Fréttablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 58
2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R38 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð
Bíó
KvIKMynDIR
the Hitman’s Bodyguard
HHHHH
Leikstjóri: Patrick Hughes
Framleiðendur: David Ellison, Mark
Gill, Dana Goldberg
Handrit: Tom O'Connor
Aðalhlutverk: Ryan Reynolds,
Samuel L. Jackson, Gary Oldman
The Hitman's Bodyguard er klárt
dæmi um bíómynd sem væri argasta
tímasóun ef lykildúóið á skjánum
smylli ekki saman. Efniviðurinn er
teygður, fyrirsjáanlegur, löðrandi
í úldnum klisjum og myndin er
hvorki skrifuð af mikilli hnyttni
né vel gerð tæknilega, en á meðan
samverustund leikaranna gefur
frá sér kátínu er öruggt að segja að
afþreyingargildið skili sínu. Hér
skiptir nefnilega ekkert annað máli
en samspilið og þrasið hjá þeim
Ryan Reynolds og Samuel L. Jackson.
Persónuleikar þessara manna halda
handritinu á floti og gefa því eitthvað
líf, ekki öfugt.
Reynolds leikur lífvörðinn
Michael Bryce, sem fær það verkefni
að halda hlífskildi yfir vitni að nafni
Darius Kincaid (Jackson, síblótandi
sem aldrei fyrr), en Kincaid er
leigumorðingi sem samþykkt
hefur að vitna gegn óprúttnum
einræðisherra Hvíta-Rússlands (Gary
Oldman). Nýja verkefnið er Bryce til
mikillar mæðu í ljósi þess að þeir
kappar hafa áður hist og Kincaid
reynt að drepa hann, hátt í þrjátíu
sinnum! En skyldan vissulega kallar
og á næsta sólarhring hafa báðir um
nóg annað að hugsa en gamlar deilur
þegar óvingjarnlegir útsendarar
mæta úr öllum áttum.
Fyrir sprellikallinn Reynolds er
þetta fínt millistopp til að halda sér í
gírnum á milli Deadpool-mynda, en
í flestum tilfellum er hann sá háfleygi
í sínum hópi. Hér leyfir hann sér að
vera lágstemmdari aðilinn á meðan
Jackson er í banastuði allan tímann,
reytandi af sér brandara og neitar
að taka sig of alvarlega í meira en
nokkur sekúndubrot. Hvernig
sá maður getur verið að nálgast
áttræðisaldurinn er annars mikil
ráðgáta. Reyndar er öll myndin
troðfull af kostulegum leikurum
sem hafa lítið sem ekkert elst
síðustu tuttugu árin – fyrir utan Gary
Oldman, án gríns.
Eins og fylgir hinum sívinsæla
„félagageira“ bíómynda eru menn-
irnir tveir sterkar andstæður; annar
lífsglaður og ódrepandi leigumorð-
ingi með stórt hjarta en hinn lokaður
lífvörður sem tekur sjaldan áhættu.
A l l i r o g
ömmur þeirra
sjá það fyrir að
hatursfullt sam-
b a n d þ e i r ra
þ r ó a s t m e ð
tímanum í ólík-
lega vináttu,
þ v í s a m a n
finna þeir leiðir
til að tengjast
gegnum adr-
e n a l í n i ð o g
sameiginlega
fagmennsku í
því að vaða í
andstæðinga
o g g r a n d a
þeim pent.
A ð m a t i
u n d i r r i t a ð s
verður myndin
aldrei spreng-
hlægileg og í
rauninni er hún ekkert brjálæðis-
lega fyndin heldur, en það er einhver
smitandi kátína sem hún veitir með
orku þessara beggja. Salma Hayek
og Elodie Yung (Elektra úr
Daredevil-þáttun-
um) eiga einhvern
þátt í því líka enda
hörkuskemmtileg-
ar og sjá um nokkra
af betri sprettum
myndarinnar.
Hayek tileinkar
sér eftirminni-
legasta atriðið með
Hello frá Lionel Ric-
hie á fóninum. Hún
hefði alveg mátt fá
meira að gera, fyrst
myndin hvort sem
er teygir lopann á
öðrum stöðum.
Hayek nær samt
hinu stórmerkilega
markmiði að blóta
meira á skjánum
heldur en Jackson
tekst nokkurn tím-
ann að gera.
Gamla brýnið Oldman sýnir brot
af yfirdrifna óþokkanum sem hann
náði svo oft fínum tökum á hér á
tíunda áratugnum (sjá True Rom-
ance, Leon, The Fifth Element o.fl.)
en fyrir utan það er ekki nokkuð fyrir
hann að gera, sem fylgir víst þegar
lítið er í boði fyrir manninn nema að
sitja kyrr og setja upp fýlusvip meiri-
hlutann af tímanum.
Síðasta mynd leikstjórans Patricks
Hughes var sú þriðja í Expend-
ables-seríunni og mætti því halda
að sá maður væri betur skólaður
í útfærslu hasarsena, en þar fellur
þessi mynd í stóra gryfju. Hasarinn
er alveg jafn formúlubundinn og
sjálfur söguþráðurinn, nánast eins
og leikstjórinn keyri framvinduna og
kaosið á sjálfstýringu. Hughes virðist
líka taka myndina alltof alvarlega
sums staðar og ég efast um að það
sé partur af brandaranum hvað
bílar eiga auðvelt með að springa í
loft upp. Klassískt, jú, en fúlt hvað
allar sprengingar og eldbrellur eru
áberandi tölvuhannaðar.
Það sést líka ákaflega vel þegar
notuð hafa verið græn tjöld og
tæknibrellur eru almennt frekar
klúðurslegar. En blessunarlega
koma slagsmálasenur miklu betur út
heldur en eltingaleikir eða flugeldar.
Kvikmyndatakan er annars oft ljót
og virkar eins og upptökumaðurinn
Jules O'Loughlin hafi smurt vaselíni
á vélina. Tónlistin frá Atla Örvarssyni
er heldur ekkert að gera neitt nema
að sækja í annað en það sem gamlar
hefðir kalla eftir, en hún fellur
prýðilega að stemningunni.
Útkoman er bæði pínleg og
skemmtileg, vandvirknislega unnin
og dæmigerð út í eitt en á sama tíma
einföld og sprellfjörug afþreying
sem ætti að vera fín ef þörf er fyrir
að smella einhverju heilalausu í
tækið. Lógískt séð ætti allt ofantalið
að jafnast út í saklaust en groddalegt
miðjumoð en fólkið á skjánum gerir
það samt að verkum að eitthvað stuð
er hér að finna.
Tómas Valgeirsson
nIðURstAðA: Gömul uppskrift og
púðurlaus hasar en hressa tvíeykið hífir
stemninguna upp úr meðalmennsk-
unni. Rétt svo.
Fjörugt en formúlubundið tvíeyki
Hlutverk Salmu Hayek í myndinni hefði mátt vera stærra. NORDICPHOTOS/AFP
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
F
-D
A
1
4
1
D
8
F
-D
8
D
8
1
D
8
F
-D
7
9
C
1
D
8
F
-D
6
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K