D
8
1
D
8
F
-D
7
9
C
1
D
8
F
-D
6
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K