Fréttablaðið - 27.09.2017, Blaðsíða 38
Heimurinn er fullur af hljóðum sem við viljum fylgjast með – tali, hlátri, lækjarnið, fugla
söng og þyt í laufi eða hljóði frá reið
hjóli á gangbrautinni. Þegar heyrnin
fer að daprast er mikilvægt að nýta
sér nútímaheyrnartæki til að geta
sinnt lífi og starfi óhindrað,“ segir
Ellisif Katrín Björnsdóttir, heyrnar
fræðingur hjá Heyrn í Kópavogi.
Skert heyrn hafi áhrif á daglegt líf og
líðan fólks.
„Því miður gerist það að fólk fer
að einangrast félagslega og getur
ekki sinnt starfi sínu vegna heyrnar
skerðingar. Það er í flestum tilfellum
til lausn sem felst í heyrnartækjum.
Háþróuð tækni tekur að fullu tillit
til eðlilegs hæfileika heilans til að
heyra og beina athyglinni að því sem
þér finnst mikilvægt og gefur þér
skýra og eðlilega tilfinningu fyrir
hljóðunum í kringum þig. Í flóknu
hljóðumhverfi tryggir gervigreind að
þú getir einbeitt þér að því sem þú
vilt án þess að missa af því sem er að
gerast kring um þig,“ segir Ellisif.
„Fólk með heyrnarskerðingu er
það sem allt okkar starf snýst um.
Okkar margverðlaunuðu ReSound
Smart Hearing heyrnartæki hjálpa
þeim sem eru heyrnarskertir við að
taka meiri þátt, vera betur tengdir
og hafa stjórn á hlutunum. Í stöðugt
„snjallari“ heimi hugsum við stórt
og setjum ný viðmið svo við getum
breytt lífinu með krafti hljóðsins og
með hjálp heyrnarfræðinga,“ segir
Ellisif.
Bætt heyrnarupplifun
„Þú getur stýrt og sniðið virkni
tækjanna eftir þínum persónulegu
þörfum með nýja ReSound Smart
3D appinu svo þau virki sem best.
Appið gefur einnig leiðbeiningar
um heyrnartækin, með því geturðu
fundið tækin ef þú manst ekki hvar
þú lagðir þau frá þér og jafnvel
notað fjarþjónustu heyrnarfræð
ings.“ Tenging heyrnartækja við
farsíma var þróuð í samvinnu við
tæknirisann Apple og tækin virka
sem heyrnartól við símann. Nánari
upplýsingar eru á www.heyrn.is.
„ReSound heyrnartækin eru svo
haganlega gerð að maður verður að
taka þau af sér til þess að sýna þau.
Þau eru þar að auki svo þægileg að
fólk gleymir því jafnvel að það sé
með þau tækin,“ segir Ellisif.
Ýmsir þráðlausir aukahlutir eru í
boði frá ReSound sem nota má við
heyrnartækin til að heyra betur úr
fjarlægð eða við háværar aðstæð
ur. Þeir vinna með tækjunum sem
ein snjöll heild, t.d. slokknar á
hljóðinu frá sjónvarpinu þegar
síminn hringir en kviknar aftur
þegar símtali lýkur.
„Það er oft fjallað um kostnað við
heyrnartæki en gleymist að fjalla
um ávinninginn af því að heyra
betur og að eiga snurðulaus sam
skipti,“ segir Ellisif. „Mikilvægt er að
velja sér heyrnartæki með aðstoð
heyrnarfræðings sem getur leið
beint um val og virkni réttu tækj
anna. Hafa ber í huga að hjá flestum
endast heyrnartæki að meðaltali
um 5 ár, tækin eru í daglegri notkun
frá morgni til kvölds og því lykil
atriði að fólki líði vel með tækin og
geti treyst á þau. Með því að mæta í
endurstillingar og að láta þjónusta
heyrnartækin reglulega fæst betri
heyrnarupplifun og tækin endast
lengur. Þetta ferli er endurhæfing á
heyrninni og tekur mislangan tíma.
Því fyrr sem heyrnarskerðing upp
götvast og endurhæfing hefst, því
betri árangur verður.
Ekki láta heyrnarskerðingu aftra
þér. Taktu til þinna ráða og fáðu
tíma í heyrnargreiningu og jafnvel
að prófa heyrnartæki. Þú veist ekki
af hverju þú ert að
missa fyrr en þú
heyrir það.“
Snjöll heyrn er framtíðin
ReSound Smart Hearing heyrnartæki gera fólki kleift að sinna lífi og starfi óhindrað eftir að heyrn
daprast. Ellisif Katrín Björnsdóttir, heyrnarfræðingur hjá Heyrn, segir mikilvægt að nýta tæknina.
ReSound
heyrnar-
tækin eru
haganlega
gerð og
þægileg.
Ellisif Katrín Björnsdóttir, heyrnarfræðingur hjá Heyrn. mynd/Anton BRinK
20%
afsláttur
af húsgögnum
og ljósum
Ármúla 23, 108 Reykjavík
S : 553-0605
www.amira.is
10 KynninGARBLAÐ FÓLK 2 7 . S E p t E m B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
2
7
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
B
-A
A
2
8
1
D
D
B
-A
8
E
C
1
D
D
B
-A
7
B
0
1
D
D
B
-A
6
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K