Fréttablaðið - 27.09.2017, Blaðsíða 32
Fernando Abellanas hannar ljós og húsgögn á vinnustofu sinni sem hangir í
margra metra hæð undir brú. Myndir/ Jose MAnuel PedrAJAs
Aðstaðan virðist nokkuð þægileg undir brúnni.Hægt er að loka öllum hliðum á skrifstofunni til að fá næði.
Fernando geymir sæng og kodda
uppi í hillu og getur gist á skrif-
stofunni þegar honum sýnist.
Undir dynjandi umferðarnið Valenciaborgar á Spáni situr Fernando Abellanas og
hannar ljós og húsgögn á útiskrif-
stofunni sinni. Skrifstofan er undar-
lega staðsett en hún hangir í margra
metra hæð undir steinsteyptri brú.
Í umfjöllun á vefsíðunni dezeen.
com vill hönnuðurinn ekki gefa
upp nákvæmlega hvar skrifstofan
hans er staðsett. Hann segist oft
langa til að teikna kofa eða afdrep á
fáförnum eða vanhirtum stöðum og
burðarvirkið undir þessari brú hafi
strax kveikt með honum hugmynd
um hvernig hægt væri að nota
það sem loft og veggi, hann þyrfti
einungis að búa til gólf. Það tók
hann tvær vikur að hanna og smíða
einfaldan pall úr járnprófílum og
krossviðarplötum. Pallurinn rennur
á hjólum eftir burðarbitunum
undir brúnni og knúinn áfram með
sveif. Upp í pallinn kemst hann við
hinn enda brúarinnar.
Fernando segir að með þessu
nálgist hann aftur hugmyndina um
leynikofa og afdrep sem krakkar
útbúa sér gjarnan, til að vera í
friði með sitt en samt í nálægð við
heimilið. Í hans tilfelli í nálægð
við hávært borgarlífið. Staðir sem
þessir veki yfirleitt ekki athygli
fólks og fari fram hjá flestum.
Á skrifstofunni er hann með hill-
ur, skrifborð og stól og litla gaslukt.
Hann geymir sæng og kodda uppi
í hillu og ef honum sýnist svo getur
hann lokað hliðunum á pallinum
og lagst til svefns.
Útiskrifstofa á leynistað
Fernando Abellanas, sjálflærður hús-
gagna- og ljósahönnuður hefur kom-
ið sér upp allsérstöku skrifstofurými,
á færanlegum palli undir steinsteyptri
brú í borginni Valencia.
Á skrifstofunni er
hann með hillur,
skrifborð og stól og litla
gaslukt. Hann geymir
sæng og kodda uppi í
hillu og ef honum sýnist
svo getur hann lokað
hliðunum á pallinum og
lagst til svefns.
TRANAVOGUR 1
104 REYKJAVIK, ICELAND
TEL.: +354 588 9200
VARMA@VARMASF.IS
WWW.VARMASF.IS
BRYNJÓLFUR SCHRAM
Tranavogur 1 • 104, Reykjavík
S : 588 9200 • www.varmabok.is
varma@varmabok.is
DAGBÓKIN 2018
ER FARIN Í
DREIFINGU!
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
10 KynninGArBlAÐ 2 7 . s e P t e M B e r 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U RsKriFstoFAn
2
7
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
B
-A
F
1
8
1
D
D
B
-A
D
D
C
1
D
D
B
-A
C
A
0
1
D
D
B
-A
B
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K