Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 36
Gönguklúbbur unga fólksins var stofnaður fyrir nokkrum vikum af hjúkrunarfræðinemanum Guðnýju Björgu Helgadóttur. Eftir að hafa tekið göngur föstum tökum síðasta haust tók hún eftir því að hún var iðulega yngst í gönguferðum sem hún tók þátt í en Guðný er 26 ára gömul. Nokkurra vikna leit að gönguhópi sem skipaður væri yngra fólki skilaði engum niðurstöðum og þá var ekkert annað í stöðunni en að stofna hópinn sjálf segir hún. „Það þýðir ekki að bíða endalaust eftir því að aðrir taki af skarið. Viðbrögðin hafa verið mjög góð þótt hópurinn sé nýlega stofnaður. Í dag eru um 750 meðlimir sem sumir eru þó eitthvað eldri en ég. Þótt hópurinn sé upphaflega stofnaður fyrir minn aldurshóp eru ekki ströng inntökuskilyrði og allir eru velkomnir. Þetta snýst fyrst og fremst um hvernig fólk lítur á sjálft sig, sumir eru einfaldlega ungir í anda.“ Var tilbúin Það var móðir Guðnýjar, Linda Birgisdóttir, sem kynnti dóttur sinni útivist fyrir mörgum árum. „Hún dró mig með í hinar og þessar ferðir síðustu ár en áhuginn var takmarkaður. Enda trúi ég því að maður verði að gera hlutina á eigin forsendum og ég var einfaldlega ekki tilbúin á þessum tíma.“ Rétti tíminn kom síðasta haust þegar hún hóf að mæta í gönguferðir á vegum gönguklúbbsins Vesen og vergangur. „Svo í sumar gerðist eitthvað innra með mér og ég byrjaði á fullu í útivist. Um verslunarmannahelgina fór ég t.d. ein á gönguhátíð í Súðavík og var sú ferð ein stór sjálfsvinna. Þar fór ég heldur betur út fyrir þægindarammann, fór á mínum forsendum og kynntist fullt af nýju fólki með sömu útivistarbakteríuna og ég.“ Það var þó ekki bara ástríða fyrir útivist sem ýtti Guðnýju af stað í göngur. Hún hefur glímt við kvíða Út fyrir þægindarammann Göngur vinna bæði á andlega og líkamlega þættinum. Það þekkir Guðný Björg Helgadóttir vel en hún stofnaði Gönguhóp unga fólksins nýlega. Hún hefur glímt við kvíða og þunglyndi lengi en stofnun klúbbsins tengist lífsstílsbreytingum í lífi hennar. Starri Freyr Jónsson starri@365.is „Göngur vinna því bæði á andlega og líkamlega þættinum, maður styrkist rosalega fljótt og byrjar að geisla út á við því þetta er svo nærandi,“ segir Guðný Björg Helgadóttir, stofnandi Gönguklúbbs unga fólksins. MYND/ERNIR og þunglyndi síðan hún man eftir sér og segir stofnun klúbbsins ekki síður tengjast lífs stílsbreytingum í lífi hennar. „Ég náði botninum í kvíða og þunglyndi í vor. Allt mitt líf hef ég þurft að bera þungan bakpoka og hefur kvíðinn stundum verið það mikill að ég hef fengið ítrekuð kvíðaköst sem er það versta sem ég veit um. En það býr ótrúlega mikil seigla í mér og ákveðni. Ég er alin þannig upp að maður eigi að takast á við vandamálin og vinna í sjálfum sér. Lífið er stútfullt af verkefnum sem þarf að leysa og ef maður nær því öðlast maður betra líkamlegt og andlegt heilbrigði. Að mæta kvíðanum gerir það að verkum að hann hverfur smátt og smátt. Maður getur nefnilega allt ef viljinn er nógu mikill.“ Frábær félagsskapur Eftir að hafa gengið til sálfræðings, sem sérhæfir sig í ADHD, í nokkrar vikur snemma síðasta vetur kom í ljós að Guðný var með mjög mikinn athyglisbrest en er um leið ofboðslega ofvirk. „Það var eins og öllum spurningum mínum hefði verið svarað á þessu augnabliki. Allt sem ég hafði glímt við mátti rekja til þess að ADHD var ekki meðhöndlað rétt á mínum yngri árum. Nú er ég búin að vera á lyfjum í fimm mánuði og aldrei liðið betur. Nýr drifkraftur og einbeiting gerði það að verkum að ég fann mig algerlega í útvistinni í byrjun sumars og hef verið óstöðvandi síðan.“ Hún segir náttúruna vera það sem heilli mest við göngur og fjallaklifur en ekki megi gleyma félagsskapnum. „Þar eru allir að stunda ástríðu sína og því myndast svo mikill kærleikur og jákvæðni. Það er gaman að kynnast nýju fólki og læra af því. Svo er alltaf gott að setja sér markmið og prófa ný fjöll. Göngur vinna því bæði á andlega og líkamlega þættinum, maður styrkist rosalega fljótt og byrjar að geisla út á við því þetta er svo nærandi fyrir mann. Mér finnst einnig gott að stunda núvitund, taka eftir hlutunum og njóta. Þess vegna elska ég að taka góðan tíma í göngur og ekki flýta mér.“ Næsta ganga er í dag fimmtudag kl. 18 og er stefnt á Vífilfell. Allar nánari upplýsingar má finna á Facebook undir Gönguklúbbur unga fólksins. Pro300 Vitamix Pro300 er stórkostlegur. Auðveldar alla matreiðslu í eldhúsinu. Mylur alla ávexti, grænmeti, klaka og nánast hvað sem er. Nýtt útlit og öflugri mótor. Stiglaus hraðastilling og pulse rofi. Tilboðsverð kr. 97.704,- Fullt verð kr. 130.272,- 6 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . áG Ú s t 2 0 1 7 F I M MT U DAG U RHEILsuRæKt 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 F -C B 4 4 1 D 8 F -C A 0 8 1 D 8 F -C 8 C C 1 D 8 F -C 7 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.