Fréttablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 26
Fótbolti Þór/KA er í frábærum
málum á toppi Pepsi-deildar kvenna
með átta stiga forskot þegar aðeins
tólf stig eru eftir í pottinum. Þegar
lagt var af stað í vor var enginn að
tala um lið Þórs/KA en eftir sigur á
meistaraefnum Vals og Breiðabliks
í fyrstu tveimur umferðunum hafa
allir verið að elta norðankonur.
Maður á bak við velgengni Þórs/
KA er þjálfarinn Halldór Jón Sig-
urðsson sem breytti meðalliði í
meistaralið á nokkrum mánuðum.
„Feikilega öflugt skipulag og vinnu-
samir leikmenn með bunka af hæfi-
leikum,“ segir Halldór um lykilat-
riðið á bak við árangurinn.
Unnu mest í hugarfarinu
„Þó að það sé mjög svipaður leik-
mannahópur þá breytum við alveg
um leikkerfi. Við höfum samt unnið
hvað mest í hugarfarslegum þáttum.
Það er það stærsta í þessu að mínu
mati. Svo höfum við haldið áfram
að vinna þá góðu vinnu sem hefur
verið unnin hjá Þór/KA áður í þó
nokkur ár. Stelpurnar hafa fengið
flotta reynslu í gegnum fyrri þjálf-
ara og hafa þróast vel. Svo höfum
við bara haldið áfram með það
og hjálpað þeim að verða enn þá
betri,“ segir Halldór. Hann þjálfar
nú knattspyrnukonur í fyrsta sinn.
„Þetta var fyrst og fremst aðeins
öðruvísi reynsla. Þó að þetta sé
sjöunda árið mitt í meistaraflokks-
þjálfun þá hef ég ekki áður verið
með kvennalið í efstu deild. Það
var ákveðin áskorun sem mig lang-
aði að taka og ég sé alls ekki eftir því.
Þetta er búið að vera mjög skemmti-
legt og ég get alveg hugsað mér að
vera áfram í þessu,“ segir Halldór.
Þór/KA er með góða forystu og
það er lítið eftir af mótinu. Það væri
algjört klúður að missa af titlinum
úr þessu.
Svakalega góð staða
„Staðan er svakalega góð en það er
ótrúlega auðvelt að klúðra þessu.
Það er miklu auðveldara en margir
halda. Það er miklu auðveldara að
klúðra hlutunum núna heldur en
að klára þá. Það þarf að halda svaka-
lega vel á spöðunum og halda ein-
beitingu því það eru allir að keppast
við að vinna efsta liðið og vera fyrsta
liðið til að vinna okkur,“ segir Hall-
dór og fram undan eru leikir við ÍBV
og Stjörnuna.
„Við erum að spila við lið í næstu
tveimur leikjum sem eiga enn þá
tölfræðilega möguleika á vinna
Íslandsmeistaratitilinn. Það er eng-
inn að segja mér annað en þau vilji
reyna það. Það þarf að halda vel á
spöðunum og klára þetta mót með
glans,“ segir Halldór.
Draumaleikmaður þjálfarans
Það verður ekki erfitt að velja leik-
mann ársins fari svo eins og allt
stefnir í. Stephany Mayor hefur átt
stórkostlegt sumar. Hafi hún verið
góð í fyrra þá hefur verið rosaleg í
sumar.
„Hún er ótrúlega útsjónarsamur
leikmaður, fljót og mjög líkamlega
sterk. Hún er með tæknilega getu
sem enginn annar leikmaður hefur
á Íslandi. Svo er hún líka ótrúlega
auðmjúkur og duglegur leikmaður.
Hún sinnir varnarvinnunni mjög
vel, sinnir sínu hlutverki alveg
svakalega vel og fer vel eftir fyrir-
mælum. Hún er draumaleikmaður
þjálfarans í rauninni,“ segir Hall-
dór. Mayor er þegar búinn að skora
þremur mörkum meira en allt
síðasta sumar og þá er hún líka að
leggja upp fleiri mörk í sumar.
„Hún hefur kannski kreist meira
út úr sjálfri sér og við höfum reynt
að hjálpa henni með það. Hún er
klárlega að spila betur heldur en
í fyrra. Ég held að það sé ekkert
leyndarmál að henni líður ótrúlega
vel á Íslandi núna og enn þá betur
fyrst að Bianca er með henni. Það
hjálpar alveg hundrað prósent að
hafa sálufélagann með sér á Íslandi.
Þeim líður svakalega vel og þegar
þér líður vel og ert á góðum stað þá
getur þú gert enn þá betur í lífinu og
í fótboltanum með,“ segir Halldór
Hann er ánægðastur með hvað
stelpurnar eru móttækilegar fyrir
hans hugmyndum. „Aðalmálið í
þessu öllu saman er að stelpurnar
hafi trú á því sem er verið að gera,
fari eftir því og skili því af sér. Það
er auðvelt fyrir þjálfara að setja
eitthvað upp en svo gera stelpurnar
bara einhvern fjandann sem þær
vilja. Þær eru ótrúlega góðar í að
fara eftir hlutunum og trúa á það
sem þær eru að gera. Þetta væri
ekki hægt öðruvísi.“ segir Halldór
að lokum.
ooj@frettabladid.is
Hjálpar að hafa sálufélagann hjá sér
Halldór Jón Sigurðsson hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenska kvennafótboltann. Í sínu fyrsta starfi í kvennaboltanum tók
hann við liði Þórs/KA á miklum umbrotatíma og er langt kominn með að gera liðið að Íslandsmeisturum á fyrsta ári. Vissulega hefur
þó auðveldað starfið fyrir hann að hafa eina Stephany Mayor í sínu liði. „Auðveldara að klúðra þessu en margir halda,“ segir Halldór.
Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þórs/KA fagnar einu marka liðsins hér á myndinni til vinstri en á myndinni til hægri
má sjá Þórs/KA stelpurnar fagna marki Stephany Mayor. Bianca Sierra faðmar Stephany. FréttABlAðið/Ernir og EyÞór
Flugeldasýning á Anfield er Liverpool komst í Meistaradeildina
Í banastuði Emre Can skoraði í fyrsta skipti á ferlinum tvö mörk í leik og valdi rétta tímann fyrir það. Liverpool gekk frá leiknum gegn Hoffenheim
með þremur mörkum á fyrstu 20 mínútunum og vann að lokum sannfærandi sigur, 4-1. Liðið er því komið í Meistaradeildina. FréttABlAðið/gEtty
Það var ákveðin
áskorun sem mig
langaði að taka og ég sé alls
ekki eftir því.
Halldór Jón Sigurðsson
Í dag
14.30 opna kanadíska Golfst.
17.50 leiknir r - Þróttur Sport 2
18.00 the northern trust Golfst.
20.00 Pepsi-mörk kvenna Sport
21.00 Búrið Sport
ÁtJÁn dAgA FrÍ Að BAKi
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur
í dag keppni á opna kanadíska
mótinu sem fer fram í Ottawa í
Ontario-fylki. Þetta er sautjánda
LPgA-mótið hennar
en það fyrsta síðan í
byrjun ágúst þegar
hún endaði mikla
törn á opna breska.
Ólafía er í ráshópi
sem hefur leik
klukkan 13.22
að ísl. tíma.
Pepsi-deild kvenna
Breiðablik - Haukar 7-2
Rakel Hönnudóttir 4, Berglind Þorvaldsd.,
Selma Magnúsd., Fanndís Friðriksdóttir -
Vienna Behnke, Alexandra Jóhannsdóttir.
Valur - Fylkir 3-2
19 Stig Á MÓti nBA-StJörnu
tryggvi Snær Hlinason skoraði 19
stig og var stigahæstur í íslenska
körfuboltalandsliðinu í gærkvöldi
þegar liðið tapaði
með 22 stigum á
móti Litháen,
84-62, í síðasta
undirbúnings-
leik sínum
fyrir EM. tryggvi
fékk líka dýrmæta
reynslu að glíma í leiknum við
nBA-stjörnuleikmanninn Jonas
Valanciunas frá toronto raptors.
2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F i M M t U D A g U R26 s P o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
_
N
ÝT
T
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
F
-F
7
B
4
1
D
8
F
-F
6
7
8
1
D
8
F
-F
5
3
C
1
D
8
F
-F
4
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K