Fréttablaðið - 27.09.2017, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Tæplega 20.000 meðlimir eru í
Facebook-hópnum Sögur af dóna-
legum viðskiptavinum og eins og
nafn hópsins gefur til kynna er
hann vettvangur fyrir fólk til að
deila sögum af dónalegum við-
skiptavinum. Nýverið kom upp
sú umræða í hópnum að starfsfólk
Domino’s héldi úti lista yfir svo-
kallaða „erfiða viðskiptavini“ og
margir undruðu sig á að slíkur listi
væri yfirhöfuð settur saman. „Nei,
er þetta í alvörunni gert?“ sagði einn
meðlimur hópsins.
Magnús Hafliðason, aðstoðar-
forstjóri Domino’s á Íslandi, sagði
í samtali við Fréttablaðið að fyrir-
tækið héldi úti viðskiptavinakerfi
líkt og mörg fyrirtæki þar sem fram
kæmu upplýsingar um viðskipta-
vini og viðskiptasögu. „Í ákveðnum
tilvikum eru viðskiptavinir sem
krefjast sérstakrar afgreiðslu einn-
ig merktir sérstaklega og þá yfirleitt
svo að tryggja megi hraða og góða
þjónustu fyrir viðkomandi aðila.
Það gerist þó vissulega að upp koma
tilvik þar sem við treystum okkur
ekki til að afgreiða ákveðna aðila
vegna atvika sem upp hafa komið í
samskiptum á milli þeirra og starfs-
fólks okkar og eru þá aðilar merktir
með þeim hætti til upplýsingar fyrir
starfsfólk,“ segir Magnús og bætir
við að sem betur fer sé ekki um
marga viðskiptavini að ræða sem
lendi á umræddum lista. – gha
Listi Domino’s yfir „erfiða
viðskiptavini“ vekur undrun
Vefsíða Reykjavík Fash-ion Festival-hátíðar-innar (RFF) er tilnefnd til evrópsku Lovie-verð-launanna sem besta
tískusíða ársins og er í úrslitum
ásamt vefsíðu breska Vogue. Það var
hönnunar- og markaðsstofan Ser-
ious Business sem sá um hönnunar-
vinnu og uppsetningu síðunnar og
Helga Ósk Hlynsdóttir, einn stofn-
enda, segir að um draumaverkefni
hafi verið að ræða.
„Samstarfið var ótrúlega ánægju-
legt og þetta var algjört drauma-
verkefni. Það var alveg ótrúlega
gaman að fá að vinna með svona
skapandi batteríi sem vill standa
upp úr,“ segir Helga. Hún segir sér-
stöðu Serious Business vera þá að
þau byggi alla vinnu á miklu sam-
starfi við kúnnann. „Við vinnum
alltaf náið með viðskiptavinum
okkar, sem gerir okkur svolítið
skemmtileg. Og það er þetta sam-
starf sem er lykillinn, maður getur
ekki gert neitt einn.“
Spurð nánar út í samstarfið á bak
við umgjörðina í kringum RFF segir
Helga: „Þetta var þriggja mánaða
samvinna sem hófst með því að Ser-
ious Business-teymið fór til Íslands
og var með vinnustofu fyrir RFF-
hópinn. Eftir vinnustofuna fórum
við aftur til München, þar sem við
erum staðsett, og kláruðum hug-
myndavinnu og tókum viðtal við
þeirra kúnnahóp, sem eru íslenskir
fatahönnuðir.“
En hvaða þýðingu myndi það
hafa fyrir ykkur að vinna til Lovie-
verðlauna? „Þetta er náttúrulega
rosaleg viðurkenning. Þetta myndi
setja okkur í flokk sem eitt af bestu
hönnunarteymum Evrópu,“ segir
Helga sem er himinlifandi með
viðurkenninguna sem fylgir því að
vera tilnefnd til Lovie.
„Við erum ótrúlega stolt af þessu.
Ekki síst vegna þess að síðan vann
líka ótrúlega flott verðlaun hjá
Awwwards.“
Eins og áður sagði er RFF-síðan
í úrslitum með vef breska Vogue
og getur fólk kosið á milli þess-
ara tveggja vefsíðna til 5. október.
Úrslitin ráðast svo af niðurstöðu
vefkosningar í gegnum vef Lovie
og einnig dómnefndar. „Spurð út í
hvernig hlutirnir líta út segir Helga:
„Síðast þegar við tékkuðum þá
vorum við á undan Vogue.“
gudnyhronn@365.is
Keppa um verðlaun
við breska Vogue
Heimasíða RFF-hátíðarinnar er tilnefnd til Lovie-verðlauna og er
í sama flokki og heimasíða breska Vogue. Helga Ósk Hlynsdóttir,
einn hugmyndasmiða síðunnar, segir um mikinn heiður að ræða.
Serious Business-teymið sá um að hanna lógóið fyrir RFF og alla listræna umgjörð.
Þessi hafa hlotið Lovie-verðlaun:
l Stephen Fry
(manneskja ársins)
l Sigur Rós
(listamenn ársins)
l Annie Lennox
(manneskja árins)
Um evrópsku
Lovie-verðlaunin:
l Veitt fyrir góða
frammistöðu
á internetinu á
ýmsum sviðum.
l Veitt í ýmsum
flokkum, m.a.
Frumkvöðull ársins, Nýgræðingur
ársins og Tískuvefsíða ársins.
l Sett á laggirnar árið 2011.
Hljómsveitin
Sigur Rós fékk
Lovie-verðlaun
árið 2014.
www.gilbert.is
SJÓN ER SÖGU RÍKARI !
SIF NART 1948
0 kr. fyrsti mánuðurinn!
Verið vel tengd
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
- Fæst í apótekum -
Hunangsplástur og sárakrem með
hunangi. Hentar á allar tegundir sára.
Plásturinn hentar vel á lítil yfirborðssár.
Nauðsynlegur á sára hæla eftir göngur.
www.wh.is
2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m I Ð V I K U D A G U r22 l í f I Ð ∙ f r É t t A b l A Ð I Ð
2
7
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
B
-8
C
8
8
1
D
D
B
-8
B
4
C
1
D
D
B
-8
A
1
0
1
D
D
B
-8
8
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K