Fréttablaðið - 24.08.2017, Síða 28

Fréttablaðið - 24.08.2017, Síða 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 BMX strákarnir ásamt Atlasi Erni, umboðsmanni sínum. F.v.: Benedikt Benediktsson, Magnús Bjarki Þórlindsson og Anton Örn Arnarson sem heldur á syni sínum og umboðsmanni. MYNDIR/VILHELM Sumarið er búið að vera mjög annasamt og skemmtilegt hjá strákunum í BMX BRÓS. Þeir hafa tekist á við krefjandi verkefni og sýningar um land allt og vakið mikla athygli hvar sem þeir sýna. „Við höfum ótrúlega gaman af því að ferðast og fá sýningargesti til að brosa. Þetta er rosalega góð leið til að kynna sportið. Fram undan eru fleiri sýningar, t.d. verðum við um helgina á bæjarhátíðinni Í túninu heima í Mosfellsbæ. BMX æfingar hefjast svo hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar í haust þar sem við munum sjá um kennslu,“ segja þeir Benedikt Benediktsson, Magnús Bjarki Þórlindsson og Anton Örn Arnarson sem skipa BMX BRÓS hópinn og eru á aldrinum 22-26 ára. Fatastíll strákanna dagsdaglega er einfaldur, þægilegur og í stíl við BMX íþróttina. „Yfirleitt klæðist ég frekar þröngum buxum, síðum bolum og peysum, og þunnum jökkum með kraga. VANS skór koma sterkt inn og eru þeir góðir dagsdaglega og á hjólinu. Þetta er þessi klassíski skater-stíll,“ segir Benedikt. Anton segist örugglega vera einn af fáum sem hafa aldrei átt jakkaföt. „Ég klæðist yfirleitt þröngum buxum, flannel skyrtum, hlýrabolum. Auk þess hefur sítt hár fylgt mér um ára bil sem hefur aðgreint svolítið stílinn minn. Ég er orðinn mun mínímalískari en áður þegar kemur að fatakaupum. Persónulega finnst mér mun betra að eiga færri flíkur og vandaðar.“ Áhrif að utan Magnús segist klæðast fötum sem eru bæði þægileg og líta vel út. „Fatastíllinn minn er svona „skater- boy-look“. VANS eða miðlungsháir Timberland skór verða oftast fyrir valinu. Ég geng alltaf í þykkum sokkum, yfirleitt frá VANS, sama hvaða árstíð er. Buxur eru alltaf í frekar lausu sniði, hvort sem það eru gallabuxur eða aðrar. Síðan vil ég hafa boli og peysur í síðu, víðu og þægilegu sniði, t.d. eru rúllukragapeysur vinsælar hjá mér.“ Þeir segjast ekki beint hafa áhuga á tísku heldur reyni frekar að klæðast fötum sem eru þægileg. „Þetta eru þá þröngar buxur, endingargóðir skór og síðir bolir þannig að plömmerinn sé ekki úti þegar við hjólum. Við fylgjumst ekki mikið með tískunni en við verðum fyrir óbeinum áhrifum gegnum erlend BMX myndbönd.“ Viðburðarík ár Það eru um tíu ár síðan BMX hjólið fann þá félaga, eins og þeir orða það, og þetta er búinn að vera viðburðaríkur áratugur, sérstaklega síðustu 3-4 ár. „Eftir því sem við urðum betri, bylturnar harkalegri og áhuginn meiri fór hjólið að snúast fyrir alvöru. Samfara meiri getu fóru alls kyns tækifæri að poppa upp. „Við byrjuðum að kenna á BMX hjól, hófum samstarf við styrktaraðila, tókum þátt í keppnum úti í heimi, lékum í auglýsingum og bíómyndum.“ Árið 2015 tóku þeir þátt í Ísland Got Talent þar sem þeir náðu öðru sæti. „Í kjölfarið byrjuðum við að ferðast um landið þvert og endilangt og vorum með adrenalínfullar BMX sýningar á alls kyns hátíðum og viðburðum. Fegurðin við þetta sport er frelsið sem fylgir því. Við erum ekki bundnir við tíma og staðsetningu þegar við æfum okkur, hver og einn hefur sinn stíl og mismunandi trikk í pokanum. Þetta er adrenalínsport sem gerir það bæði krefjandi og fær hjartað til að slá hraðar.“ Eigið þið uppáhaldsverslanir? Við höfum gaman af Erninum, Smash, Mohawks og Rauðakrossbúðinni á Akureyri. Í útlöndum verða „skate“- og „secondhand“ búðir oftast fyrir valinu. Hverjir eru uppáhaldshönnuðir ykkar? Það eru helst VANS, Nike, Stussy, HUF, Neff og Under Armour. Eyðið þið miklu í föt miðað við jafnaldra ykkar? Nei, sáralitlu þar sem við höfum fengið góða hjálp frá styrktaraðilum okkar í gegnum tíðina. Við erum afar þakklátir fyrir það. Eigið þið eina uppáhaldsflík? „Ég verð að nefna argentínska ponsjóið mitt og litríku úlpuna sem ég gróf upp í Rauðakrossbúðinni á Akureyri, segir Benedikt. „Það eru ullarsokkarnir sem amma prjónaði á mig, íslenska ullin svíkur aldrei. Áður keypti ég stundum nýja flík, henti henni inn í skáp og notaði aldrei. Þeir tímar eru liðnir og nú kaupi ég ekki flíkur nema ég viti að ég hafi góð not fyrir hana,“ bætir Anton við. Uppáhaldsflík Magnúsar er VANS vindjakkinn. Bestu og verstu kaup ykkar? „Bestu kaupin mín hingað til er retró jakki sem ég keypti í Rauða krossinum Akureyri á 500 kr.,“ segir Magnús sem einn svarar spurningunni. „Verstu kaupin voru örugglega þegar ég keypti mér hettupeysu hérna heima á 17.000 kr. Engin hettupeysa ætti að kosta 17.000 kr.!“ Notið þið fylgihluti? Þeir eru nokkrir, t.d. Tunnel eyrnalokkar, sólgleraugu, hringir, gullkeðjur, safarihattur frá Suður-Afríku, hárteygja, úr, húðflúr og hjálmur. BMX BRÓS sýna á morgun föstudag á Hvalfjarðardögum og í Mosfellsbæ á bæjarhátíðinni Í túninu heima. Fylgjast má með strákunum á Facebook. Starri Freyr Jónsson starri@365.is Við höfum ótrúlega gaman af því að ferðast og fá sýningar­ gesti til að brosa. Þetta er rosalega góð leið til að kynna sportið. Netverslun á tiskuhus.is Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Nýjar haustvörur Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466 Opið 8-22 LEIÐSÖGUNÁM FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS, Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00, Martha Jensdóttir kennari. Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og myn- dum. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland. Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám. Helstu námsgreinar: • Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum. • Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. • Mannleg samskipti. • Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum. Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir. Umsögn: „Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands. Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhald- snám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“. Martha Jensdóttir kennari. - Nemendur geta að ná i loknu gengið í Leiðsögufélagið - Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyri þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að lei sögn erlendra og innle dra fe ðamanna um Ísland. -Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms. -Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu Helstu námsgreinar: - Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum. - Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. - Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. - Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni o margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. Umsögn: Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa, frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem skapaði gott andrú sloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tí a var mjög vel varið hvort sem maður hyggur á fer aleiðsögn e a ekki. Ferða álaskóli Íslands • www. enntun.is • Sí i 567 1466 pið 8-22 I FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS, Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00, Martha Jensdóttir kennari. nit iðað og ske tilegt ná fyrir þá, sem vilja ky nast Íslandi í máli og myn- du . Námið er opið öllu þeim, sem áhuga hafa á að læra hver ing standa skal að leiðsögn erlendra og innlendra ferðam nna um Ísland. Stuðst r við nám krá menntamálaráðuneyt sins m viðurkennt leiðsögunám. Helstu námsgreinar: • Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum. • Saga landsins, jar f æði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. • Ma nleg samskipti. • Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum. Boðið er uppá dag- og kvöldná , auk þes sem farið er í vettvangsferðir. msögn: „Síðasta haust hóf ég leiðsögu ám við Ferðamálas óla Íslands. Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhald- snám. Þett nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“. Martha Jensdóttir kennari. - Nemendur geta að ná i loknu gengið í Leiðsögufélagið - LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8- 2 Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri U sögn: S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskól Íslands. Námið stóð vel u dir væntingum þar se fjölmargir ke ar komu að kennslun i og áttu þeir a ðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki síst að vekja mig til umhugsu ar um þá auðlind sem la dið okkar er og þá virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðv lt með að koma efninu ti skila. Námi efur mikla atvinn möguleika og spennandi tí r eru framundan. Guðrún Helga Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 0 -0 B 7 4 1 D 9 0 -0 A 3 8 1 D 9 0 -0 8 F C 1 D 9 0 -0 7 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.