Fréttablaðið - 24.08.2017, Page 56
Það er líka margt
sem við erum að fá
austan að í okkar menn-
ingu, vísindum og lífshátt-
um sem berst til okkar
austan að Þannig að við
erum ekki eyland í Þeirri
merkingu.
Annað kvöld verða opnaðar tvær sýn-ingar í Hafnarborg, í Sverrissal er það sýningin Erindi, innsetning Önnu
Júlíu Friðbjörnsdóttur, en í aðalsal
sýningin Málverk – ekki miðill, sem
samanstendur af verkum níu lista-
manna. Síðarnefnda sýningin er
haustsýning safnsins að þessu sinni
en sá háttur hefur verið hafður á
um nokkurt skeið að efnt er til
hugmyndasamkeppni um nálgun
hverju sinni en að þessu sinni varð
umrædd tillaga Jóhannesar Dags-
sonar fyrir valinu.
Jóhannes segir að hann hafi áður
komið með hugmyndir að borðinu
án þess að hafa erindi sem erfiði
en nú sé loks komið að frumraun
hans við sýningarstjórn. „Þetta er
skemmtilegt konsept og þeir eiga
hrós skilið fyrir að opna á mögu-
leikann á að aðrir fái að reyna sig
en hefðbundnir sýningarstjórar.
Sjálfur er ég myndlistarmaður og
heimspekingur og það hefur reynst
mér alveg ágætlega að tvinna þetta
saman.“ Aðspurður hvort hann
vinni þá mikið út frá hugmyndalist
tekur Jóhannes ekki fyrir það. „Já,
heimspekin blandast í myndlistina
hjá mér og öfugt.“
Frjálst og fjölbreytt
Jóhannes segir að hann hafi lagt
fram að sýna málverk sem eitthvað
annað en miðil. „Það er mikil gróska
í málverkinu en að mínu mati er
það á öðrum forsendum en verið
hefur. Málverkið er að mörgu leyti
hætt að vera upptekið af því að
vera þessi málverkamiðill. Það er
hætt að fást við spurninguna um
dauða málverksins og hvað er rétt
í sögulegu ljósi en þess í stað orðið
enn ein aðferðin til þess að segja
eitthvað um annað en sjálft sig.
Þetta hefur ótvírætt fært málverkinu
ákveðið frelsi og fyrir vikið er það
líka í sókn. Ég held að málverkið
njóti þess líka núna að það getur
flakkað á milli ólíkra miðla, það
á allt eins heima í vídeómiðli
eða gjörningi samanber t.d. verk
Kjartans Ragnarssonar í Feneyjum.
Það er ágætt dæmi um nýja nálgun
þar sem málverkið nýtur sín á
öðrum forsendum og er notað til
þess að koma einhverju á framfæri
en er einmitt fólgið í þessum miðli.
Er í senn bæði hverfulla og frjálsara.“
Á sýningunni er að finna verk
eftir Fritz Hendrik Berndsen, Hildi
Bjarnadóttur, Huldu Stefánsdótt-
ur, Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur,
Jakob Veigar Sigurðsson, Magnús
Helgason, Melanie Ubaldo, Sigurð
Guðjónsson og Þorgerði Þórhalls-
dóttur. Jóhannes segir að það að
velja inn verk hafi verið erfiðasti
þátturinn í ferlinu. „Það sem ég
gerði var að velja inn listamenn
sem mér fannst að kæmi til með
að segja eitthvað sérstakt að stilla
verkunum þeirra saman. Þar hafði
ég að leiðarljósi málverkið sem
aðferð við að sjá og fást við hinn
sýnilega heim. Síðan var fór ég í
gegnum það ferli að máta saman og
brátt varð til kjarni sem ég er mjög
ánægður með.“
Jóhannes segir að verkin á
sýningunni séu af ólíkum toga.
„Hér eru vídeóverk, innstillingar
og svo málverk, bæði hefðbundin
olíumálverk á striga en eins líka
aðrar nálganir. Þannig að ég reyni að
nálgast málverkið sem fjölbreyttan
miðil og held öllu eins opnu og
frjálsu og ég mögulega get. Ég vona
og held að þetta verði aðgengileg og
skemmtileg sýning og markmiðið í
sjálfu sér er að hugsa með sér um
þessar spurningar: Hvað er málverk
og hvers vegna hugsum við um það
eins og við gerum?“
Fjúkandi söngvarar
Sýningin Erindi, innsetning Önnu
Júlíu Friðbjörnsdóttur, er ekki
síður af forvitnilegum toga en þar
er listamaðurinn að skoða breyt-
ingar í vistkerfinu sem myndgerast
í smáfuglum sem reglulega finnast á
Íslandi. Verkin bregða upp ólíkum
kerfum sem tengjast skrásetningu
tegunda og siglingafræði. Þau eru
innblásin af evrópskum sönglögum
19. aldar og samfélagsmálefnum
nútímans. „Árið 2005 las ég fréttir
af flækingsfuglum sem hingað rata
og mér fannst þetta mjög áhugavert.
Ég vissi ekki mikið um fugla en svo
fyrir tveimur árum þá kom þetta
aftur upp hjá mér en þá í öðru sam-
hengi í tengslum við loftslagsbreyt-
ingar sem eru stór hluti af þessu. Það
eru að sjást hérna fleiri tegundir og
það bætist alltaf við. Þegar ég fór að
fást við þetta þá ákvað ég að ein-
angra verkefnið við söngvara, bæði
er falin í því falleg vísun og síðan
eru þeir líka frá Evrópu þar sem
þeir eru kallaðir á ensku Old World
warblers. Þessir söngvarar koma að
austan til okkar – lenda í austanátt
og fjúka hingað til okkar.“
Anna Júlía segir að bæði nú og
í sinni síðustu sýningu hafi hún
verið að skoða samhengi á milli
vistkerfis og samfélagslegra mál-
efna. „Ég er svona að skoða ákveðið
mengi á milli menningarheimsins
og lífheimsins ef svo má segja. Hug-
myndin leggur áherslu á að við
erum ekki einangruð í heiminum.
Við erum að fá þessa gesti til okkar
fyrir tilstilli vindsins og því tekst ég
aðeins á við hann líka enda ferðast
hann líka þvert á landamæri. Það
er líka margt sem við erum að fá í
okkar menningu, vísindum og lífs-
háttum sem berst til okkar austan
að þannig að við erum ekki eyland í
þeirri merkingu.“
Anna Júlía vinnur einnig með
hina rómantísku sögn um söng-
fuglinn á ýmsan máta, meðal ann-
ars með því að spila fuglasönginn
á hljómplötu auk þess sem verkin
eru tengd og heita eftir ljóðum
nítjándu aldar skálda. „Auk þessa
er ég líka að vinna með efni sem
eru ný og spennandi fyrir mér og ég
held að sitthvað eigi eftir að koma
fólki skemmtilega á óvart hvað það
varðar.“
Fjúkandi söngvarar, hverfult og frjálst málverk
á tveimur sýningum sem verða opnaðar í hafnarborg annað kvöld gefst kostur á að skoða málverkið í nýju
samhengi sem og evrópska söngfugla sem hingað fjúka með austanvindinum eins og svo margt annað.
Jóhannes Dagsson, myndlistarmaður og sýningarstjóri sýningarinnar Málverk – ekki miðill í Hafnarborg. Fréttablaðið/Eyþór
anna Júlía Friðbjörnsdóttir skoðar breytingar í vistkerfinu sem myndgerast í smáfuglum. Fréttablaðið/Eyþór
2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R36 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
menning
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
F
-C
6
5
4
1
D
8
F
-C
5
1
8
1
D
8
F
-C
3
D
C
1
D
8
F
-C
2
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K